Drengirnir hafi látið vita af sér Drengirnir tveir sem lýst var eftir í morgun hafa látið vita af sér en lögregla leitar þeirra enn. Strákarnir eru fimmtán og fjórtán ára. Lögregla lýsti eftir þeim að beiðni barnaverndar en þeir fóru frá heimilum sínum fyrir fjórum dögum, á sunnudag. Innlent 17.9.2026 10:15
Drengirnir fundnir heilir á húfi Drengirnir sem lögreglan á Vesturlandi leitaði að er fundnir. Innlent 17.9.2026 06:07
Stór skjálfti í Langjökli fannst víða Stór skjálfti varð í vestanverðum Langjökli klukkan átján mínútur yfir tvö í dag. Skjálftinn mældist 4,2 að stærð og hafa nokkrir eftirskjálftar fylgt, sá stærsti 2,3 að stærð. Innlent 15.9.2026 14:58
Bíll við bíl á Snæfellsvegi Umferðin er farin að þyngjast á Vesturlandi en fólk virðist lagt af stað heim eftir almyrkvaferðalög. Löng bílaröð hefur myndast austan við Vegamót á Snæfellsvegi og við Borgarbyggð. Innlent 12. ágúst 2026 20:48
„Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Brotist var inn í Hreppslaug á Hvanneyri í dag en Ungmennafélagið Íslendingur rekur laugina. Formaður þess segir innbrotið vera „súrt“ enda hafi mikil uppbygging átt sér á svæðinu og sundlaugin sé rekin með sjálfboðaliðastarfi. Innlent 14. júlí 2026 21:48
Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferð um Holtavörðuheiði er farin að flæða á ný eftir að henni var lokað vegna umferðaróhapps. Löng bílaröð myndaðist á heiðinni. Vegagerðin benti ökumönnum á hjáleið um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. Innlent 12. júlí 2026 16:55
Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Búið er að bera kennsl á hund sem fannst nýverið dauður við Langjökul. Hann hafði verið týndur í tæp tíu ár. Innlent 9. júlí 2026 18:54
Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Hundur hefur fundist dauður vestanmegin við Langjökul en ekki er víst hvort hann lá í jöklinum sjálfum og sé að koma undan núna í hlýnandi veðri eða hvort hann hafi legið á ísnum eða við jaðar jökulsins. Ekki er hægt að meta tegund né lit á feldi vegna mikils niðurbrots en hundurinn virðist vera af meðalstærð. Innlent 3. júlí 2026 11:53
Jarðskjálftar í grennd við Húsafell en enginn órói Jarðskjálfti sem mældist 3,3 stig að stærð reið yfir rétt norðvestur af Þórisjökli í nótt eða þegar klukkan var sjö mínútur gengin yfir miðnætti. Innlent 24. júní 2026 07:28
Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Ökumaður sem lenti í alvarlegum árekstri á Hálsasveitarvegi rétt norðan við Reykholt 16. júní síðastliðinn er látinn. Rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi rannsakar málið. Innlent 19. júní 2026 11:45
Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Þrír voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar sem var kölluð út á mesta forgangi á fjórða tímanum í dag vegna umferðarslyss í Reykholti í Borgarfirði. Innlent 16. júní 2026 17:00
Hótaði að drepa konu og hundinn hennar Karlmaður hefur verið dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir hótunarbrot, með því að senda konu SMS-skilaboð, þar sem hann hótaði henni lífláti með orðunum „þá drep ég þig og þennan hund.“ Innlent 15. júní 2026 16:35
„Við horfum bjartsýn fram á veg“ Brautskráning Bifrastar fór fram í dag í Borgarnesi. Aldrei hafa fleiri brautskrást frá skólanum eða 279 manns og því um stærstu útskrift skólans frá upphafi að ræða. Innlent 13. júní 2026 14:12
„Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason og fjölskylda hans týndu „enn og aftur“ tuskudýrinu Sæta Stebba á ferðalagi um Norðurland. Ævintýralemúrinn hefur einstakt lag á að týnast, tvívegis verið grafinn lifandi og varði nokkrum á golfvellinum í Öndverðarnesi. Lífið 4. júní 2026 15:19
Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi þingkona Sjálfstæðisflokks og forseti þingsins, verður sveitarstjóri í sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Tilkynnt var um ráðningu hennar í dag á sama tíma og nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Borgarbyggðarlistans undirritaði málefnasamning sinn. Innlent 2. júní 2026 18:38
„Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Gróðureldur logaði í klettunum milli Menntaskóla Borgarfjarðar og Bónuss í Borgarnesi á sjötta tímanum í dag. Grunað er að hann hafi kviknað af mannavöldum. Eldur logaði á um 400 fermetra svæði og tók innan við hálftíma að slökkva glæðurnar. Innlent 24. maí 2026 22:25
Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Sjálfstæðisflokkurinn og Borgarbyggðarlistinn hafa myndað saman meirihluta fyrir kjörtímabilið í Borgarbyggð og Skorradalshreppi. Innlent 22. maí 2026 13:04
Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata, segir slæmt gengi flokksins í Reykjavík ekki þýða endalok hans. Flokkurinn missti báða fulltrúa sína. Innlent 17. maí 2026 16:32
Lokatölur í Borgarbyggð og Skorradalshreppi: Meirihlutinn fallinn Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Meirihluti Framsóknarflokksins er fallinn. Innlent 17. maí 2026 03:00
Oddvitaáskorunin: Kleinan toppurinn á tilverunni Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 6. maí 2026 15:03
Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Æsileg eftirför sem lauk í Skútuvogi í Reykjavík var fyrst í höndum lögreglunnar á Vesturlandi sem fékk tilkynningu um athugavert aksturslag. Hún missti sjónar af manninum er hann ók inn í Hvalfjarðargöngin á móti umferð. Maðurinn er laus úr haldi lögreglu. Innlent 15. apríl 2026 13:07
Að kasta ábyrgðinni á aðra Eftir langa bið kynnti ríkisstjórnin á sérstökum blaðamannafundi aðgerðir sínar til að leggja sitt af mörkum til þess að stemma stigu við verðbólgu í landinu. Sannast sagna hefði verið best að senda út stutta tilkynningu á stjórnarráðsvefnum í staðinn fyrir þetta leikhús. Skoðun 12. apríl 2026 11:01
Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Haukur Þór Hauksson, rekstrarhagfræðingur og frístundabóndi í Borgarfirði, mun skipa efsta sæti á lista Miðflokksins í Borgarbyggð. Haukur gekk nýlega í Miðflokkinn en áður hefðu margir eflaust skilgreint hann sem innmúraðan sjálfstæðismann. Hann er auk þess kvæntur fyrrverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Innlent 1. apríl 2026 17:57
Árekstur í Borgarfirði 2025: Hálka ein meginorsaka banaslyss Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur birt skýrslu um slys sem varð fyrir ári síðan. Lítið barn lést í slysinu og eru meginorsakirnar taldar vera hálka á yfirborði vegarins og að barnabílstóllinn brotnaði við höggið. Innlent 26. mars 2026 16:57