Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, verður á ferðinni um um Suðurland í dag ásamt maka sínum Birni Skúlasyni. Innlent 21.5.2026 08:53
Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag Vegagerðin vinnur að viðgerðum á milli klukkan 9 og 21 í dag á um 1.400 m kafla á Suðurlandsvegi við Þingborg, í austurátt frá Selfossi. Innlent 20.5.2026 07:21
Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Framfaralistinn í Flóahreppi hlaut 76,8 prósent atkvæða í kosningunum í gær og bætti við sig manni. T-listinn fékk 23,2 prósent atkvæða og einn mann kjörinn. Innlent 17.5.2026 06:22
Tæplega tveggja milljóna króna gjöf frá kvenfélögunum í Flóahreppi Kvenfélögin þrjú, sem starfrækt eru í Flóahreppi komu færandi hendi til Sigurhæða á Selfossi í vikunni og gáfu starfseminni 1,7 milljón króna, sem er ágóði af basar félaganna nýlega. Sigurhæðir er fyrsta og eina samhæfða þjónustan við þolendur kynbundins ofbeldis í sunnlensku samfélagi. Magnús Hlynur Hreiðarsson segir frá. Innlent 29. nóvember 2025 13:04
Glæsilegir forystuhrútar á Syðra – Velli í Flóa Þeir eru fallegir forystu sauðirnir hjá bónda í Flóanum, sem eru líka mjög fallega hyrndir og vekja alls staðar mikla athygli þar sem þeir koma fyrir glæsileika sinn. Innlent 15. nóvember 2025 21:38
Flóamenn taka fálega í þreifingar Árborgara Sveitastjórn Flóahrepps hafnaði erindi nágrannanna í Árborg um eftirláta þeim land austan Selfoss. Til greina kemur að kanna hug íbúa í hreppnum til sameiningar sveitarfélaganna sem sveitarstjórnin sér sjálf ekki rök fyrir. Innlent 17. september 2025 11:52
3,7 stiga skjálfti í Árnesi Snarpur skjálfti átti sér stað við Ketilsstaðaholt í Holtum í Rangárvallasýslu klukkan 08:39 í morgun. Hann var 3,7 stig að stærð. Innlent 11. september 2025 08:47
Árborg girnist svæði Flóahrepps Bæjarráð Árborgar hefur óskað eftir samræðum við Flóahrepp um mögulega tilfærslu sveitarfélagamarkanna og til að ræða mögulega ávinninga við sameiningu sveitarfélaganna tveggja. Mörkin milli sveitarfélaganna liggja alveg við Selfoss svo að golfvöllur Golfklúbbs Selfoss er í öðru sveitarfélagi en bærinn sem hann er kenndur við. Innlent 6. september 2025 11:05
Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir árekstur við framúrakstur Ökumaður mótorhjóls var fluttur slasaður á sjúkrahús eftir að hafa lent í árekstri við bíl á Suðurlandsvegi síðdegis í dag. Hann er ekki talinn vera í lífshættu. Innlent 31. ágúst 2025 19:06
Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Virkjanakostir í Héraðsvötnum í Skagafirði, þar á meðal 156 megavatta Skatastaðavirkjun, fara ekki í verndarflokk heldur í biðflokk rammaáætlunar. Þetta er samkvæmt tillögu sem Jóhann Páll Jóhannsson, ráðherra orku- og umhverfismála, hyggst leggja fyrir Alþingi í haust og hann kynnir núna í samráðsgátt stjórnvalda. Ennfremur leggur hann þar til að Urriðafossvirkjun í Þjórsá verði í nýtingarflokki en ekki í biðflokki. Innlent 11. ágúst 2025 09:29
Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Búið er að hanna nýja Ölfusárbrú að mestu leiti sem er áætlað að verði tekin í notkun haustið 2028. Staðarstjóri framkvæmda segir framkvæmdir við mislæg gatnamót að hefjast sem tengir nýjan veg frá brúnni við Hringveg eitt. Innlent 7. ágúst 2025 13:31
Umferðarslys austan Selfoss Tveggja bíla árekstur varð við Þingborg austan Selfoss á fjórða tímanum í dag. Bílarnir eru óökuhæfir og verða dregnir af vettvangi. Slys á fólki eru ekki talin alvarleg. Búið er að opna fyrir umferð um veginn. Innlent 12. júní 2025 15:29
Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Dráttarvélasýning, saumasýning, kökuskreytingakeppni og þjóðdansar, auk vöfflubaksturs verður meðal annars á boðstólnum í dag á hátíðinni „Fjör í Flóa“ í Flóahreppi austan við Selfoss. Lífið 31. maí 2025 12:18
