Bláskógabyggð

Bláskógabyggð

Mannfjöldi: 1.362 (2025). Flatarmál: 3.300 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Laugarvatn, Reykholt í Biskupstungum, Aratunga, Laugarás.


Fréttamynd

Höfuð­paur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm

Andri Már Mortenssen Birgisson var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir aðkomu sína að Reykholtsmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp yfir honum og fimm öðrum en þeim var gefið að sök að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður

Lagt er til að árspassi að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum kosti 4.500 krónur samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðuneytisins. Lægra gjald, 3.000 krónur, verði í boði fyrir heimsóknir frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir. Fólk með skattalega heimilisfesti á Íslandi fái passann ókeypis.

Innlent
Fréttamynd

Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar

„Áverkarnir verða alltaf,“ segir brotaþoli í Reykholtsmálinu svokallaða. Hann lýsti ofbeldi sem hann á að hafa orðið fyrir í apríl 2024. Töluvert ósamræmi var á milli frásagnar hans og öðru sem lagt hefur verið fyrir dóminn. Hann furðaði sig á spurningum verjanda.

Innlent
Fréttamynd

Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“

Pétur Már Mortensen Birgisson, einn ákærðra í Reykholtsmálinu og jafnframt sá yngsti, viðurkennir að hafa beðið brotaþola afsökunar á meðan umrætt mál stóð yfir. Hann segist ekki hafa þorað að fara af vettvangi vegna ótta við eldri bróður sinn. Skýrslutökunni lauk skyndilega eftir að símtöl, þar sem heyrðist í bróður hans, voru spiluð.

Innlent
Fréttamynd

Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu

Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein sex ákærðra í Reykholtsmálinu, játaði fyrir dómara að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung. Hún neitar því að hafa tekið þátt í ofbeldi. Ingunn brast í grát þegar hún játaði.

Innlent
Fréttamynd

Virtist tauga­ó­styrkur og brast í grát

„Hann var mjög taugaóstyrkur,“ segir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir fréttamaður er hún lýsir fasi Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag en hann er meðal sakborninga í Reykholtsmálinu. Á einum tímapunkti hafi hann brostið í grát þegar hann talaði um eiginkonu sína.

Innlent
Fréttamynd

Hafi aldrei farið í Reyk­holt

Halldór Logi Sigurðsson, einn af sex ákærðu í Reykholtsmálinu, segist aldrei hafa komið á heimili brotaþola í Reykholti heldur hafi annar maður farið með. Hann gaf skýrslu fyrir dómara í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Aðal­með­ferð hefst í Reyk­holtsmálinu

Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Myndir: Heimilis­fólk komst út heilt á húfi

Eldur kviknaði í sumarhúsi í Miðfellslandi við Þingvallavatn og varð húsið alelda þegar slökkvilið kom á staðinn. Fjöldi fólks fylgdist með slökkvistarfinu en útkallið barst á tíunda tímanum.

Innlent
Fréttamynd

Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist

Íbúi á Laugarvatni brýnir fyrir eigendum hunda að tilkynna þá þegar þeir týnast í sveit sem borg. Þeir beri ábyrgð á að koma dýrum sínum ekki í aðstæður eins og sköpuðust á Lyngdalsheiði. Að minnsta kosti ein kind er illa særð og óttast að fleiri hafi orðið illa úti.

Innlent
Fréttamynd

Krefjast lög­banns við lax­veiðum Iðufólks í Stóru-Laxá

Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga hefur krafist þess að Sýslumaður á Suðurlandi leggi lögbann á ólögmætar veiðar eigenda jarðanna Iðu 1 og Iðu 2 í Stóru-Laxá þar sem hún mætir Hvítá. Ef sýslumaður skirrist við að sinna því mun réttaróvissuna um allt skipulag veiðiréttinda í ám og vötnum landsins skapast.

Innlent
Fréttamynd

Kærir Iðufólk fyrir líkams­árásir, þjófnað og hótanir

Esther Guðjónsdóttir, formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga, ritar harðorða grein á Vísi þar sem hún rekur flókna deilu sem á sér stað um veiði í Iðu, sem er ósasvæði Stóru-Laxár og Hvítár. Deilurnar eru harðar og meðal þess sem fram kemur í grein Estherar er að Finnur Harðarson, leigutaki Stóru-Laxár, hafi mátt þola líflátshótanir og líkamsárás. Finnur segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kæra.

Innlent