Svakalegur lax á Snæfellsnesi Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur veiddi nýverið sannkallaðan risalax í búr í Haffjarðará á sunnanverðu Snæfellsnesi. Jóhannes telur að um sé að ræða stærsta Atlantshafslax sem veiðst hefur í háf. Innlent 24.11.2025 15:00
Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Innviðaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi með tillögum að víðtækum breytingum á sveitastjórnarlögum. Meðal tillaga er lögfesting á 250 íbúa lágmarki sveitarfélaga og er stefnt að sameiningu fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Átta sveitarfélög eru undir lágmarkinu. Innlent 23.9.2025 09:43
Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur svarar starfsbróður sínum fullum hálsi og sendir „dylgjur“ til föðurhúsanna um að spá sín um eldgos á Snæfellsnesi innan þriggja ára sé órökstudd. Hann telur að gos geti hafist á Snæfellsnesi með skömmum fyrirvara. Innlent 5.8.2025 11:58
Jarðskjálftahrina í Ljósufjallakerfinu Tugir jarðskjálfta hafa mælst síðustu klukkustundir í Ljósufjallakerfinu á Snæfellsnesi, á milli Grjótárvatns og Langavatns á Vesturlandi. Innlent 12. apríl 2025 19:35
Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti. Innlent 11. mars 2025 23:17
Stór skjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu Jarðskjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu upp úr fimm í dag sem var 2,9 að stærð. Að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands er þetta með stærri skjálftum sem riðið hafa yfir á svæðinu á undanförnum árum. Innlent 12. janúar 2025 18:28
Hækka vöktunarstig en segja kvikuhreyfingar ekki nærri yfirborði Veðurstofan hefur hækkað vöktunarstig á Ljósufjöllum. GPS og gervitunglagögn sýna enga mælanlega aflögun og eru engar sérstakar vísbendingar um að kvikuhreyfingar séu nærri yfirborði. Skjálfar hafa mælst á svæðinu en þeir eru á „óvenjulegri dýpt“ samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar um málið. Innlent 9. janúar 2025 12:11
Efla vöktun við Ljósufjöll vegna jarðhræringa Veðurstofan hyggst auka vöktunarstig við Ljósufjöll vegna skjálftavirkni á svæðinu undanfarnar vikur. Náttúruvársérfræðingur segir sérstakt að skjálftavirkni mælist svo lengi á jafnmiklu dýpi og raunin er nú. Innlent 8. janúar 2025 11:48
Skjálftar við Grjótárvatn og Bárðarbungu Skjálfti 2,9 að stærð varð við Grjótárvatn, norður af Borgarnesi, klukkan 5:13 í nótt. Þá varð skjálfti 4,1 að stærð við Bárðarbungu upp úr hálf fjögur í nótt. Innlent 8. janúar 2025 08:05
Vill efla vöktun og innviði vegna kerfisins sem er að vakna Sveitarstjóri í Borgarbyggð segir nauðsynlegt að efla þar vöktun og tryggja innviði í ljósi jarðhræringa í Ljósufjallakerfi síðustu daga. Borgarbyggð sé víðfemt og fjölfarið sveitarfélag, þar sem fjarskiptasambandi sé til að mynda víða ábótavant. Nýjar þrívíddarmyndir veita innsýn í dýpt og dreifingu jarðskjálfta á svæðinu síðasta árið. Innlent 5. janúar 2025 13:31
„Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir útlit fyrir að þekkt eldgosasvæði á Snæfellsnesi sé komið í gang, en um þúsund ár eru liðin frá síðasta eldgosi þar. Mestar líkur séu á hraungosi ekki ósvipuðum þeim sem sést hafa á Reykjanesskaganum undanfarin ár. Innlent 3. janúar 2025 21:01
Lengsti óróapúlsinn til þessa Lengsti óróapúlsinn í Ljósufjallakerfinu mældist við Grjótarárvatn í fjöllunum ofan Mýra síðdegis í gær. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands greinir frá á Facebook-hóp sínum. Innlent 3. janúar 2025 11:57
