Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Einn var fluttur slasaður á Landspítala nú síðdegis eftir bílveltu í Hrútafirði á Þjóðvegi 1 gegnt Borðeyri. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan 16:40 á efsta forgangi vegna slyssins, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Innlent 1.1.2026 18:27
Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra var hafnað í íbúakosningu sem fór fram 28. nóvember – 13. desember 2025. Innlent 13.12.2025 19:07
Kjarninn og hismið Kynningarfundir um tillögu að sameiningu Húnaþings vestra og Dalabyggðar hafa nú verið haldnir bæði á Hvammstanga og í Búðardal auk íbúafunda á báðum stöðum í apríl og október. Skoðun 25.11.2025 13:46
Þrír fluttir með þyrlu en enginn í lífshættu eftir tvo árekstra á Norðvesturlandi Innlent 23.11.2025 22:09
Kjósa um sameiningu sveitarfélaganna í lok nóvember og desember Sveitarstjórnir Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafa samþykkt tillögu sérstakrar samráðsnefndar að íbúakosning fari fram í sveitarfélögunum tveimur um sameiningu dagana 28. nóvember til 13. desember næstkomandi. Innlent 18. september 2025 13:17
Sjö eldislaxar fundist í fjórum ám Erfðagreining á 22 löxum úr fjórum ám sem bárust Hafrannsóknastofnun leiddi í ljós að sjö þeirra væru eldislaxar. Sex þeirra eru taldir koma úr fiskeldi í Dýrafirði en uppruni eins er tilrannsóknar. Innlent 29. ágúst 2025 15:18
Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Miðfjarðará hefur verið lokað með öflugum grjótgarði til að koma í veg fyrir að sjókvíaeldislax komist í ána. Formaður veiðifélags árinnar segir stjórnvöld hafa dregið lappirnar í málaflokki sjókvíaeldis og vill að stigið verði fastar til jarðar í nýju frumvarpi. Innlent 17. ágúst 2025 19:30
Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Björgunarsveitin Húnar Hvammstanga hafði í nógu að snúast í dag á Holtavörðuheiðinni. Vonskuveður var þar sem olli truflunum og erfiðleikum á meðal ferðalanga. Innlent 15. ágúst 2025 22:39
Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Jepplingur tók fram úr öðrum bíl við Holtavörðuheiði um hádegisleytið í gær þar sem er óbrotin lína á veginum. Litlu munaði á að jepplingurinn endaði á bíl sem ók úr gagnstæðri átt. Rétt áður en bílarnir lentu saman tókst ökumanni jepplingsins að koma ökutæki sínu aftur á réttan vegarhelming. Innlent 15. júlí 2025 15:00
Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp undir forystu Vegagerðarinnar til að kanna kosti þess og galla að skilgreina vegina sem mynda hringleið um Vestfirði sem hringveg sem fengi vegnúmerið 2. Þetta er í samræmi við tillögu nefndar forsætisráðherra um eflingu byggðar á Ströndum. Innlent 20. apríl 2025 10:10
Níu af þrettán styrkjum fara í kjördæmi ráðherra Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 140 milljónum til þrettán verkefna á landsbyggðinni til að efla byggðir landsins. Níu af verkefnunum þrettán eru í kjördæmi ráðherrans. Innlent 11. mars 2025 14:35
Holtavörðuheiðinni lokað Holtavörðuheiðinni hefur verið lokað vegna færðar og veðurs. Appelsínugul veðurviðvörun fer í gildi á svæðinu í kvöld. Innlent 2. mars 2025 13:13
Fjórtán metra hvalur í Guðlaugsvík Fjórtán metra hvalur fannst í Guðlaugsvík á Ströndum í upphafi þessarar viku. Í tilkynningu Lögreglunnar á Norðvesturlandi segir að um sé að ræða búrhval og að til samanburðar megi áætla að hvalurinn sé jafnlangur og þrjár Tesla Y bifreiðar eða sjö Cleveland þriggja sæta sófar lagðir samsíða hvalnum. Innlent 28. janúar 2025 14:08
