Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Fiskeldisfyrirtækið First Water hefur lokið um ellefu milljarða króna fjármögnun, en um er að ræða útgáfu um sex milljarða króna breytanlegs skuldabréfs sem leidd sé af núverandi hluthöfum félagsins og um fimm milljarða króna lánsfjármögnun frá Landsbankanum og Arion banka. Viðskipti innlent 22.4.2026 14:35
Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. Innlent 21.4.2026 22:10
Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi á áttunda tímanum í kvöld. Einn var í bílnum en sá komst út úr honum af sjálfsdáðum. Innlent 21.4.2026 21:31
Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Aðalmeðferð í Gufunesmálinu svokallaða hófst í Landsrétti í morgun. Þar freista þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson þess að fá sautján ára fangelsisdómum fyrir manndráp hnekkt og Matthías Björn Erlingsson fjórtán ára dómi. Ríkissaksóknari lætur reyna á sýknu ungrar konu sem var ákærð fyrir að lokka fórnarlambið út af heimili sínu. Þá er hlutur ungs karlmanns sem var sakfelldur fyrir peningaþvætti undir en ákvörðun refsingar hans var frestað í héraði. Innlent 15. apríl 2026 10:10
Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 14. apríl 2026 08:01
Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Maður sem var hífður upp úr Ölfusá á laugardag er látinn. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en tilkynning barst um mann í ánni um fjögurleytið á laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögregluembættinu sem hyggst ekki veita frekari upplýsingar um málið. Innlent 13. apríl 2026 18:27
„Þetta er erfiður mánudagur“ Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni. Innlent 13. apríl 2026 15:37
Maður hífður upp úr Ölfusá Sigmaður Landhelgisgæslunnar hífði mann upp úr Ölfusá rétt fyrir klukkan fimm en leit hafði staðið yfir að manninum í ánni frá því klukkan rúmlega fjögur í dag. Innlent 11. apríl 2026 16:34
Ekið á mann í Þrengslunum Ekið var á bílstjóra flutningabíls í Þrengslunum í dag. Hann hafði að sögn lögreglu lent í vandræðum í brekku vegna mikillar hálku og stóð fyrir utan bílinn þegar öðrum bíl var ekið utan í hann. Innlent 28. mars 2026 13:37
Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Herjólfur bíður í um tuttugu mínútna fjarlægð frá Þorlákshöfn eftir því að sigla að landi. Ófært er eins og er. Skipið lagði af stað klukkan níu í morgun og var áætlað rétt fyrir klukkan 12 að landi. Innlent 26. mars 2026 12:33
Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Innlent 25. mars 2026 22:10
Hamingjan er ekki tilviljun, hún er afleiðing Af hverju eru íbúar í sumum sveitarfélögum ánægðari en í öðrum? Ef við vitum hvernig hamingjan verður til, af hverju er það ekki gert alls staðar? Er hamingjan einfaldlega spurning um ákvarðanir? Skoðun 20. mars 2026 10:31
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. Innlent 4. mars 2026 08:30
Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi segist styðja lista Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi af heilum hug og hann lofar því að hann muni ekki flytja aftur til Vestmannaeyja en orðrómur um að hann blandist í bæjarmálapólitíkina þar hefur lifað góðu lífi. Innlent 3. mars 2026 16:30
Hlutverk sem ég tek með auðmýkt og ábyrgð Í gærkvöldi, á fjölmennasta aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins Ægis í Ölfusi frá upphafi, var framboðslisti D-listans samþykktur og mér falin sú mikla ábyrgð að leiða listann í komandi kosningum. Það er heiður sem ég tek með auðmýkt og djúpu þakklæti. Skoðun 3. mars 2026 16:02
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3. mars 2026 06:34
D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Sjálfstæðisfélagið Ægir í Ölfusi hefur kynnt D-listann í Ölfusi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Athygli vekur að efstu sex sætin eru skipuð sömu frambjóðendum og fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 en eina breytingin er sú að Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi og Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar, býtta á sætum. Innlent 2. mars 2026 23:02
Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Vegagerðin hefur lagt fram tillögu um gjaldskrá fyrir nýja Ölfusárbrú, þar sem lagt er til að stakt gjald fyrir ferð um brúna yrði 495 krónur. Miðað er við verðlag í október 2028, þegar stefnt er að því að opna brúna. Innlent 20. febrúar 2026 06:44
Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Leikskólar í Ölfusi verða gjaldfrjálsir frá og með næstu mánaðamótum. Á fundi bæjarráðs í dag var samþykkt að öllum börnum verði boðin 36 tíma vistun á viku án endurgjalds, óháð tekjum foreldra. Með þessu fellur tekjutenging niður og sama fyrirkomulag gildir um öll börn. Innlent 19. febrúar 2026 14:20
Frítt Strax frá og með næstu mánaðamótum verða leikskólar í Ölfusi gjaldfrjálsir. Með ákvörðun sem var tekin á fundi bæjarráðs núna fyrr í dag mun öllum börnum standa til boða 36 tíma skólaganga foreldrum þeirra að kostnaðarlausu, án tillits til tekna þeirra. Skoðun 19. febrúar 2026 13:45
Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsvegi, við gatnamótin að Þorlákshöfn, þegar vörubíll hafnaði aftan á fólksbíl. Lokað var fyrir umferð um veginn um tíma. Einn var fluttur á sjúkrahús. Innlent 13. febrúar 2026 11:21
Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Íslenski drykkjarframleiðandinn Icelandic Glacial er nýr styrktaraðili liðs á LIV-mótaröðinni í golfi. Sádar stofnuðu mótaröðina til höfuðs PGA-mótaröðinni árið 2022 til þess að fegra eigin ímynd með svokölluðu íþróttaþvætti. Viðskipti innlent 10. febrúar 2026 08:57
Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028. Innlent 9. febrúar 2026 19:45
„Þörfin er gríðarleg“ „Þörfin er gríðarleg því bara á næstu 5 árum þurfum við hátt í 100 ný rými hér á Suðurlandi. Það má ekki missa sjónar á því að þetta mál snýst ekki um steypu eða stefnu, þetta snýst um það hvernig aðbúnað við viljum tryggja eldri borgurunum okkar. Það þarf að hugsa út fyrir boxið og viðurkenna að það gerir enginn neitt einn. Ríki, sveitarfélög og einkaaðilar þurfa að sameina krafta sína ef ekki á illa að fara. Við hér í Ölfusi ætlum að verða hluti af þessari lausn, með hagsmuni eldri borgara að leiðarljósi,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss, sem berst nú fyrir því að hjúkrunarheimili verði byggt í Þorlákshöfn. Innlent 9. febrúar 2026 17:04