Mosfellsbær

Mosfellsbær

Mannfjöldi: 13.715 (2025). Flatarmál: 186 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“

Ungliðar Miðflokksins í Mosfellsbæ koma myndbandi flokksins til varnar en þar mátti sjá ungan miðflokksmann veita pólitískum andstæðingi sínum kjaftshögg. Þeir segja myndbandið vísun í þekkt „meme“ og tölvuleikjamenningu. Þeir taka fram að oddvitar meirihlutans, sem fordæmdu myndskeiðið, séu ótengdir við unga fólkið í bæjarfélaginu.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gagn­rýna mynd­band Mið­flokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“

Oddvitar meirihlutans í Mosfellsbæ, Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fordæma harðlega kosningamyndband Miðflokksins í Mosfellsbæ. Þar má sjá ungan mann ganga út af kjörstað eftir að hafa kosið Miðflokkinn og kýla mann sem kallaður er „libbi“ áður en hann sest upp í bíl. Oddviti Miðflokksins sakar andstæðinga sína um ritskoðun en myndbandið er horfið af síðu flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Ung­menna­fé­lags­andinn í út­rýmingar­hættu

Nú hefur frjálsum íþróttum verið úthýst úr Laugardalnum, einnig hefur fullur löglegur frjálsíþróttavöllur verið fjarlægður að Varmá í Mosfellsbæ. Með þessum ákvörðunum hefur þrengst að frjálsum Íþróttum á höfuðborgarsvæðinu.

Skoðun
Fréttamynd

Í­þróttir, lýðheilsa og for­varnir

Íþróttahreyfingin hefur í áratugi verið einn mikilvægasti lykillinn að forvörnum á Íslandi og gegnt lykilhlutverki við að styðja foreldra í uppeldi og þroska ungmenna. Því er áhyggjuefni að sjá hvernig hluti íþróttastarfs á landinu hefur á síðustu misserum og árum færst nær afþreyingariðnaði og frá því sem dr. Þórólfur Þórlindsson, prófessor emeritus í félagsfræði, barðist fyrir um árabil, þ.e. heilsusamlegu lífi ungs fólks án vímugjafa.

Skoðun
Fréttamynd

Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim

Það er eitthvað alvarlegt að þegar foreldrar þurfa að óttast kerfið sem á að hjálpa börnunum þeirra. Félagslega kerfið og heilbrigðiskerfið eru að bregðast börnunum okkar. Það er eitthvað mikið að í samfélagi sem veitir ekki eigin börnum lífsnauðsynlega heilbrigðisþjónustu.

Skoðun
Fréttamynd

Yfir­borð golfvallarins eins og búðingur

Bjarni Hannesson yfirvallarstjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar hefur í mörg horn að líta. Nú er völlurinn einkar viðkvæmur því undir yfirborðinu sem er að bráðna er frost og þá verður grasið eins og búðingur. Bjarni varar við því að fólk sé að flækjast á vellinum nú um stundir.

Innlent
Fréttamynd

Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi

Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, hefur fest kaup á bæjarblaðinu Mosfellingi og tekur við rekstri þess með það að markmiði að byggja ofan á sterkan grunn blaðsins. Þá hefur nýr ritstjóri verið ráðinn til starfa samhliða kaupunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skilnaður for­eldranna mótað hana einna mest

„Ég er svo þakklát fyrir allt sem ég á og allt sem hefur mætt mér á lífsleiðinni. En það var mikil gæfa að fá höfnun sem lét mig leggja harðar af mér frekar en að gefast upp þegar ég komst ekki inn í draumaskólann og missti ljósið mitt,“ segir Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026.

Lífið
Fréttamynd

Karla­byltingin hefst í Mos­fells­bæ

Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar tókust á í fyrsta kosningapallborði fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar áðan. Þeir eru allir karlar sem má heita nýtt í sveitarstjórnarmálum á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Rúta út af og Þingvallavegi lokað

Lokað hefur verið fyrir umferð um Þingvallaveg vegna umferðarslyss á Mosfellsheiði en þar hafnaði rúta fyrir utan veginn eftir að ökumaður missti stjórn á ökutækinu.

Innlent
Fréttamynd

Segir gæði sér­náms heimilis­lækna í hættu

Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, segir ekki raunsætt að fólk fái tíma hjá heimilislækni innan fimm daga eins og viðmið landlæknis geri ráð fyrir. Hann kallar eftir því að sérnám heimilislækna verði styrkt, gæði námsins sé í hættu.

Innlent
Fréttamynd

Odd­vitinn lætur gott heita í Mos­fells­bæ

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi síðdegis. Nýr oddviti flokksins í bænum er Ólafur Ingi Óskarsson, netkerfisfræðingur og varabæjarfulltrúi.

Innlent
Fréttamynd

Varað við þrumu­veðri með tíðum eldingum

Gul viðvörun er í gildi vegna eldinga á Suðurlandi. Veðurfræðingur segir eldingarnar að mestu hafa verið bundnar við syðsta hluta landsins fyrir hádegi en veðrið sé að færast vestar. Fréttastofa hefur frétt af eldingum í Mosfellsbæ síðdegis í dag og þá var einnig greint frá rafmagnsleysi í Þorlákshöfn. 

Veður
Fréttamynd

Gular við­varanir á suð­vestur­horninu

Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða.

Veður
Fréttamynd

Gylfi Þór leiðir Við­reisn í Mos­fells­bæ

Gylfi Þór Þorsteinsson, sviðsstjóri hjá Rauða krossi Íslands, er oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ komandi sveitarstjórnarkosningum. Í öðru sæti er Valdimar Birgisson rekstrarráðgjafi og varaþingmaður og í þriðja sæti er Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur. Listinn var staðfestur á félagsfundi nú í morgun.

Innlent