Pólland

Pólland

Höfuðborg: Varsjá. Mannfjöldi: 37,5 milljónir (2025). Flatarmál: 312.696 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Á­fall fyrir Evrópu og vest­ræna sam­vinnu

Samkomulag Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning Rússa á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu er áfall fyrir Evrópu og vatn á myllu stríðsreksturs Rússa í Úkraínu að mati alþjóðastjórnmálafræðings.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili

Maðurinn sem lést í Stuðlagili á mánudag hét Piotr Sójka og var 39 ára gamall pólskur ríkisborgari. Piotr var búsettur í Póllandi en var á ferðalagi hérlendis.

Innlent
Fréttamynd

Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey af­hjúpuð

Risastór stytta af Maríu mey, sem talin er vera sú hæsta í Evrópu, var vígð á laugardag í litlu pólsku þorpi. Styttan er 56 metra há. Bæjaryfirvöld vonast til þess að minnisvarðinn verði mikilvægur pílagrímastaður og ferðamannastaður. Útsýnispallur er byggður inn í stall styttunnar.

Erlent
Fréttamynd

Komu í veg fyrir launmorð á Banda­ríkja­manni í Var­sjá

Pólskir löggæslumenn handtóku á dögunum rússneskan mann sem sagður er hafa verið ráðinn af yfirvöldum í Rússlandi til að myrða bandarískan ríkisborgara. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir þetta fyrsta málið af þessu tagi, þar sem Rússar hafi reynt að myrða bandarískan ríkisborgara í NATO-ríki.

Erlent
Fréttamynd

Rússnesk stýriflaug lík­lega lent í Pól­landi

Rússnesk Kh-101 stýriflaug á leið til Úkraínu lenti í Póllandi í nótt. Þetta segir Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Władysław Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra Póllands, segir að „líklegast“ hafi verið um að ræða Kh-101 stýriflaug sem skotið er úr lofti. Atvikið sé enn til rannsóknar.

Erlent
Fréttamynd

Vilja að konur upp­fylli sinn æðsta til­gang: að verða mæður

Miðflokkurinn er orðinn fullgildur meðlimur Samtaka evrópskra íhaldsmanna og umbótasinna (European Conservatives and Reformists Group, eða ECR). Á síðu ECR er fullyrt að kristnir sæti mestum ofsóknum allra trúarhópa og að vegna lækkandi fæðingartíðni fái konur ekki að uppfylla sinn æðsta tilgang: að verða móðir. 

Innlent
Fréttamynd

Skopmyndateiknari skotinn til bana

Rússneskur listamaður mótmælti fyrir utan rússneska sendiráðið í Berlín á föstudaginn og fannst í dag skotinn til bana á bílastæði í nágrenni heimilis síns í Póllandi.

Erlent
Fréttamynd

Rússar víg­búast við mörk Norður­landa

Rússar hafa á síðustu árum aukið umsvif sín á herstöðvum við landamærin að Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Loftmyndir sýna hvernig gróður hefur vikið fyrir hervirkjum á sama tíma og umferð herbíla hefur aukist á svæðunum.

Erlent
Fréttamynd

Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Banda­ríkin

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að bandarískum hermönnum í Evrópu muni fækka. Um það sé skilningur meðal aðildarríkja NATO en framkvæmdastjóri bandalagsins segir að hin ríka Evrópa hafi reitt sig of mikið á Bandaríkin í varnarmálum og að það muni breytast á næstu árum.

Erlent
Fréttamynd

Trump sendir 5.000 her­menn til Pól­lands

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur greint frá því að hann hyggist senda 5.000 hermenn til Póllands, aðeins nokkrum dögum eftir að varnarmálaráðuneytið tilkynnti að ekkert yrði af fyrirhuguðum 4.000 manna flutningi þangað.

Erlent
Fréttamynd

Tólf tonnum af Kitkat rænt

Óprúttnir aðilar rændu um tólf tonnum af vinsæla súkkulaðistykkinu Kitkat í flutningi í vikunni. Um rúmlega fjögur hundruð þúsund stykki var að ræða, og það rétt fyrir páska, en Nestlé segir þjófnaðinn ekki koma til með að hafa áhrif á súkkulaðibirgðir Evrópubúa.

Erlent