Skaut á bíla af handahófi með riffli Samúel Karl Ólason skrifar 13. maí 2026 09:56 Eftir að hann var særður skaut Tyler Brown úr riffli sínum þar til skotin kláruðust og gafst hann þá upp. AP/Yussef Adel Maður vopnaður hálfsjálfvirkum riffli skaut af handahófi á bíla á meðan hann gekk eftir fjölförnum vegi í Cambridge, sem er nærri Boston í Bandaríkjunum, í gær. Maðurinn skaut á fjölda bíla og þar á meðal einn lögreglubíl og er hann sagður hafa hleypt af meira en sextíu skotum.
Hann banaði þó engum en særði tvo, áður en hann var skotinn þegar lögregluþjónn og uppgjafarhermaður sem var á vettvangi skutu á manninn. Byssumaðurinn heitir Tyler Brown og er 46 ára gamall. Hann verður ákærður fyrir ýmis brot vegna skothríðarinnar en samkvæmt AP fréttaveitunni hafði honum nýverið verið sleppt af geðdeild. Umdeildur vægur dómur Um klukkustund áður en hann hóf skothríðina ræddi Brown við reynslulausnarfulltrúa sinn gegnum fjarfundarbúnað. Honum hafði verið sleppt á reynslulausn eftir að hafa verið sakfelldur fyrir morðtilraun, brot á vopnalögum og aðra glæpi. Honum var sleppt síðasta föstudag. Árið 2020 var Brown handtekinn fyrir að skjóta á lögregluþjóna í Boston. Þá kröfðust saksóknarar þess að hann myndi sitja inni í að minnsta kosti tíu ár. Bentu þeir á alvarleika glæpa hans og það að hann var þá á skilorði fyrir líkamsárás og fyrir að ógna vitni í öðru máli. Dómari dæmdi Brown þó í fimm til sex ára fangelsi, mínus þá átján mánuði sem hann hafði setið í gæsluvarðhaldi, og þriggja ára á skilorði. Dómurinn var mjög umdeildur á sínum tíma og lýstu embættismenn í Boston yfir áhyggjum vegna þess að ekki væri verið að refsa ofbeldismönnum nægilega. Sagðist vilja deyja Á fundinum með reynslulausnarfulltrúanum sat hann með byssuna í höndunum og sagðist vera byrjaður í neyslu aftur. Þá sagðist hann vilja svipta sig lífi. Fulltrúinn hringdi á lögregluna. Myndband af því þegar Brown var handtekinn má sjá í spilaranum hér að neðan. Á myndbandinu sést þegar hann er særður og hvernig hann skýtur til baka, þar til skotin í byssunni klárast. Rachael Saveriano er ein þeirra sem Brown skaut á. Hún sagði blaðamönnum Boston Globe (áskriftarvefur) að hún hefði setið föst í bíl sínum og Brown hefði nálgast hana þegar áðurnefndur uppgjafarhermaður kom og bjargaði henni. Sá er sagður vera fyrrverandi landgönguliði. Saveriano segir landgönguliðann hafa dregið hana út úr bílnum og sagt henni að hlaupa. Hún sá hann skjóta í átt að Brown þegar hún hljóp af stað. „Hann er ótrúleg hetja. Hann var svo rólegur og hikaði ekki.“ Landgönguliðinn sagði rannsakendum að hann hefði verið á ferðinni þegar hann heyrði skothríð. Hann þjálfaði áður aðra hermenn í skotfimi og var með skammbyssu í öryggisskáp í bíl sínum. Hann segist hafa skotið átta skotum í átt að Brown. Ekki liggur fyrir hvort landgönguliðinn eða lögregluþjónn hæfði Brown, né hve alvarlega hann var særður.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Erlend sakamál Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira