Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Allar tekjur af sölu olíu frá Venesúela munu rata í sjóð í umsjá Katar. Þá munu stjórnvöld í Venesúela hafa samþykkt að leggja fram mánaðarlega fjárhagsáætlun, sem verður fjármögnuð með úthlutun úr sjóðnum. Fjármögnunin verður háð samþykki Bandaríkjastjórnar. Erlent 29.1.2026 08:35
Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Nóbelsnefnd friðarverðlaunanna hefur gefið út yfirlýsingu vegna framsals Maríu Corinu Machado verðlaunahafa á medalíu sinni til Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Yfirlýsingin er stutt og afdráttarlaus og segir nefndin að verðlaunin séu verðlaunahafans eins, burtséð frá því hvar peningurinn sé niðurkominn. Erlent 18.1.2026 12:37
Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Donald Trump Bandaríkjaforseti tók við Nóbels-verðlaunapening Maríu Corinu Machado, stjórnarandstöðuleiðtoga Venesúela, sem hún afhenti forsetanum í Hvíta húsinu í gær og hyggst eiga hann. Erlent 16.1.2026 06:37
Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Donald Trump Bandaríkjaforseti hvetur stjórnvöld í Kúbu til að semja við Bandaríkjamenn, ellegar muni Kúbverjar ekki lengur hafa aðgang að olíu og gjaldeyri frá Venesúela. Erlent 12. janúar 2026 00:09
Náið fylgst með stöðu mála í Venesúela hjá Útlendingastofnun Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að endurskoða 24 verkbeiðnir vegna ríkisborgara frá Venesúela sem flytja á til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun fylgist starfsfólk náið með stöðunni. Alls eru óafgreiddar 70 umsóknir Útlendingastofnunar um vernd frá ríkisborgurum Venesúela. Innlent 10. janúar 2026 16:41
Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að hitta Maríu Corina Machado, leiðtoga stjórnarandstæðunnar í Venesúela. Þá segir Trump að það yrði mikill heiður fyrir hann ef hún ákvæði að afhenda honum friðarverðlaun Nóbels, sem hún vann í fyrra. Erlent 9. janúar 2026 15:13
Tóku fimmta olíuskipið: Svona virkar „skuggaflotinn“ Bandarískir hermenn tóku í morgun yfir stjórn olíuflutningaskipsins Olina á Karíbahafinu. Skipið er sagt bera olíu frá Venesúela og mun því hafa verið siglt undir fölsku flaggi. Þetta er fimmta skipið tengt Venesúela sem Bandaríkjamenn taka yfir á nokkrum vikum. Erlent 9. janúar 2026 14:16
Trump-liðar hóta fauta Maduros sömu örlögum eða dauða Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og embættismenn hans hafa talað fyrir því að stjórnvöld í Venesúela verði friðsamir vinir Bandaríkjanna. Einn maður þykir líklegastur til að geta komið í veg fyrir að það raungerist. Sá maður heitir Diosdado Cabello. Erlent 8. janúar 2026 10:30
Þúsundir Kólumbíumanna mótmæltu hótunum Trump Þúsundir mótmæltu í borgum Kólumbíu í gær, í kjölfar hótana Donald Trump Bandaríkjaforseta um mögulegar hernaðaraðgerðir gegn landinu. Mótmælendur voru afar harðorðir í garð forsetans. „Trump er djöfullinn, hann er hræðilegasta manneskja í heimi,“ hefur Guardian eftir einum þeirra. Erlent 8. janúar 2026 07:08
Gæti leitt til aukinnar íhlutunar í Atlantshafi Bandaríski herinn tók yfir stjórn rússnesks olíuflutningaskips í íslenskri efnahagslögsögu fyrr í dag eftir tveggja vikna eftirför og tóku rússneska áhafnarmeðlimi um borð fasta. Rússar hafa fordæmt aðgerðina og krafist þess að borgurum sínum verði skilað heim en því verða Bandaríkjamenn ekki við. Erlent 7. janúar 2026 20:04
Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi Stuttu eftir að bandarísk herþota með Nicolás Maduro forseta Venesúela og eiginkonu hans Ciliu Flores lenti á flugvelli skammt frá New York-borg voru hjónin flogin með þyrlu í eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna: Metropolitan detention center. Þar dvelur einnig Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra UnitedHealthcare, og þangað til nýlega Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy. Erlent 7. janúar 2026 18:10
Danskir og bandarískir erindrekar funda um Grænland í næstu viku Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur staðfest að danskir og bandarískir erindrekar muni eiga fund saman í næstu viku um Grænland. Bandaríkjaforseti og þjóðaröryggisráð eigi í virku samtali um möguleg kaup á eyjunni. Erlent 7. janúar 2026 17:53
Tóku einnig skuggaskip í Karíbahafinu Bandarískir hermenn gerðu í dag áhlaup um borð í olíuflutningskip sem bendlað hefur verið Venesúela á Karíbahafinu. Bandaríkjamenn tóku því yfir tvö slík skip sem sögð eru hafa verið notuð til að brjóta á viðskiptaþvingunum. Erlent 7. janúar 2026 15:17
