Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Lögregla hóf eftirlit með einum ákærðu í Straumsvíkurmálinu svokallaða eftir að hann kom hingað til lands með tvo kafarabúninga og tvær svokallaðar neðansjávarvespur í bíl sínum. Innlent 23.9.2026 14:16
Líkamsárás í Breiðholti Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um líkamsárás í Efra-Breiðholti. Brotaþoli er sagður hafa hlotið minniháttar áverka og var einn handtekinn. Sá var í annarlegu ástandi og vistaður í fangageymslu. Innlent 23.9.2026 06:25
Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Lögreglunni á stöð fjögur, sem sinnir verkefnum í Grafarvogi, Mosfellsbæ og í Árbænum, barst tilkynning um bíl utan vegar en í ljós kom að ökumaður hafði misst stjórn á bílnum og hafnað á vegg. Sá hinn sami hlaut þó einungis minni háttar áverka en fjarlæga þurfti bílinn með kranabifreið. Ekki liggur fyrir hvort um hraðakstur eða grun um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna hafi verið að ræða. Innlent 20.9.2026 18:02
Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Nýr Tækniskóli verður ekki í Hafnarfirði eftir að bæjaryfirvöld flöskuðu á að kaupa lóðir sem þau höfðu lofað. Varaformaður bæjarráðs segir það vonbrigði að missa skólann úr bænum. Innlent 15. september 2026 12:00
Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Nýbygging Tækniskólans verður ekki í Hafnarfirði líkt og stóð til eftir að bænum tókst ekki að afhenda skólanum lóðina sem fyrirhuguð var undir skólann í tæka tíð. Innlent 14. september 2026 17:55
Slökkvilið í Hafnarfjörð Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna reyks í heimahúsi í Hafnarfirði á fimmta tímanum í dag. Innlent 13. september 2026 16:44
Sökk í þriðja sinn í höfninni Báturinn Jökull sökk í nótt í Hafnarfjarðarhöfn. Þetta er í þriðja skiptið sem báturinn sekkur í höfninni. Að sögn stjórnarmanns hafnarinnar stóð til að fjarlæga bátinn úr höfninni á næstu dögum. Innlent 13. september 2026 13:32
Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Að eiga barn er Guðs gjöf og ekki eru allir svo heppnir að eignast barn. Að eiga fatlað barn er einnig Guðs gjöf, er einhver munur? Já, mikill munur, fatlaða barnið þarf meiri þjónustu og umönnun en það „heilbrigða“ oft á tíðum. Skoðun 10. september 2026 13:15
Útför Steins Ármanns Steinn Ármann Magnússon leikari var jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði klukkan 13. Útförinni var streymt á Vísi. Innlent 10. september 2026 12:00
Jarðsyngur sinn besta vin Útför Steins Ármanns Magnússonar leikara verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, heimabæ leikarans, klukkan 13 í dag. Davíð Þór Jónsson, prestur og besti vinur Steins, jarðsyngur. Útförinni verður streymt á Vísi. Innlent 10. september 2026 10:03
Sex gistu í fangageymslu í nótt Tveir voru handteknir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir söludreifingu fíkniefna og ólöglega dvöl. Alls gistu sex í fangageymslu lögreglunnar í nótt. Innlent 9. september 2026 06:27
Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Einn var vistaður í fangaklefa fyrir að hafa verið ógnandi og í annarlegu ástandi með hníf innandyra. Hann er sömuleiðis grunaður um vörslu fíkniefna. Innlent 8. september 2026 06:30
Tvær tilkynningar um eld Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um eldsvoða á hóteli í Hlíðunum. Í raun reyndist mikill reykur koma frá bakaraofni á hóteli. Innlent 7. september 2026 06:17
Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Ökumaður missti stjórn á bifhjóli sínu með þeim afleiðingum að hann keyrði út af Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði á þó nokkrum hraða. Innlent 6. september 2026 15:29
Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Bæjarráð Hafnarfjarðarbæjar hefur samþykkt að fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara og sameiginlegra bifreiðageymslna. Markmiðið er að bílastæði færist í auknum mæli neðanjarðar. Innlent 4. september 2026 13:50
Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Bíllinn sem þrjú ungmenni voru í þegar hann hafnaði utan vegar á Krýsuvíkurvegi með þeim afleiðingum að öll þrjú létust var á yfir tvö hundruð kílómetra hraða þegar slysið varð. Eldur kviknaði í bílnum þar sem hann lenti í hrauninu. Þrír bílar til viðbótar voru á vettvangi þegar slysið varð, en eitt ungmennanna var erlendur ríkisborgari. Innlent 2. september 2026 07:01
Minningarstundir vegna andlátanna Minningarstund verður haldin í Lágafellskirkju vegna andláts Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur. Einnig verður minningarstund um Benjamín Guðmundsson í Háteigskirkju. Þau létust bæði í umferðarslysi á Krísuvíkurvegi aðfaranótt mánudags. Innlent 1. september 2026 16:05
Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ræðir nú við vitni vegna banaslyssins á Krýsuvíkurvegi þar sem þrjú ungmenni létust. Önnur stúlkan var nemandi í Menntaskólanum við Sund og í gærkvöldi fór fram kyrrðarstund í Langholtskirkju fyrir nemendur. Innlent 1. september 2026 11:32
„Engin orð ná utan um slíkan missi“ Halla Tómasdóttir forseti vottar aðstandendum ungmennanna sem létust í umferðarslysi við Krýsuvíkurveg í nótt samúð sína. Guðrún Karls Helgudóttir biskup biður fyrir þeim sem eiga um sárt að binda. Innlent 31. ágúst 2026 23:31
Öll hin látnu um og undir tvítugu Ungmennin þrjú sem létust í umferðarslysi við Kýsuvíkurveg í nótt voru fædd árin 2005, 2007 og 2009. Innlent 31. ágúst 2026 20:10
Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Ný gosdrykkjaframleiðsla hófst í Hafnarfirði í dag þegar Gosfélagið tók í gagnið nýja framleiðslulínu fyrir Klaka. Í tilkynningu kemur fram að stefnt sé að því að afkastageta verksmiðjunnar verði um 70 milljón lítrar á ári. Viðskipti innlent 31. ágúst 2026 14:30
Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Tvær stúlkur og einn piltur létust þegar bíll þeirra hafnaði utan vegar við Krýsuvíkurveg í nótt. Lögregla og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka nú tildrög slyssins. Innlent 31. ágúst 2026 14:08
Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt bílslys varð á Krýsuvíkurvegi í nótt. Lögregla hefur ekki viljað veita upplýsingar um slysið en boðar tilkynningu í dag. Innlent 31. ágúst 2026 09:45
Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði Í það minnsta fjórir gistu í fangageymslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag en mestur erill var hjá fulltrúum á stöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Þar var meðal annars maður sem reyndi að flýja brott af vettvangi og atvikaðist atburðarrásin þannig að lögregla beitti piparúða við handtökuna. Innlent 30. ágúst 2026 17:27