Sprengdi sig í loft upp við dómshús Að minnsta kosti tólf eru látnir eftir að maður sprengdi sig í loft upp fyrir utan dómshús í Islamabad í Pakistan í morgun. Þá særðust að minnsta kosti 27 í árásinni en enginn hópur hefur lýst yfir ábyrgð á henni enn sem komið er. Erlent 11.11.2025 11:18
Pakistan og Afganistan gera vopnahlé eftir mannskæðustu átök í langan tíma Pakistan og Afganistan tilkynntu um vopnahlé í dag eftir mannskæðustu átök þeirra í mörg ár sem hafa kostað tugi manns lífið beggja vegna landamæranna. Erlent 15.10.2025 18:59
„Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að hann eigi friðarverðlaun Nóbels skilið, enda hafi hann bundið enda á eða komið í veg fyrir sex stríð. Stundum sjö. Hvaða stríð það eru sem hann er að tala um er þó ekki öllum ljóst. Erlent 20.8.2025 13:01
Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Indversk og Pakistönsk yfirvöld hafa sakað hvort annað um að hafa brotið gegn vopnahléi aðeins nokkrum klukkustundum eftir að tilkynnt var um vopnahléssamkomulag. Erlent 10. maí 2025 21:22
Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Indverjar og Pakistanar hafa gert almennt vopnahlé sín á milli, með aðkomu ráðamanna í Bandaríkjunum. Umfangsmikil átök ríkjanna hafa átt sér stað undanfarna daga en bæði búa þau yfir kjarnorkuvopnum. Erlent 10. maí 2025 12:14
Átökin ná nýjum hæðum Árásir yfir landamæri Pakistan og Indlands virðast hafa náð nýjum hæðum í gærkvöldi og í nótt. Ráðamenn í Pakistan gerðu árásir gegn indverskum herstöðvum og vopnageymslum í aðgerð sem fékk nafnið „Blýveggur“, lauslega þýtt. Indverjar svöruðu með eigin árásum og meðal annars á herstöð þar sem finna má höfuðstöðvar pakistanska hersins. Erlent 10. maí 2025 07:33
Stigmögnunin heldur áfram Indverjar og Pakistanar skiptast enn á skotum og er óttast að átökin séu að vinda upp á sig. Indverjar segja Pakistana hafa gert árásir yfir landamærin með drónum og stórskotaliði í gærkvöldi og í nótt. Erlent 9. maí 2025 06:34
Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Yfirvöld í bæði Indlandi og Pakistan segjast hafa skotið niður dróna og jafnvel eldflaugar frá hinum aðilanum í gærkvöldi og í nótt. Indverjar segjast hafa gert árásir á loftvarnarkerfi í Pakistan eftir að drónar og eldflaugar, sem beint hafi verið að hernaðarskotmörkum í Indlandi hafi verið skotnir niður yfir Indlandi. Erlent 8. maí 2025 11:00
„Þetta er svona eitraður kokteill” Stjórnvöld í Pakistan heita hefndum eftir árásir Indverja á Kasmír í nótt. Óttast er að átök milli þessara kjarnorkuvelda stigmagnist. Innlent 7. maí 2025 20:49
Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Yfirvöld í Pakistan saka Indverja um að hafa vísvitandi gert árásir á moskur og önnur borgaraleg skotmörk í Pakistan í gærkvöldi. Þeir segja 26 óbreytta borgara hafa fallið í þessum árásum, sem hafi verið gerðar á „ímyndaðar búðir hryðjuverkamanna“. Erlent 7. maí 2025 10:46
Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Forsvarsmenn hers Pakistan segjast hafa skotið niður fimm indverskar herþotur eftir að Indverjar gerðu árásir í Pakistan í gærkvöldi og í nótt. Pakistanar svöruðu fyrir sig með stórskotaliðsárásum og segja yfirvöld beggja ríkja að óbreyttir borgarar liggi í valnum. Erlent 7. maí 2025 06:25
Indland gerir árás á Pakistan Indland hefur gert árás á Pakistan með flugskeytum á níu staði í Pakistan og í þeim hluta Kasmír-héraðs þar sem Pakistanar ráða ríkjum. Erlent 6. maí 2025 21:02
Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Mikil spenna hefur ríkt milli Indverja og Pakistana á undanförnum dögum, eftir að hryðjuverkamenn myrtu 26 indverska ferðamenn í Kasmír-héraði. Ráðamenn í Indlandi hafa heitið því að refsa hryðjuverkamönnum og bakhjörlum þeirra og ráðamenn í Pakistan hafa varað við því að áhlaup yfir landamærin sé væntanlegt. Erlent 5. maí 2025 10:07
Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Attaullah Tarar, upplýsingamálaráðherra Pakistan, segir að landið búi yfir áreiðanlegum upplýsingum sem bendi til þess að Indland hyggist gera árás á allra næstu dögum. Erlent 30. apríl 2025 00:10
Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Aukin spenna er á milli Indlands og Pakistan vegna yfirráð í Kashmír héraðinu. Íslamskir vígamenn skutu 26 manns til bana á svæði Indlands. Landamærunum milli landanna hefur verið lokað. Erlent 28. apríl 2025 23:02
Hitnar í kolunum hjá Indlandi og Pakistan Indversk stjórnvöld hafa afturkallað gildi allra vegabréfsáritana pakistanskra ríkisborgara í kjölfar árásar í Kasmír-héraði í Indlandi á þriðjudag þar sem 26 létu lífið. Pakistan neitar aðild að árásinni og hefur svarað aðgerðum Indlands í sömu mynt. Erlent 24. apríl 2025 12:53
Stefna á víðtækar ferðatakmarkanir Stjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, stefnir á að gefa út víðtækar ferðatakmarkanir fyrir ríkisborgara 43 landa. Löndunum er skipt í þrjú stig en ríkisborgum ellefu landa verður alfarið bannað að ferðast til Bandaríkjanna. Erlent 16. mars 2025 22:14
Allir vígamenn drepnir og gíslatökunni lokið Hersveitir í Pakistan luku í kvöld við að frelsa eftirlifandi gísla sem höfðu verið í gíslingu aðskilnaðarsinna í Balochistan-héraði í rúman sólarhring. Allir 33 vígamennirnir voru drepnir í aðgerðinni. Erlent 12. mars 2025 21:15
Sátu með sprengjuvesti meðal gísla Yfirvöld í Pakistan segja að minnsta kosti 190 gísla hafa verið frelsaða úr gíslingu aðskilnaðarsinna í Balochistan-héraði en margir þeirra voru fluttir á sjúkrahús. Vígamenn stöðvuðu lest þar sem á fimmta hundrað manns voru um borð í gær og tóku fjölda þeirra í gíslingu. Erlent 12. mars 2025 14:07
Tæplega tvö hundruð farþegar í gíslingu Vopnaðir menn hófu í morgun skothríð á lest í suðvesturhluta Pakistan og tæplega tvö hundruð manns verið teknir í gíslingu. Hópur aðskilnaðarsinna hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Erlent 11. mars 2025 11:23
Imran Khan í fjórtán ára fangelsi Dómstóll í Pakistan hefur dæmt Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, í fjórtán ára fangelsi fyrir spillingu. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi og fangelsi frá árinu 2023. Erlent 17. janúar 2025 07:58
Forsætisráðherrann fyrirskipar rannsókn á umdeildri auglýsingu Auglýsing frá pakistanska flugfélaginu Pakistan Airlines hefur vakið hörð viðbrögð síðustu daga, svo hörð raunar að forsætisráðherra landsins hefur fyrirskipað rannsókn á málinu. Erlent 16. janúar 2025 07:02
Hátt í þrjátíu pílagrímar fórust í rútuslysi Minnst tuttugu og átta pakistanskir pílagrímar fórust þegar rúta valt í Íran í gærkvöldi. Tuttugu og þrír til viðbótar slösuðust. Erlent 21. ágúst 2024 07:59
Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Hitamælar sýndu yfir 52 gráður í sunnanverðu Pakistan í gær. Sérfræðingar segja að hitabylgja sem hefur gengið yfir Asíu síðasta mánuðinn sé bein afleiðing hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Erlent 28. maí 2024 12:02