Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Íranir skutu í nótt flugskeytum og drónum að bandarískum herstöðvum í Jórdaníu, Kúveit, Íraq og Barein. Voru árásirnar gerðar í kjölfar þess að Bandaríkjamenn hófu árásir á Írani að nýju í gær. Erlent 2.9.2026 06:42
Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Ali prins Al Hussein, sem er einnig forseti knattspyrnusambands Jórdaníu, þakkar fyrir að knattspyrnusambandið hans hafi fengið greitt fyrir þátttöku sína í Arabíska bikarnum – þó að hún hafi komið átta mánuðum of seint. Fótbolti 6.8.2026 23:01
Sakar Infantino um fjárkúgun Ali Bin Al Hussein, prins og forseti knattspyrnusambands Jórdaníu, tekur Gianni Infantino, forseta FIFA, fyrir í langri ræðu sem hann ritar opinberlega. Hann segir FIFA eiga ógreiddar skuldir og sakar Infantino um fjárkúgun fyrir stuðning. Fótbolti 4.8.2026 18:22
Friður forsenda þess að erlent lið verði sent til Gasa Abdullah konungur af Jórdaníu segir að friður sé forsenda þess að erlendur liðsafli verði sendur inn á Gasa. Jórdanía og Egyptaland hafa skuldbundið sig til að koma að því að þjálfa nýtt lögreglulið á Gasa. Erlent 27. október 2025 07:59
Fá Nóbelsverðlaun fyrir þróun málmlífrænna grinda Sænska vísindaakademían hefur ákveðið að veita þeim Susumu Kitagawa, Richard Robson og Omar M. Yaghi Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Þeir fá verðlaunin fyrir „þróun málmlífrænna grinda“. Erlent 8. október 2025 10:05
Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Ben Gvir, mjög svo umdeildur þjóðaröryggisráðherra Ísrael, leiddi í dag hóp gyðinga í bæn á Musterishæðinni í Jerúsalem. Þetta var fordæmalaus bænastund en ísraelskur ráðherra hefur aldrei áður beðið á svæðinu, sem hefur um árabil ítrekað hrundið af stað deilum milli múslima og gyðinga. Erlent 3. ágúst 2025 11:22
Segir Arabaríkin sameinuð í andstöðu sinni við hugmyndir Trump Abdullah II bin Al-Hussein Jórdaníukonungur ítrekaði á samfélagsmiðlum í gær, eftir fund sinn með Donald Trump Bandaríkjaforseta, að Arabaríkin væru sameinuð í andstöðu sinni gegn hugmyndum um flutning Palestínumanna frá Gasa og Vesturbakkanum. Erlent 12. febrúar 2025 07:37
Segir alla íbúa Grænlands vilja undir Bandaríkin Donald Trump Bandaríkjaforseti áréttar þá afstöðu sína að Bandaríkin skuli taka við stjórn Grænlands. Hann sé fullviss í sinni trú að Bandaríkjamönnum muni takast þetta ætlunarverk sitt. Erlent 26. janúar 2025 13:45
Bandaríkin í beinum samskiptum við HTS í Sýrlandi Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Antony Blinken, segir Bandaríkin komin í beint samband við HTS uppreisnarhópinn sem nú stýrir Sýrlandi eftir að Assad stjórninni var ýtt frá völdum. Það er í fyrsta sinn sem Bandaríkjamenn viðurkenna að vera í beinu sambandi við samtökin sem þau skilgreina enn sem hryðjuverkasamtök. Erlent 15. desember 2024 08:31
Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með þjóðaröryggisráði landsins í gær vegna mögulegra hefndaraðgerða Íran gegn Ísrael. Viðbúnaður Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum hefur verið aukinn. Erlent 6. ágúst 2024 07:23
Auka framlag Íslands til UNRWA um hundrað milljónir Ísland eykur framlag sitt til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) um hundrað milljónir. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti um framlagið á ráðstefnu sem hann sótti fyrir hönd forsætisráðherra í Jórdaníu. Samanlagt munu stjórnvöld þá hafa lagt til UNRWA 290 milljónir á þessu ári. Innlent 11. júní 2024 17:33
Ákall um vopnahlé og grið Það eru ekki til nógu sterk orð til að lýsa hörmungunum á Gaza á þann hátt að við getum skilið þjáninguna og sorgina sem fylgir þessum ómannúðlega hernaði í Landinu helga. Staðan er grafalvarleg og ákall um vopnahlé þarf að ná eyrum þeirra sem geta stöðvað ófriðinn, morðin og gjöreyðileggingu samfélagsins sem áður lifði í Gaza. Skoðun 19. febrúar 2024 16:01
Biden segist búinn að ákveða sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist búinn að ákveða sig hvernig brugðist verði við drónaárás í Jórdaníu, þar sem þrír bandarískir hermenn létu lífið og minnst þrjátíu særðust. Forsvarsmenn hópsins sem gerði árásina segjast hættir að gera árásir á Bandaríkjamenn í bili. Erlent 30. janúar 2024 22:31
Skutu drónann ekki niður vegna misskilnings Bandarískir hermenn í herstöðinni Tower 22 í Jórdaníu töldu að dróninn sem banaði þremur hermönnum og særði 34 í gær væri þeirra eigin sem verið væri að fljúga aftur til herstöðvarinnar. Þess vegna hafi hann ekki verið skotinn niður. Erlent 29. janúar 2024 18:57
Bandarískir hermenn féllu í drónaárás í Jórdaníu Þrír bandarískir hermenn féllu og 25 særðust í drónaárás á herstöð Bandaríkjanna í Jórdaníu við landamærin að Sýrlandi í nótt. Erlent 28. janúar 2024 17:44
Krefjast allsherjar banns íþróttafólks frá Ísrael Knattspyrnusamband Jórdaníu hefur krafist þess að íþróttasamfélagið taki höndum saman gegn innrás Ísraela í Palestínu og að ísraelskt íþróttafólk verði bannað frá þátttöku í alþjóðlegum keppnum. Sport 1. janúar 2024 09:01
„Þið getið tekið við þeim“ Abdullah annar, konungur Jórdaníu, þvertók fyrir það í dag að ríki hans eða Egyptaland tækju á móti palestínsku flóttafólki frá Gasaströndinni og Vesturbakkanum. Tryggja þyrfti öryggi fólksins þar sem þau eru. Erlent 17. október 2023 16:28
Þotan lögð af stað að sækja Íslendingana Flugvél Icelandair, sem utanríkisráðuneytið leigði til að sækja Íslendinga í Ísrael, er farin í loftið frá Keflavíkurflugvelli. Farkosturinn er Boeing 757-þotan TF-FIU, sem ber nafnið Hekla Aurora, en hún er máluð í litum norðurljósanna. Innlent 9. október 2023 11:15
Flytja hópinn til Jórdaníu og flogið þaðan til Íslands Um 120 manna hópur Íslendinga sem nú er staddur í Ísrael mun halda til Jórdaníu í dag og verður flogið með hópinn frá höfuðborginni Amman til Íslands í kvöld. Innlent 9. október 2023 08:11
Lítil pilla gefur Assad mikil völd Ein helsta ástæða þess að nágrannar Sýrlands eru tilbúnir til að hleypa Bashar al-Assad, forseta landsins, inn úr kuldanum snýr að flæði fíkniefna frá Sýrlandi. Ríkið framleiðir og leyfir framleiðslu gífurlegs magns af Captagon-amfetamínpillum en hundruð milljóna slíkra pilla hefur verið smyglað til Jórdaníu, Írak, Sádi-Arabíu og annara ríkja Mið-Austurlanda. Erlent 9. júní 2023 22:31
Þrettán manns létu lífið í gasleka Þrettán manns hafa látið lífið og eru rúmlega 250 einstaklingar slasaðir eftir gasleka í borginni Aqaba í Jórdaníu. Íbúar borgarinnar hafa verið beðnir um að loka öllum gluggum og halda sig innandyra. Erlent 27. júní 2022 20:57
Pandóruskjölin afhjúpa auðæfi þjóðarleiðtoga Stærsti fjármálagagnaleki allra tíma afhjúpar leynileg auðæfi og fjármálagerninga margs valdamesta fólks heimsins. Þar á meðal Tonys Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, og konungs Jórdaníu. Erlent 3. október 2021 19:33
Banna umfjöllun um konunglegar deilur í Jórdaníu Ríkissaksóknaraembættið í Jórdaníu hefur lagt bann við alla umfjöllun fjölmiðla þar í landi um deilur milli Abdúlla II konungs og Hamza, hálfbróður hans og fyrrverandi krónprins. Erlent 6. apríl 2021 14:22
Átta særðust í hnífaárás á ferðamannastað í Jórdaníu Átta manns særðust eftir að maður réðst á fólk á vinsælum ferðamannastað í Jerash í Jórdaníu. Erlent 6. nóvember 2019 14:05