Vísir

Mest lesið á Vísi

Stjörnuspá

01. maí 2026

Einhver breyting verður á dagskrá morgundagsins og þú ert síður en svo hrifinn af henni. Þú kemst þó að því seinna að hún er alls ekki svo slæm.

Fréttamynd

Gagn­rýnir vinnu­brögð bæjar­stjórnar Kópa­vogs harð­lega

Kristrún Frostadóttir flutti ræðu á verkalýðskaffi sem Samfylkingarfélagið bauð til í Iðnó rétt í þessu. Þar sagði hún að bæjarstjórn Kópavogs væri til skammar fyrir að „hafa ekki úthlutað einni einustu lóð til Bjargs, sem byggir fyrir tekjulægra vinnandi fólk og tryggir fjölskyldum þess öruggt húsnæði“. Hún nefnir þá einnig undrun sína á mótspyrnu pólitískra andstæðinga í tenglsum við lögfestingu réttar til leikskólavistar.

Innlent



Fréttamynd

Er­lendir fjár­festar tekið stöðu með krónunni í auknum mæli síðustu misseri

Á síðustu misserum hefur mátt merkja að erlendir fjárfestingarsjóðir séu í vaxandi mæli að „taka stöðu með krónunni“ þegar litið er til mótaðilasamsetningar á framvirkri stöðu viðskiptabankanna. Hár vaxtamunur við útlönd getur skapað hvata fyrir fjárfesta að kaupa krónueignir með stuttan líftíma þótt reglur Seðlabankans girði fyrir óhóflega stöðutöku.

Innherji