Nepal

Nepal

Höfuðborg: Katmandú. Mannfjöldi: 31,2 milljónir (2025). Flatarmál: 147.516 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús

Fimm er saknað og um fimmtíu var bjargað eftir skyndiflóð í ánni Budhi Gandaki í Nepal. Á myndbandi sést þar sem flóðið ryður niður húsum og brú úr vegi sínum en um fimmtán hundruð létust í flóðum í landinu í síðasta mánuði.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum

Tveir eru látnir og í það minnsta átta manns er enn saknað eftir að snjóflóð féll á grunnbúðir í Himalajafjöllum þar sem hópur fjallgöngufólks hafði komið sér fyrir. Hópurinn var skipaður nepölskum ríkisborgurum, þar á meðal fjallgöngumönnum og aðstoðarfólki, sem hafði verið sendur á undan erlendum fjallgöngumönnum til að undirbúa búðirnar og festa línur í fjallinu.

Erlent
Fréttamynd

Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið

Heimildarmyndin Hinsta ferðin á K2 fjallar um örlagaríka tilraun Johns Snorra Sigurjónssonar og pakistönsku feðganna Muhammad Ali Sadpara og Sajid Sadpara til að verða fyrstir til að klífa fjallið K2 að vetri til árið 2021. Kvikmyndin verður opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar RIFF þann 24. september og mun Páll Guðmundsson, náinn vinur Johns, halda stutta tölu fyrir sýninguna.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum

Að minnsta kosti 359 eru dánir og rúmlega níu hundruð er saknað eftir skyndiflóð og skriður í Nepal í gær. Svipað ástand er í Tíbet þar sem hundraða er enn saknað. Að minnsta kosti sjö hundruð erlendir ferðamenn eru meðal þeirra sem er saknað.

Erlent
Fréttamynd

Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð

Hundraða er saknað eftir að stærðarinnar skyndiflóð og skriður sópuðu heilu þorpunum á brott og ollu miklum skemmdum í Nepal og Tíbet í morgun. Flóðin ollu einnig miklum skemmdum á innviðum og orkuverum en yfirvöld í Nepal hafa beðið Indverja og Kínverja um aðstoð vegna flóðanna.

Erlent
Fréttamynd

Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest

Reynslumikill nepalskur leiðsögumaður sem týndist á Everest í síðustu viku fannst á lífi í morgun. Dawa Sherpa tókst að lifa af eftir að hafa týnst í um 7.500 metra hæð fyrir sex dögum og er hann sagður hafa skriðið aftur til grunnbúðanna við fjallið.

Erlent
Fréttamynd

Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju

Nepalar völdu sér í gær nýja lifandi gyðju. Tveggja ára stúlka varð fyrir valinu og var hún borin frá heimili sínu í húsasundi í Katmandú, höfuðborg landsins, og flutt í hof. Þar mun hún búa þar til hún nær kynþroska.

Erlent
Fréttamynd

Herinn skakkar leikinn í Katmandú

Vopnaðir hermenn standa nú vörð á strætum Katmandú, höfuðborg Nepals, eftir mannskæð mótmæli og óeirðir síðustu daga. Borgarbúum hefur verið skipað að halda sig heima hjá sér.

Erlent
Fréttamynd

Skutu mót­mæ­lendur til bana við þing­húsið í Nepal

Lögreglumenn drápu að minnsta kosti átta manns og særðu tugi til viðbótar þegar þeir skutu á mótmælendur sem reyndu að ryðjast inn í þinghúsið í Katmandú, höfuðborg Nepals í dag. Tugir þúsunda manna mótmæla banni stjórnvalda við flestum samfélagsmiðlum.

Erlent
Fréttamynd

Hæðarveiki og lyf

Hæðarveiki er ekki sjúkdómur. Hennar verður oftast vart ofan við 2.500 til 2.800 metra hæð yfir sjó. Dæmi: Í 5.895 m hæð á Kilimanjaro hefur hlutþrýstingur súrefnis lækkað nánast um helming miðað við 21% efnishlutdeild súrefnis í hverjum rúmmetra andrúmsloftsins.

Skoðun
Fréttamynd

„Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“

Íslensk kona lenti í lífsháska þegar öndunarvegur hennar lokaðist á leið í grunnbúðir Everest. Ellefu sjerpar báru hana í fjóra tíma áður en hún var flutt með þyrlu til Katmandú. Við útskrift af spítala var ferðatrygging hennar ekki tekin gild svo hún þurfti sjálf að leggja út 1,4 milljón króna. Sjóvá greiddi henni peninginn til baka en hún furðar sig á vinnubrögðunum.

Lífið
Fréttamynd

Í­huga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki

Aðeins reynt fjallgöngufólk fengi leyfi til þess að klífa Everest, hæsta fjalls heims, samkvæmt lagafrumvarpi sem er til meðferðar í Nepal. Frumvarpinu er ætlað að draga úr umferð um fjallið og bæta öryggi göngufólks.

Erlent
Fréttamynd

„Leið­angurinn verður kvennaleiðangur að öllu leyti“

Eftir viku halda tvær íslenskra konur, Soffía Sigurgeirsdóttir og Lukka Pálsdóttir, til Nepal til að ganga upp á austurtind Lobuche í Himalayafjöllum í Nepal. Upp að tindi eru 6.119 metrar. Soffía og Lukka ganga til stuðnings sjerpa fjallgöngukonum í Nepal.

Lífið
Fréttamynd

Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal

Minnst 66 eru látnir í Nepal eftir flóð og skriðuföll vegna gífurlegrar úrkomu sem hefur staðið yfir síðan á föstudag. Búist er við að áfram haldi að rigna um helgina. Ekki er vitað um afdrif 69 manna.

Erlent
Fréttamynd

Á­tján fórust í flug­slysi í Nepal

Átján fórust þegar flugvél hrapaði til jarðar skömmu eftir flugtak í Kathmandu höfuðborg Nepal í morgun. Flugmaðurinn er sá eini sem komst lífs af en hugað er að honum á sjúkrahúsi.

Erlent