Skjálftavirkni í Mýrafjöllum stóraukist á árinu Skjálftavirkni í Mýrafjöllum ofan Mýra í Borgarbyggð jókst margfalt þegar líða tók á árið. Virknin telst ný af nálinni en fyrir árið 2021 voru varla skráðir skjálftar á svæðinu frá upphafi mælinga árið 1991. Öflugasti jarðskjálfti ársins hérlendis var í Bárðarbungu og mældist 5,4 að stærð. Innlent 30. desember 2024 00:16
Óróahviður í Mýrafjöllum sagðar líkjast aðdraganda Reykjaneselda Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands líkir óróahviðum í Ljósufjallakerfinu við þær sem sáust í aðdraganda eldsumbrotanna á Reykjanesskaga. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur vekur athygli á því að mun stærri jarðskjálftahrina hafi orðið í Ljósufjöllum árið 1938 með stærsta skjálfta upp á 5,2 stig. Innlent 20. desember 2024 12:12
Eldstöðvar sem ógnað gætu Vestlendingum minna á sig Stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur í Ljósufjallakerfinu til þessa, upp á 3,2 stig, varð þar í gærkvöldi og fylgdi honum skjálftahrina í nótt og fram eftir morgni. Eldstöðvakerfið teygir sig í gegnum byggðir á Vesturlandi. Innlent 19. desember 2024 22:00
Skógur á Snæfellsnesi undirlagður salernispappír Sá hvimleiði siður margra ferðamanna, að ganga örna sinna úti í náttúrunni með tilheyrandi sóðaskap, verður aldrei upprættur, að mati leiðsögumanns. Skógur á Snæfellsnesi hefur verið undirlagður salernispappír í sumar. Innlent 21. júlí 2024 09:29
Saka sveitarstjórn um að taka afstöðu með tveimur heimilum Foreldrar nokkurra barna í Eyja og Miklaholtshreppi hafa gefið út yfirlýsingu varðandi lokun Laugagerðisskóla. Foreldrarnir hafa boðist til að reka skólann og gera við húsnæðið. Innlent 7. júní 2023 07:00
Loka Laugargerðisskóla: Kostnaður við hvert barn tæpar ellefu milljónir Ákvörðun hefur verið tekin um að loka Laugargerðisskóla, sveitaskóla í miðjum Hnappadal á sunnanverðu Snæfellsnesi. Á fundi sveitastjórnar Eyja-og Miklaholtshrepps síðastliðinn mánudag, var ákveðið að óska eftir formlegum viðræðum við sveitarfélagið Stykkishólm um að veita grunn- og leikskólaþjónustu fyrir hreppinn á næsta skólaári. Kostnaður við hvert barn í skólanum eru tæpar ellefu milljónir króna. Innlent 22. febrúar 2023 15:11
Grettir Sterki mættur til Stykkishólms Dráttarbáturinn Grettir Sterki er kominn til Stykkishólms. Báturinn er í leigu hjá Vegagerðinni, Sæferðum og Stykkishólmsbæ en Sæferðir sjá um að manna bátinn. Innlent 4. október 2022 12:23
Sóttu slasaðar konur í Hvalfirði og á Snæfellsnesi Útkall barst til björgunarsveita á Vesturlandi á fjórða tímanum í dag vegna konu sem hafði hrasað og slasað sig á fæti í Hvalfirði. Hún hafði verið á göngu í Síldarmannagötum innst í firðinum þegar hún slasaðist og gat hún ekki gengið. Innlent 6. júlí 2022 19:25
Flestir íbúar hreppsins vilja sameinast „öllu Snæfellsnesi“ Herdís Þórðardóttir hlaut flest atkvæði í óbundnum kosningum í sveitarfélaginu Eyja- og Miklaholtahreppi á sunnan- og innanverðu Snæfellsnesi á laugardaginn. Samhliða kosningum til hreppsnefndar fór fram skoðanakönnun meðal íbúa um hug þeirra til sameiningar sveitarfélaga. Innlent 18. maí 2022 11:24
Ekkert verður af sameiningu á Vesturlandi Tillaga um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar var felld í kosningum í dag. Innlent 19. febrúar 2022 23:37
Kosið um sameiningu sex sveitarfélaga Kosið verður um sameiningu í sex sveitarfélögum í dag. Oddviti eins af smærri sveitarfélögunum segir það rökrétta þróun að lítil sveitarfélög sameinist þeim stærri um alla þjónustu við íbúa. Innlent 19. febrúar 2022 14:29
Perlur Íslands: Löngufjörur á Snæfellsnesi standa upp úr „Ég hef verið allt of lélegur að ferðast innanlands í gegnum tíðina en í sumar verður heldur betur bætt úr því.“ Ferðalög 12. maí 2020 14:33