Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Kanadamaðurinn Ryan Wedding, sem keppt hefur á Vetrarólympíuleikunum fyrir hönd Kanada, hefur verið handtekinn en hann var einn af þeim tíu mönnum sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) vilja mest koma höndum yfir. Wedding hefur verið ákærður fyrir morð, smygl og peningaþvætti og hefur verið á flótta frá 2015. Erlent 23.1.2026 15:30
Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín Iðnaðarteknósveitin Hatari hefur hætt við tónleikaferðalag sitt um Evrópu í febrúar án nokkurrar skýringar. Í síðustu viku hætti rokkhljómsveitin The Vintage Caravan við tónleikaferðalag sitt vegna andlegrar þreytu. Tónlist 22.1.2026 15:30
Krefjast enn að fá að senda sérsveitarmenn til Mexíkó Yfirvöld í Bandaríkjunum setja sífellt meiri þrýsting á ráðamenn í Mexíkó svo þeir hleypi bandarískum hermönnum inn í landið. Þar vilja Bandaríkjamenn nota þá í áhlaup gegn fíkniefnasamtökum sem framleiða og flytja mikið magn fíkniefna til Bandaríkjanna. Erlent 15.1.2026 16:34
Fjölmargra enn saknað eftir flóð og aurskriður Sex dögum eftir að tugir manna dóu vegna úrhellis í Mexíkó er fjölmargra enn saknað. Að minnsta kosti 66 eru látnir, samkvæmt tölum sem birtar voru í gærkvöldi, en enn hefur ekki tekist að finna 75 til viðbótar eftir að skyndiflóð og aurskriður léku íbúa Mexíkó grátt. Erlent 16. október 2025 14:17
Tugir látnir eftir úrhelli í Mexíkó Að minnsta kosti 64 eru látnir eftir úrhelli í Mexíkó í lok síðustu viku. Skyndiflóð og aurskriður ollu miklum usla en að minnsta kosti 65 er enn saknað. Björgunarsveitir eru fyrst núna að ná til byggðarlaga sem lokuðust inni eftir úrhellið. Erlent 13. október 2025 15:40
Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Kókaín hefur aldrei verið ódýrara né hreinna í Bandaríkjunum en það er nú. Neysla þess hefur aukist til muna á undanförnum árum, samhliða umfangsmiklum aðgerðum gegn neyslu fentanýls í Bandaríkjunum og gegn framleiðslu þess í Mexíkó. Erlent 17. september 2025 18:48
Martial á leið til Mexíkó Anthony Martial, fyrrverandi framherji Manchester United, er á leið til Monterrey í Mexíkó. Fótbolti 11. september 2025 17:02
Slagsmál á mexíkóska þinginu yfir ræðutíma Slagsmál brutust út á mexíkóska þinginu á miðvikudag milli öldungardeildarþingmanns og forseta öldungadeildarinnar vegna deilna um ræðutíma. Átökin hófust með lítilsháttar stimpingum sem breyttust í heilmikinn hasar. Erlent 29. ágúst 2025 09:38
El Mayo sagður ætla að játa sekt Ismael Zambada, sem var um árabil einn valdamesti fíkniefnabarónn Mexíkó er talinn ætla að játa sekt í bandarískum alríkisdómstól í dag. Zambada, sem gengur undir nafninu „El Mayo“ og var háttsettur leiðtogi í Sinaloa-samtökunum svokölluðu en tvær vikur eru síðan alríkissaksóknarar sögðust ekki ætla að sækja eftir dauðadómi gegn Zambada. Erlent 25. ágúst 2025 10:06
Ný dýrasta knattspyrnukona heims Olivia Smith er ekki lengur dýrasta knattspyrnukona heims. Metið hefur skipt ört um hendur síðustu misseri og nú er það komið í hendurnar á mexíkóskri landsliðskonu aðeins mánuði eftir að Smith eignaðist það. Fótbolti 21. ágúst 2025 18:02
Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Kristi Noem, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í vikunni að til stæði að mála allan múrinn á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó svartan. Þannig ætti að gera farand- og flóttafólki erfiðara með að komast til Bandaríkjanna. Erlent 21. ágúst 2025 10:02
Labbaði í fjórtán tíma á keppnisstað og vann síðan 63 km ofurhlaup Candelaria Rivas er orðin að þjóðhetju í Mexíkó eftir óvænt afrek sitt í ofurhlaupi í sumar. Sport 14. ágúst 2025 06:22
Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps Yfirvöld í Mexíkó segja að Bandaríkjaher muni ekki fá að ráðast í aðgerðir gegn glæpasamtökum í landinu. Trump er sagður hafa gefið yfirmönnum hersins leynilega skipun um að beita hernum gegn tilteknum glæpasamtökum frá Mið- og Suður-Ameríku, innan landamæra annarra ríkja. Erlent 9. ágúst 2025 14:31
Skipar hernum í hart við glæpasamtök Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa gefið yfirmönnum hersins leynilega skipun um að beita hernum gegn tilteknum glæpasamtökum frá Mið- og Suður-Ameríku, sem ríkisstjórn hans hefur skilgreint sem hryðjuverkasamtök. Skipunin leggur grunn að mögulegum árásum og áhlaupum á sjó og innan landamæra annarra ríkja. Erlent 8. ágúst 2025 15:46
Chicharito biðst afsökunar á karlrembunni Javier Hernandez, einnig þekktur sem Chicharito og var áður leikmaður Manchester United og landsliðsfyrirliði Mexíkó, hefur beðist afsökunar á karlrembulegum ummælum sem hann var sektaður fyrir. Fótbolti 25. júlí 2025 09:32
Karlremban Chicharito í klandri Javier Hernandez, einnig þekktur sem Chicharito og var áður leikmaður Manchester United og landsliðsfyrirliði Mexíkó, hefur verið sektaður fyrir karlrembuleg ummæli á samfélagsmiðlinum TikTok. Fótbolti 24. júlí 2025 07:34
Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að Bandaríkin muni tvöfalda tolla á innflutt stál og ál, úr 25 prósent í 50 prósent. Breytingin tekur gildi næsta miðvikudag. Trump greindi frá þessu á baráttufundi í Pittsburgh í Pennsylvaníu. Viðskipti erlent 31. maí 2025 07:56
Synir El Chapo sagðir hafa myndað afdrífaríkt bandalag Forsvarsmenn Fíkniefnalögreglu Bandaríkjanna (DEA) vara við því í nýrri skýrslu að miklar sviptingar gætu verið í vændum meðal stærstu glæpasamtaka Mexíkó. Synir hins víðfræga Joaquín Guzmán, eða „El Chapo“, sem hafa háð blóðuga baráttu um yfirráð yfir Sinaloa-samtökunum, eru sagðir hafa gert bandalag við næst stærstu glæpasamtök landsins. Erlent 20. maí 2025 22:40
Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Seglskipi mexíkóska sjóhersins var siglt á hina sögufrægu Brooklyn-brú í New York í Bandaríkjunum seint í gærkvöldi. Tveir létust og nítján særðust í slysinu. Af þeim nítján eru tveir sagðir í lífshættu. Erlent 18. maí 2025 08:07
Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Tveir borgarstjóraframbjóðendur ríkisstjórnarflokks Mexíkó hafa verið myrtir í Veracruz-ríki. Ofbeldi að þessu tagi er gífurlega algengt í Mexíkó og sérstaklega í tengslum við kosningar en sveitarstjórnarkosningar fara fram í ríkinu í næsta mánuði. Erlent 13. maí 2025 15:50
Yfirvöld Mexíkó kæra Google Yfirvöld í Mexíkó hyggjast kæra tæknifyrirtækið Google fyrir að breyta nafni Mexíkóflóa í Ameríkuflóa á landakortunum sínum í Bandaríkjunum. Þetta sagði Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó. Erlent 9. maí 2025 18:37
Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, segist hafa hafnað boði Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að senda bandaríska hermenn yfir landamærin til að aðstoða Mexíkó í baráttunni við glæpagengi. Sheinbaum segir fullveldi landsins ekki til sölu. Erlent 4. maí 2025 08:55
Kemur til móts við bílaframleiðendur vegna tolla Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar að koma til móts við bílaframleiðendur þar í landi og reyna að milda áhrif tolla hans á starfsemi þeirra. Þannig vill hann gefa þeim meiri tíma til að flytja framleiðslu aftur til Bandaríkjanna en Trump ætlar þó að halda háum tollum á innflutta bíla og bílaíhluti. Viðskipti erlent 29. apríl 2025 11:19
Annarri tilraun að Fyre-hátíðinni frestað um ókomna tíð Útihátíðinni Fyre II hefur verið frestað um ókomna tíð. Fyre-hátíðin, sem haldin var af sama skipuleggjanda er sögð misheppnaðasta útihátíð sögunnar. Þeir sem hafa gerst svo djarfir að tryggja sér miða fengu skilaboð um frestunina á dögunum. Lífið 17. apríl 2025 23:50