Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Af­þakkar Grammy-tilnefningu

Sænska poppstjarnan Zara Larsson vill ekki vera tilnefnd sem besti nýliðinn á Grammy-verðlaunahátíðinni 2027. Ástæðan er einföld, hún er enginn nýgræðingur í tónlistinni.

Tónlist
Fréttamynd

Miley losar sig við eftir­nafnið

Poppstjarnan Miley Cyrus stendur á tímamótum fyrir útgáfu tíundu plötu sinnar. Hún virðist hafa ákveðið að losa sig við eftirnafn sitt og ætlar greinilega einungis að nota listamannsnafnið Miley héðan af. 

Tónlist


Fréttamynd

Highway 61 Revisited fagnar 61 árs af­mæli

Sjötta plata tónlistarmannsins Bobs Dylan, Highway 61 Revisited, kom út þann 30. ágúst 1965, fyrir 61 ári og einum degi, og olli straumhvörfum í rokktónlist. Platan markaði tímamót á ferli Dylan sem færði sig með plötunni úr órafmagnaðri þjóðlagatónlist í rafmagnað rokk.

Tónlist
Fréttamynd

Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax

„Markmiðið er að hvetja fólk til að taka þátt í hlaupinu með því að hvetja hlauparana í dáða og láta vita að hvatning skiptir ekki síður máli en að hlaupa,“ segir Sjöfn Þórðardóttir sem með dyggri aðstoð bakaði þúsund bollakökur til að gleðja hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu.

Lífið

Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.

Fréttamynd

Galliano slaufað og ó­vissa með Met Gala næsta árs

Forsvarsmenn Metropolitan-listasafnsins og Met Gala-kvöldsins hafa hætt við að heiðra breska hönnuðinn John Galliano. Met Gala næsta árs átti að vera tileinkað ævistarfi hönnuðarins en hann hefur í gegnum tíðina valdið hneykslan vegna rasískra og andgyðinglegra yfirlýsinga. Ekki liggur fyrir hvert þema kvöldsins verður í staðinn.

Lífið
Fréttamynd

Skip­stjóri selur heils­árs­hús á 190 milljónir

Skipstjórinn Hinrik Hringsson hefur sett á sölu 228 fermetra heilsárshús að Tröllahrauni 8 í Miðengi í Grímsnes- og Grafningshreppi. Húsið samanstendur af alrými, þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, bílskúr og stórum palli með heitum potti og er ásett verð 190 milljónir króna.

Lífið
Fréttamynd

Þór­dís Zoëga sló í gegn í Kaup­manna­höfn

Fullt var út úr dyrum þegar listakonan Þórdís Erla Zoëga opnaði sýninguna Samrými í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn 27. ágúst síðastliðinn. Sýningin fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra.

Menning
Fréttamynd

Ris, fall og óútskýrð auð­æfi Jeffrey Epstein

Jeffrey Epstein var ákærður árið 2007 fyrir kynferðisbrot gegn tugum kvenna og hefði hæglega getað fengið lífstíðarfangelsi. Lögmenn hans gerðu leynilegan samning við yfirvöld sem endaði með því að hann hlaut átján mánaða dóm og afplánaði þrettán þeirra í fangelsi. Haustið 2008 var Epstein sóttur í fangelsi í Flórída á hverjum morgni, sex daga vikunnar, af einkabílstjóra sem skutlaði honum á skrifstofu góðgerðarstofnunar og svo aftur í fangelsið að kvöldi.

Lífið
Fréttamynd

Sonurinn fékk nafnið Skógur

Rithöfundarnir Fríða Ísberg og Tómas Ævar Ólafsson eignuðust sitt annað barn 1. ágúst síðastliðinn þegar lítill drengur kom í heiminn. Hann hefur fengið hið frumlega nafn Skógur og er sá fyrsti sem ber nafnið hérlendis.

Lífið
Fréttamynd

Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glæ­nýju hlut­verki

Þau Finneas O´Connell og Claudia Sulewski gengu í það heilaga á dögunum en sá fyrrnefndi er bróðir söngkonunnar Billie Eilish, sem gaf hjónin einmitt saman. Herlegheitin, sem fóru fram á búgarði í Kaliforníu, voru vel sótt og meðal gesta voru þau Justin og Hailey Bieber, Jason Sudeikis, Kristen Bell og fleiri. 

Lífið
Fréttamynd

„Hræði­legt að sjá of­beldið sem ég beitti mig“

„Ég hef svo lengi verið að fela mig og þykjast vera einhver sem ég er ekki. Þetta er í fyrsta skipti sem ég næ að losa um það. Eina sem ég sýndi á samfélagsmiðlum var bara ég í ræktinni og að borða einhverjar geggjaðar máltíðir. Fólk sér ekki þegar ég er andvaka á næturnar og langar ekki að lifa,“ segir hinn þrítugi Anton Ísak Óskarsson sem hefur ýmsa fjöruna sopið. Hann missti föður sinn fyrir fimm árum og við tók gríðarlega erfitt uppgjörstímabil, sem er enn í gangi.

Lífið
Fréttamynd

Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu

Stemmningin hjá jáfólki sem kom saman í Hafnarhúsinu í kvöld til að fylgjast með niðurstöðum úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið var róleg til að byrja með en sprakk út þegar fleiri tölur duttu í hús.

Lífið
Fréttamynd

Kjós­endur á loka­sprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“

Bjarki Sigurðsson var staddur í bæði Ráðhúsinu í Reykjavík og fyrir utan Hagaskóla í Vesturbæ rétt upp úr klukkan níu og ræddi við kjósendur á lokasprettinum en síðustu kjörstöðum var lokað klukkan tíu í kvöld. Sumir gleymdu sér en aðrir nutu veðurblíðu dagsins. Flestir kjósendur voru sammála um að það hefði ekki tekið þá langan tíma að gera upp hug sinn.

Lífið
Fréttamynd

Dorrit missti að­gang á for­rit

Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú Íslands, segist hafa orðið fyrir því óláni að vera hökkuð. Á síma hennar bíða nú skilaboð um að síminn sé læstur.

Lífið
Fréttamynd

Frétta­tía vikunnar: Dolly, ESB og malaría

Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis.

Lífið