Holtavörðuheiðin opin á ný Búið er að opna veginn um Holtavörðuheiði á nýjan leik. Innlent 15. janúar 2025 10:22
Lagðist með hendur fyrir aftan bak eftir að hafa stungið mann Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri, Pétur Atla Árnason, í fimm ára og þriggja mánaða fangelsi fyrir tilraun til manndráps og hótanir. Um tvö aðskilin mál er að ræða, en hnífur kom við sögu í báðum þeirra. Innlent 8. janúar 2025 19:08
Tugir svekktra barna þurftu að snúa við á Kjalarnesi Rúmlega 60 börn úr 7. bekk í Breiðagerðisskóla í Reykjavík lögðu spennt af stað í skólabúðirnar á Reykjum í Hrútafirði í morgun. Þau komust þó ekki lengra en á Kjalarnes, áður en ákvörðun var tekin um að snúa við vegna veðurs. Innlent 6. janúar 2025 12:00
Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Björgunarsveitir úr Húnavatnssýslu og uppsveitum Borgarfjarðar voru kallaðar út fyrr í kvöld eftir að tvær rútur lentu í vandræðum sökum hálku og vonskuveðurs á Holtavörðuheiði. Önnur rútan ók út af veginum. Holtavörðuheiðinni hefur verið lokað sökum veðurs. Innlent 23. desember 2024 20:50
Lýsa eftir konu með heilabilun Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur lýst eftir Soffíu Pétursdóttur. Hún er fædd árið 1941 og er með heilabilun en hún fór að heiman á Laugarbakka í Húnaþingi vestra í nótt eða í gærkvöldi. Innlent 14. nóvember 2024 13:21
Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Rekstrarstjóri bensínstöðvarinnar í Staðarskála segir farir starfsfólks síns ekki sléttar eftir samskipti við stóran hóp erlendra ferðamanna í gær. Hópurinn hafi gengið fram með svo miklum dónaskap að það hálfa væri meira en nóg. Innlent 11. nóvember 2024 12:04
Eins og þú kallar í skóginn….. – við þurfum að þora að ræða viðkvæmu málin Síðustu vikur hefur líðan ungmenna og birtingarmyndir að því er virðist mikillar vanlíðunar ákveðinna hópa þeirra verið mikið í umræðunni í kjölfar skelfilegra atburða. Þjóðin er í áfalli yfir þeim atburðum og hugur okkar er hjá aðstandendum þeirra sem í hlut eiga. Skoðun 23. september 2024 20:02
Þyrlusveitin kölluð til fjórum sinnum síðasta sólarhringinn Þyrlusveitir Landhelgisgæslunnar hafa sinnt fjórum útköllum síðasta sólarhringinn ofan á það að hafa sinnt viðbragði við Breiðamerkurjökli í gær. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrlusveitina hafa sinnt sjúkraflugi vegna bráðra veikinda á Hvammstanga, Hornbjargi og Grundarfirði og svo á skemmtiferðaskipi sem var um 150 sjómílur norður af Ísafirði. Innlent 27. ágúst 2024 11:20
Stórhættulegur framúrakstur á Holtavörðuheiði Róbert Marvin Gíslason, tölvunarfræðingur og rithöfundur, var litlu frá því að lenda í alvarlegum árekstri á Holtavörðuheiði á mánudag þegar bílstjóri sendibíls tók fram úr honum á glannalegan hátt, bíll kom nefnilega akandi úr hinni áttinni og mjóu munaði að hann skylli framan á sendibílinn. Innlent 17. júlí 2024 11:28
Tvö hjólhýsi fokin af veginum á Norðurlandi vestra Ekkert hjólhýsaveður er á Norðurlandi vestra þessa dagana. Eitt hjólhýsi fauk af veginum þar í dag og annað í gær. Lögreglan á svæðinu hefur beðið ökumenn með vagna í eftirdragi að leita í var. Innlent 12. júlí 2024 19:12
Holtavörðuheiði opin á ný Opnað hefur verið fyrir umferð um Holtavörðuheiði á ný en heiðinni var lokað á fimmta tímanum í dag eftir alvarlegt umferðarslys. Innlent 10. júlí 2024 20:34
Þyrla kölluð út vegna bílslyss á Holtavörðuheiði Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna áreksturs á Holtavörðuheiði og er hún á leið á vettvang. Lögregla hefur lokað fyrir umferð í báðar áttir á meðan aðgerðir standa yfir. Innlent 10. júlí 2024 16:47