Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Hildigunnur Thorsteinsson veðurstofustjóri segir nýjar skýrslur um hættusvæði vegna hraunrennslis kalla á umræðu um það hvort setja þurfi skýrari reglur um hvar megi skipuleggja byggð. Innlent 22.4.2026 13:50
Styrkjum heilsubæinn Hveragerði Hveragerði hefur lengi verið þekkt fyrir að vera heilsubær, staður þar sem nálægðin við náttúruna skapar kjöraðstæður fyrir vellíðan fólks. Það er einmitt þessi nálægð sem laðar marga að Hveragerði, þar á meðal okkur sem skrifum þessa grein. Ekki þarf að fara langt til að komast út í náttúruna. Fossflötin, Hamarinn, Reykjafoss, Reykjafjall og Reykjadalur eru allt hluti af daglegu lífi okkar og þessi svæði, og fleiri til, bjóða upp á fjölbreytta möguleika til útivistar. Skoðun 22.4.2026 07:30
Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. Innlent 21.4.2026 22:10
Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Fólksfjölgun var minni í fyrra en spár gerðu ráð fyrir og þannig náðist að vinna upp skuld í íbúðauppbyggingu. Enn eru þó langir biðlistar eftir leigu- og félagslegu húsnæði og mikil þörf á frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma og leikskólaplássa. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á Íslandi. Innlent 9. apríl 2026 09:01
Samfélagsgróðurhús Gróðurhús og garðyrkja eru stór hluti af sögu og menningu Hveragerðis. Nú þegar sú starfsemi er á undanhaldi þarf að huga að því hvernig hægt sé halda þessari menningararfleifð á lofti og láta heilsubæinn blómstra. Í hugmyndavinnu S-listans hefur komið fram frábær hugmynd um að stofna samfélagsgróðurhús sem gæti verið samkomustaður fyrir íbúa á öllum aldri. Þar skapast tækifæri til ræktunar, fræðslu, sköpunar og viðburðahalds af ýmsu tagi. Gott dæmi um samfélagshús er Grønttorvethúsið í Valby í Danmörku en það hús býður upp á fjölnota rými fyrir íbúa í hjarta hverfisins. Nokkur samfélagsgróðurhús eru svo í næsta nágrenni. Ekki er um hefðbundinn rekstur sveitarfélags að ræða heldur lifandi samfélag íbúanna sem bera sameiginlega ábyrgð enda eru þeir sammála um að verkefnið stuðli að vellíðan þeirra og samkennd. Skoðun 7. apríl 2026 10:47
Samfella í verki - Framtíðarsýn Okkar Hveragerðis Í gær, á 8 ára afmælisdegi bæjarmálafélagsins Okkar Hveragerðis, kynntum við með stolti framboðslista Okkar Hveragerðis fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Skoðun 29. mars 2026 11:31
Pétur Markan bæjarstjóraefni Okkar Hveragerðis Framboðslisti Okkar Hveragerðis var kynntur á átta ára afmæli bæjarmálafélagsins í dag. Pétur G. Markan bæjarstjóri Hveragerðisbæjar er bæjarstjóraefni listans. Innlent 28. mars 2026 22:24
Gott samfélag verður ekki til af sjálfu sér Það er best að búa í Hveragerði, segir 9 ára sonur minn reglulega - og honum er ég mjög sammála. Góð samfélög verða ekki til af tilviljun. Þau verða til með skýrum ákvörðunum, ábyrgri stjórnun og framtíðarsýn. Skoðun 27. mars 2026 16:32
Uppbygging Hveragerðis og þróun innviða Þegar ég og maðurinn minn tókum þá ákvörðun að flytja í Hveragerði kom það á óvart hjá okkar nánustu. Staðan á fasteignamarkaðinum var einfaldlega þannig að fjögurra manna fjölskylda átti erfitt með að standast greiðslumat fyrir fasteign á höfuðborgarsvæðinu. Við leituðum því nýrra leiða og fundum framtíðarheimili í Hveragerði. Sjálf er ég að mestu alin upp í Vesturbæ Reykjavíkur og maðurinn minn í Seljahverfinu í Breiðholti. Bæði höfum við þó alltaf sótt í útiveru, ég í hestamennsku og hann í jeppaferðir. Það heillaði okkur því strax að vera svona nálægt náttúrunni, með fjöllin, dalina og kyrrðina innan seilingar. Skoðun 26. mars 2026 15:31
Gott að eldast í Hveragerði Hveragerðisbær hefur löngum verið þekktur fyrir gæðin sem felast í því að eyða hér sínum efri árum. Öflug og metnaðarfull öldrunarþjónusta er eitt af einkennum Hveragerðisbæjar, sem við erum afar stolt af. Skoðun 26. mars 2026 12:02
Stöðvuðu stút með naglamottu Lögregluþjónar frá Lögreglunni á Suðurlandi, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og úr sérsveit ríkislögreglustjóra veittu um helgina ökmanni sem neitaði að stöðva bíl sínn eftirför. Beita þurfti naglamottu til að stöðva hann á endanum. Innlent 16. mars 2026 16:54
Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Birgitta Ragnarsdóttir tollmiðlari leiðir lista Samfylkingarinnar og óflokksbundinna í Hveragerði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 14. mars 2026 18:16
Þau skipa D-listann í Hveragerði Ingimar Guðmundsson, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, leiðir lista D-listans í Hveragerði. Töluverð endurnýjun er á listanum. Innlent 4. mars 2026 13:37
Kveð bæjarstjórn eftir gefandi ár Á félagsfundi Sjálfstæðisfélags Hveragerðis var tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista D-listans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar lögð fyrir og samþykkt. Skoðun 4. mars 2026 11:30
Jöfn tækifæri barna, betra samfélag og bjartari framtíð Þegar ég var lítil hefðu fríar skólamáltíðir tryggt að við systkinin værum ekki svöng þegar ekki var til matur á heimilinu. Á mínu heimili var oft ekki til matur. Oftar en nokkurn myndi gruna var ekki til nesti til að taka með í skólann eða næringarríkur kvöldmatur. Skoðun 14. febrúar 2026 10:31
Ánægja íbúa í Hveragerði: Ekki er allt sem sýnist Nýlega birtist grein undir heitinu “Afgerandi og vaxandi ánægja íbúa Hveragerðis” þar sem fjallað var um niðurstöður þjónustukönnunar sveitarfélaga frá Gallup. Í umfjölluninni er dregin upp mynd af jákvæðri þróun á ánægju íbúa með þjónustu Hveragerðisbæjar. Skoðun 12. febrúar 2026 11:32
Afgerandi og vaxandi ánægja íbúa Hveragerðis Það er fagnaðarefni að í nýfengnum niðurstöðum árlegrar þjónustukönnunar Gallup fyrir sveitarfélögin má merkja aukna ánægju íbúa Hveragerðis í allflestum þjónustuflokkum ásamt því að heilt yfir er afgerandi ánægja með Hveragerði sem búsetukost, sem fer jafnframt vaxandi. Þetta gefur okkur skýra vísbendingu um að Hveragerðisbær sé að feta sig rétta leið í að gera þjónustu á vegum bæjarins enn betri. Skoðun 6. febrúar 2026 16:33
Skjálfti fannst í Hveragerði Jarðskjálfti fannst vel í Hveragerði og sveitinni í kring enda varð hann nánast innan bæjarmarkanna. Innlent 30. janúar 2026 21:06
Kristinn Svavarsson er látinn Kristinn Svavarsson, kennari og saxófónleikarinn sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Mezzoforte, er látinn 78 ára að aldri. Tónlist 22. janúar 2026 22:04
Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Það verður mikið um að vera í Hveragerði á nýju ári því bæjarfélagið fagnar 80 ára afmæli sínu með fjölbreyttum afmælisviðburðum. Einn af hápunktum afmælisins verður heimsókn forseta Íslands í lok apríl. Innlent 18. janúar 2026 13:05
Þjónustukjarni eldri borgara – lykill að gæðasamfélaginu í Hveragerði Gæði samfélags mælast í því hvernig við þjónustum íbúana. Íbúasamsetning í Hveragerði er fjölbreytt og býr í bænum m.a. fjölmennur og virkur hópur eldra fólks. Það er eitt af megin áherslumálum Framsóknar að bjóða upp á fjölbreyttan búsetuvalkost fyrir alla hópa samfélagsins. Það er því mikilvægt að hlusta eftir því hvað hentar hverjum. Skoðun 18. janúar 2026 12:00
Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn Sandra Sigurðardóttir varaþingmaður Viðreisnar sem nú tekur við þingsæti Guðbrands Einarssonar í Suðurkjördæmi segist vera í sjokki vegna málsins. Ákvörðunin hjá Guðbrandi um að segja af sér vegna tilraunar til vændiskaupa sé hinsvegar hárrétt og segist Sandra vera klár í slaginn á Alþingi. Innlent 16. janúar 2026 11:41
Orðin innantóm um rekstur Hveragerðisbæjar Um miðjan desember var fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026 samþykkt. Í kjölfarið fór meirihluti Framsóknar og Okkar Hveragerðis mikinn og talaði um einstaka fjárhagsáætlun sem sýndi ábyrgan rekstur og lækkun skulda. Skoðun 15. janúar 2026 14:30
6 fríar klukkustundir og tæmdir biðlistar á leikskólum í Hveragerði Í upphafi kjörtímabilsins lagði meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar upp þá stefnu að bjóða upp á 6 klukkustundir gjaldfrjálst á leikskólum bæjarins. Skoðun 15. janúar 2026 13:00