Ráðist var á ungmenni í strætóskýli Ráðist var á ungmenni í strætóskýli í dag og óskað eftir aðstoð lögreglu. Þegar hún kom á vettvang hafði meintur gerandi yfirgefið svæðið og fannst hvergi. Málinu var sinnt af lögreglustöð sem sinnir Kópavogi og Breiðholti í Reykjavík. Innlent 5.3.2026 18:20
Fimm hlutu bókmenntaverðlaun kvenna og kvára Fimm rithöfundar hlutu Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára, nú í dag. Dómnefndin taldi ritverkin þrjú einlæg, vönduð og áhrifarík. Lífið 5.3.2026 16:32
Opni leikskólinn og röng forgangsröðun fjármuna Meirihluti Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að skera niður styrkveitingar til opna leikskólans Memmm Play. Starfsemin gegnir mikilvægu hlutverki í hverfum borgarinnar, þar sem foreldrar geta mætt gjaldfrjálst með börn sín sem enn hafa ekki hafið dagvistun. Skoðun 5.3.2026 07:01
Enginn á að vera einn í Reykjavík Einmanaleiki er ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans. Hann snertir fólk á öllum aldri, börn, ungmenni, fullorðna og eldra fólk. Í ört vaxandi borg þar sem byggð þéttist og samfélagsform breytast verðum við að spyrja: hvernig tryggjum við að engin manneskja upplifi sig eina? Skoðun 3. mars 2026 22:00
Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Um helgina var framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kynntur með pompi og prakt í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll. Á fjórða hundrað manns voru meðal gesta og fjölmörg þekkt andlit úr pólitíkinni. Lífið 3. mars 2026 15:02
Hagkerfið allt í hættu „Það þarf að hafa verulegar áhyggjur því þetta mun hafa gríðarlegar afleiðingar,“ segir Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs um þær hækkanir sem hafa orðið á heimsmarkaðsverði olíu síðustu daga vegna átakanna í Íran. Viðskipti innlent 3. mars 2026 13:12
Kapphlaupið um sumarnámskeiðin Á hverju vori endurtekur sama sagan sig hjá fjölmörgum fjölskyldum í Reykjavík. Foreldrar sitja klárir við tölvuna eða símann á skráningardegi í sumarnámskeið borgarinnar, oft á miðjum vinnudegi, í þeirri von um að ná plássi fyrir börnin sín. Skoðun 3. mars 2026 07:00
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3. mars 2026 06:34
„Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrrverandi og núverandi nemendur Menntaskólans í Reykjavík eru á einu máli um gagnsemi latínunáms. Táknræn mótmæli vegna umdeildra breytinga á latínukennslu skólans beinast að rektor skólans og eiga rætur að rekja rúm 170 ár aftur í tímann. Innlent 2. mars 2026 22:17
Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík og fyrrverandi borgarstjóri, og Milla Ósk Magnúsdóttir, yfirframleiðandi hjá Act 4, buðu til kokteilboðs á 101 Hóteli á föstudagskvöld. Lífið 2. mars 2026 16:59
Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga konu fimm sinnum á tæplega þriggja mánaða tímabili árið 2022 og svipta hana frelsi þrívegis. Innlent 2. mars 2026 16:22
Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Áhrifavaldurinn, dansarinn og raunveruleikastjarnann Ástrós Traustadóttir og hennar heittelskaði Adam Karl Helgason matgæðingur hafa sett íbúð sína á sölu. Lífið 2. mars 2026 13:29
Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að með fráfalli Davíðs Oddssonar fyrrverandi formanns flokksins, borgarstjóra og forsætisráðherra sé fallinn frá einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu íslenska lýðveldisins. Hún segir boð á heimili Davíðs fyrir jól eina af þeim minningum sem sitji eftir. Innlent 2. mars 2026 12:00
Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Landsmenn vöknuðu flestir við þau tíðindi að einn áhrifamesti stjórnmálamaður sögunnar er fallinn frá. Sífellt fjölgar í hópi þeirra sem minnast Davíðs á samfélagsmiðlum og koma kveðjur úr öllum áttum; bæði þeirri hægri og vinstri en líka frá samfélagi samkynhneigðra. Lífið 2. mars 2026 08:19
Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Framboðslisti Framsóknar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík var samþykktur í dag á tvöföldu kjördæmaþingi í Víkingsheimilinu í Safamýri. Innlent 28. febrúar 2026 17:17
Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Hildur Björnsdóttir, Bjarni Eggerts Guðjónsson, Brynjar Þór Níelsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason verða í efstu fimm sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Listinn var kynntur í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll nú fyrir stundu. Innlent 28. febrúar 2026 16:51
Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík kynnir framboðslista sinn fyrir komandi borgarstjórnarkosningar klukkan 16:30 í dag. Listinn verður kynntur í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll, að loknum fundi fulltrúaráðs sem hófst klukkan 15:00, þar sem tillaga kjörnefndar að framboðslista verður afgreiddur. Innlent 28. febrúar 2026 16:00
Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Þrír karlmenn sæta ákæru fyrir frelsissviptingu og tilraun til ráns, með því að hafa svipt fjórða manninn frelsi og beitt hann ofbeldi og hótunum í því skyni að reyna að hafa af honum verðmæti. Mennirnir eru meðal annars grunaðir um að hafa slegið fórnarlamb sitt með felgulykli, ekið út að Gróttuvita og veitt manninum ítrekuð högg á meðan bílferðinni stóð. Meint brot áttu sér stað sumarið 2020, fyrir tæpum sex árum síðan, en málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars næstkomandi. Innlent 27. febrúar 2026 23:57
„Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Það eru verulega spennandi kosningar í vændum í Reykjavík að sögn Ólafs Þ. Harðarsonar stjórnmálafræðings, en spennan gæti magnast enn frekar eftir að kosningaúrslitin liggja fyrir í vor. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tróna yfir aðra flokka í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu á fylgi flokkanna í borginni og hið nýja Vinstri gæti náð inn að minnsta kosti tveimur fulltrúum úr röðum VG og Vors til vinstri. Innlent 27. febrúar 2026 22:32
Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Lögmaður telur Reykjavíkurborg hafa bakað sér margra milljóna skaðabótaskyldu í kjölfar uppsagnar verktaka við Ölduselsskóla. Engar upplýsingar sé að fá um ástæðuna. Loka þurfti skólanum vegna öryggismála eftir uppsögnina. Borgin biðst afsökunar á því hvernig staðið var að málinu. Innlent 27. febrúar 2026 19:52
Rósin áfram í hnappagati Samfylkingarinnar Stjórn Samfylkingarfélagsins Rósarinnar hefur lokið viðræðum sínum um mögulegt samstarf við stjórnmálasamtökin Vor til vinstri, sem bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík í sameiningu með Vinstri grænum undir nafni Vinstrisins. Niðurstaða viðræðnanna er sú að Rósin hyggst ekki fara í samstarf með Vinstrinu, heldur halda áfram starfi sínu innan Samfylkingarinnar. Innlent 27. febrúar 2026 17:41
„Valsreiturinn... í Pyongyang“ Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti mynd á Facebook af Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu í höfuðborginni Pyongyang og segir sjást „glöggt“ að Kim-stjórnin hafi „skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi“. Umræður hafa spunnist um líkindi milli norður-kóresku bygginganna við Valsreitinn og Borgartúnið. Lífið 27. febrúar 2026 17:10
„Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri var ekki viðstödd kynningu á framboðslista Samfylkingarinnar í borginni síðdegis í gær. Eftir því var tekið að Heiða Björg var ekki á hópmynd sem tekin var og frambjóðendur hafa keppst við að dreifa á samfélagsmiðlum. Pólitískir andstæðingar telja fjarveru Heiðu benda til ósættis innan raða Samfylkingarinnar. Innlent 27. febrúar 2026 15:17
Samfylking stærst en Sjálfstæðisflokkur skammt undan Samfylking mælist með mest fylgi í Reykjavík, 24 prósent, en Sjálfstæðisflokkur fylgir henni fast á hæla með 22,7 prósent, samkvæmt nýjum Borgarvita Maskínu. Nýtt framboð Vinstrisins mælist með 9,1 prósents fylgi Innlent 27. febrúar 2026 14:13