Fáar vísbendingar um miklar breytingar í Venesúela Brotthvarf Nikolas Madúró forseta Venesúela er ótvírætt högg fyrir stjórn sósíalista í landinu. Það raskar starfi þeirra og skapar tækifæri til breytinga, en um leið er ólíklegt að handtaka hans ein og sér skili langlífum breytingum á stjórnarfari landsins. Skipulagslegt viðnámsþol, samheldni valdastéttarinnar, stofnanaleg dýpt og ytri pólitísk áhrif takmarka áhrifin af brotthvarfi forsetans. Skoðun 7. janúar 2026 13:01
Gerðu áhlaup á rússneskt skuggaskip í efnahagslögsögu Íslands Olíuskipi sem elt var af yfirvöldum í Bandaríkjunum og Rússar hafa sent herskip til móts við, var í nótt siglt inn í efnahagslögsögu Íslands. Skipið var alltaf á alþjóðlegu hafsvæði, þó það hafi verið rétt innan efnahagslögsögunnar. Erlent 7. janúar 2026 10:27
Ekkert nema hégómi hjá Trump að vilja setja bandaríska fánann á Grænland Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir allar yfirlýsingar Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um Grænland og Venesúela fjarstæðukenndar og forsendur hans líka. Hann segir að frá herfræðilegu sjónarmiði sé í raun einfalt fyrir Bandaríkin að taka Grænland, og þau gætu gert það, ef þau vildu, í dag. Það sé þó alls ekki nauðsynlegt og í raun aðeins hégómi „gamla fasteignabraskarans frá New York“ að vilja það. Innlent 7. janúar 2026 09:07
Rússar senda herskip til móts við olíuskip elt af Bandaríkjunum Stjórnvöld í Rússlandi eru sögð hafa sent að minnsta kosti eitt herskip til að mæta olíuflutningaskipi sem Bandaríkjamenn hafa veitt eftirför frá því að það freistaði þess að komast til hafnar í Venesúela. Erlent 7. janúar 2026 07:12
Segir Venesúela munu afhenda Bandaríkjunum milljónir tunna af olíu Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á samfélagsmiðlinum Truth Social í gær að stjórnvöld í Venesúela myndu afhenda Bandaríkjunum hráolíu að andvirði tveggja milljarða dala. Erlent 7. janúar 2026 06:39
Hvað er Trump eiginlega að bralla? Hvað er forseti Bandaríkjanna að meina með því að ræna Maduro? Trump sjálfur hefur vísað í tvær réttlætingar fyrir því að framkvæma þennan gjörning: í fyrsta lagi hefur hann sakað forseta Venesúela um að taka beinan þátt í fíkniefnasmygl og í öðru lagi er Maduro sakaður um að hafa „stolið“ olíu frá Bandaríkjunum (fyrir valdatíð Hugo Chavez og síðan Maduro höfðu bandarísk olíufélög greiðan aðgang að olíuauði landsins). Skoðun 6. janúar 2026 20:33
Varnarsamningur við ESB settur á oddinn og þjóðaratkvæðagreiðsla brátt fyrir þingið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að áfram verði unnið að tvíhliða varnarsamningi við Evrópusambandið en segir samstarf Íslands og Bandaríkjanna í varnarmálum enn gott þrátt fyrir vendingar í alþjóðamálum og hótanir um innlimun Grænlands. Yfirlýsingar um annað eru að mati ráðherra glannalegar en hún vill ræða málið á vettvangi NATO. Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB verði lagt fram á þessu þingi. Innlent 6. janúar 2026 14:29
Vill afhenda Trump friðarverðlaunin Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist ætla að snúa aftur til landsins eins fljótt og henni er auðið. Hún segist einnig vilja afhenda Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, friðarverðlaun Nóbels, sem hún hlaut í fyrra. Trump hefur sagt að hún njóti ekki nægilegrar virðingar til að stýra Venesúela eftir að hann lét nema Nicolás Maduro, forseta, á brott á dögunum. Erlent 6. janúar 2026 11:21
Huldumaður hagnaðist verulega á árásinni á Venesúela Minna en fimm klukkustundum áður en fyrstu sprengjurnar lentu í Caracas, höfuðborg Venesúela, um helgina og bandarískir sérsveitarmenn námu Nicolás Maduro, forseta, á brott, veðjaði einn maður á að Maduro yrði steypt af stóli. Nokkrum klukkustundum síðar fékk hann rúmlega fjögur hundruð þúsund dali vegna veðmálsins, eða um tólffalt það sem hann hafði veðjað. Erlent 6. janúar 2026 10:02
„Ég er forseti sem hefur verið rænt; stríðsfangi!“ Nicolás Maduro óskaði viðstöddum gleðilegs nýs árs þegar hann var leiddur fyrir dómara í New York í gær. Þá sagði hann að honum hefði verið rænt á heimili sínu og að hann væri stríðsfangi. Bæði hann og eiginkona hans, Cilia Flores, sögðust saklaus af þeim ákærum sem þau sæta í Bandaríkjunum. Erlent 6. janúar 2026 06:43
Semjum við Trump: Breytt heimsmynd sem tækifæri, ekki ógn Örar breytingar í alþjóðamálum undanfarið hafa breytt öryggisumhverfi Íslands í öllum grundvallaratriðum. Handtaka Bandaríkjanna á Nicolás Maduro, forseta Venesúela, um síðustu helgi, og vaxandi áhugi Washington á Grænlandi eru einungis nýjustu dæmin um að hinir sterku fara sínu fram; að þjóðir eiga ekki vini – bara hagsmuni. Skoðun 6. janúar 2026 06:01