Margrét Hauksdóttir er látin Margrét Hauksdóttir, húsmóðir og fyrrverandi ráðherrafrú, varð bráðkvödd í sumarhúsi sínu á Hallandaengjum í Flóa í fyrradag, sjötíu ára að aldri. Hún lætur eftir sig eiginmanninn Guðna Ágústsson, dæturnar Brynju, Agnesi og Sigurbjörgu og sjö barnabörn. Innlent 27. maí 2025 07:46
„Rosalega erfitt“ að keppa við innflutt grænmeti Garðyrkjubændum í ylrækt reynist erfitt að keppa við innflutt grænmeti eins og tómötum, sem eru til dæmis seldir á 1200 krónur kílóið á meðan íslenskir tómatar eru seldir á 2.800 krónur upp í 3.000 krónur kílóið. Á sama tíma hefur orðið gríðarleg hækkun á rafmagni til garðyrkjubænda en um síðustu mánaðarmót þurfti garðyrkjustöð á Flúðum til dæmis að borga 16 milljónir í rafmagn fyrir einn mánuð. Innlent 18. apríl 2025 22:01
Ætli það sé heitt vatn í landi Hallanda í Flóahreppi? Sveitarfélagið Árborg fyrir hönd Selfossveitna hefur tryggt sér einkarétt til jarðhitarannsókna, borunar eftir jarðhita og til virkjunar og hagnýtingar á jarðhita í landi Hallanda í Flóahreppi. Um er að ræða svæði austan Selfoss. Innlent 12. apríl 2025 14:07
„Gamla Þingborg“ í Flóa verður rifin fyrir breikkun þjóðvegarins Guðni Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra skynjar miklar tilfinningar hjá íbúum Flóahrepps vegna þeirrar ákvörðun Vegagerðarinnar að kaupa „Gömlu Þingborg“, sem er hús byggt 1927 og var samkomuhús sveitarinnar til fjölda ára. Vegagerðin hefur húsið á 72,5 milljónir króna, en rífa á húsið til að koma tveir plús einn vegi fram hjá því. Innlent 26. mars 2025 20:02
Tveir bílar og hestakerra skullu saman við Selfoss Árekstur varð milli tveggja bíla og hestakerru á Suðurlandsvegi rétt austan við Selfoss. Fimm voru í bílunum og eru meiðsl talin minniháttar. Innlent 18. mars 2025 16:44
Boris Spasskí grafinn með viðhöfn í Moskvu Rússneski skákmeistarinn Boris Spasskí var jarðsettur með viðhöfn í Moskvu í vikunni í kirkjugarði þar sem margar af hetjum Rússlands og Sovétríkjanna hvíla. Útförin var gerð frá höfuðkirkju rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. Innlent 7. mars 2025 22:11
Telur að reyna ætti að fá Spasskí Það væri einnar nætur virði að reyna að fá skákmeistarann Boris Spasskí jarðsettan við hlið Bobby Fischers á Íslandi. Þetta segir Guðmundur G. Þórarinsson, sem var forseti Skáksambandsins árið sem einvígi aldarinnar var háð á Íslandi. Innlent 3. mars 2025 21:00
Væri ekki óviðeigandi að þeir hvíldu saman „Það væri kannski ekkert óviðeigandi að þessir gömlu kappar og keppinautar… að þeir væru svona hvor öðrum til skemmtunar og ánægju eftir að þessari jarðvist lýkur.“ Innlent 28. febrúar 2025 09:25
Vilja að bankinn „láti af mismunun“ og telja rök hans ekki halda vatni Sveitarstjórn Flóahrepps gagnrýnir vinnubrögð Landsbankans og þær reglur sem bankinn hefur viðhaft vegna lána til íbúðarhúsnæðis í dreifbýli. Sveitarstjórnin telur röksemdir bankans ekki standast skoðun og er það mat sveitarstjórnar að nálgun bankans hafi neikvæð áhrif og geri einkaaðilum og sveitarfélögum erfitt fyrir í þeirri uppbyggingu sem hafi staðið yfir og framundan sé á svæðinu. Innlent 10. febrúar 2025 17:27
„Bóndinn á svæðinu er nú ofboðslega rólegur yfir þessu“ Flóð vegna klakastíflu í Hvítá við Brúnastaði er að mestu samt við sig miðað við í gærkvöldi og hafa litlar breytingar orðið á svæðinu að sögn náttúruvársérfræðings Veðurstofu Íslands. Lögreglan á Suðurlandi, almannavarnir og Veðurstofan fylgjast grannt með stöðu mála. Innlent 4. janúar 2025 14:34
Aukið flóð við Hvítá Flóð vegna klakastíflu í Hvíta við Brúnastaði hefur aukist talsvert síðan í gær að sögn lögreglu og ómögulegt er að segja til um þróunina. Veðurstofa, almannavarnir og lögregla fylgjast grannt með málinu. Innlent 3. janúar 2025 11:59