Indónesía

Indónesía

Höfuðborg: Djakarta. Mannfjöldi: 286,0 milljónir (2025). Flatarmál: 1.904.569 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Malasar í sam­starf við GreenFish

Íslenska tæknifyrirtækið GreenFish undirritaði í dag samstarfssamning við Supratechnic, sem er hluti af USP Group Ltd., um að koma Afla, nýju smáforriti GreenFish fyrir smábátaútgerðir, á markað í Malasíu, Singapúr og Indónesíu.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu

Enn er 129 manns saknað eftir að ferju hvolfdi í Jövuhafi við Indónesíu í slæmu veðri í gær. Búið er að bjarga um 108 manns. Sex í það minnsta eru látin. Alls voru um 243 um borð í ferjunni sem var að fara frá Surabaya í Austur-Jövu til Banjarmasin í Suður-Kalimantan-héraði á Borneo-eyjunni.

Erlent
Fréttamynd

Hætti að drekka og flutti til Balí

„Fyrir þremur árum ákvað ég að taka heilsuna mína algjörlega í gegn. Ég hætti meðal annars að drekka áfengi og skráði mig í diplómanám í heildrænni næringarfræði,“ segir pílateskennarinn og lífskúnstnerinn Silja Geirsdóttir sem er búsett á hinni geysivinsælu eyju Balí með kærastanum sínum Tómasi Óla Eggertssyni.

Lífið
Fréttamynd

Klámleikkona slapp með sekt og brott­vísun

Klámleikkonan Bonnie Blue, sem heitir réttu nafni Tia Billinger, slapp við þungan dóm í Indónesíu og þarf einungis að greiða sekt sem nemur um 1500 íslenskum krónum. Hún verður jafnframt að yfirgefa landið og flýgur á brot í kvöld. 

Lífið
Fréttamynd

Fleiri en þúsund látnir vegna gífur­legra flóða

Að minnsta kosti 604 eru látnir eftir mikil flóð á Indónesíu og að minnsta kosti 464 er enn saknað. Í heildina er vitað til þess að rúmlega þúsund manns hafi dáið vegna flóða í þremur löndum í Suðaustur-Asíu og er rúmlega átta hundruð saknað.

Erlent
Fréttamynd

Tugir látnir eftir flóð í Taí­landi og Indónesíu

Að minnsta kosti 145 eru látnir eftir mikil flóð í suðurhluta Taílands. Dregið hefur úr flóðunum og eru gífurlegar skemmdir að líta dagsins ljós. Áætlað er að flóðin hafi haft áhrif á um 1,2 milljónir heimila og um 3,6 milljónir manna í tólf héruðum Taílands.

Erlent
Fréttamynd

Finna mikla ná­lykt frá rústunum

Björgunarsveitarmenn eru byrjaðir að nota þungavélar í leit að nemendum í rústum skóla sem hrundi í Indónesíu fyrr í vikunni. Talið er hæpið að einhverjir muni finnast á lífi í skólanum en þrjú lík fundust þar í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Tæp­lega hundrað nem­enda saknað

Björgunarsveitarmenn á Indónesíu eru í kapphlaupi við tímann við björgunarstörf í rústum skóla sem hrundi á dögunum. Þrír eru látnir og um hundrað slasaðir en að minnsta kosti 91 nemenda er enn saknað.

Erlent
Fréttamynd

„Balí hefur ein­fald­lega stolið hjarta mínu“

„Mér finnst smá fyndið að ég og Brynjar kynntumst fyrst á Balí þegar við vorum bæði í reisu og núna fimm árum seinna búum við hérna saman,“ segir háskólaneminn Tinna Sól Þrastardóttir sem býr á Balí ásamt kærasta sínum Brynjari Haukssyni. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti.

Lífið
Fréttamynd

Eld­gos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu

Eldgos hófst í morgun í eldfjallinu Lewotobi Laki Laki í Indónesíu. Gosmökkurinn fór í allt að 18 kílómetra hæð og kastaðist yfir nærliggjandi þorp. Ekki hefur verið greint frá dauðsföllum. 

Erlent
Fréttamynd

Býður í sósupartý í Smekk­leysu á sunnu­dag

Denis Finders flutti á síðasta ári með fjölskyldu sinni frá Sviss til Íslands. Denis hefur síðustu ár starfað sem plötusnúður og búið til sterkar sósur í frítíma sínum. Hann lætur nú drauminn rætast um að koma sósunni sinni í sölu á Íslandi eins og í Sviss.

Lífið
Fréttamynd

Inga Lind hlaut blessun á Balí

Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlakona og framleiðandi, er á heimleið eftir ævintýralegt frí á Balí með vinkonu sinni, Áslaugu Huldu Jónsdóttur, fyrrverandi formanni bæjarráðs Garðabæjar. Vinkonurnar deildu myndum frá ferðalaginu á samfélagsmiðlum sínum.

Lífið
Fréttamynd

Frans páfi á far­alds­fæti

Frans páfi mætti í morgun til Jakarta, höfuðborgar Indónesíu en hann mun næstu daga heimsækja fjölmörg ríki við á og við Kyrrahafið.

Erlent
Fréttamynd

Spennandi ferðir til Taí­lands og Balí í haust

Heimsferðir bjóða spennandi ferðir á framandi slóðir í haust og vetur, einmitt þegar sólþyrsta Íslendinga vantar meira D vítamín í kroppinn. Annarsvegar er flogið til Taílands og hins vegar til Balí í Indónesíu. Íslensk fararstjórn er i öllum ferðunum.

Lífið samstarf