Ítalía

Ítalía

Höfuðborg: Róm. Mannfjöldi: 58,9 milljónir (2025). Flatarmál: 301.340 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ís­land Banda­ríkjanna komið í kennslu­bækur

Svo virðist sem breytt heimskipan Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sú sem hann sló eftirminnilega fram á Truth Social og sýndi Grænland og Ísland sem hluta Bandaríkjanna, sé ekki aðeins bundin við hugarheim forsetans. Ísland tilheyrir Bandaríkjunum í nýlegri ítalskri kennslubók. 

Lífið
Fréttamynd

Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr

Plötusnúðurinn DJ Margeir varð innblásinn af stjörnulögfræðingnum Villa Vill og lét smella af sér mynd á skýlu og Versace-skyrtu í Hótel Keflavík. Ljósmyndin gat af sér lagið „Strike a Pose (I'm Wearing Versace)“ með rapparanum Magugu sem þeir frumfluttu á Menningarnótt. Margeir ætlar svo að taka lagið enn lengra og búa til skúlptúr eftir ljósmyndinni.

Tónlist
Fréttamynd

Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka

Utanríkisráðherra Spánar segir að allir þeir sem fóru ólöglega inn í spænsku borgina Ceuta í Marokkó verði sendir til baka. Enginn þeirra hafi komist til meginlands Spánar og engin ógn steðji að Schengen-landamærasamstarfi Evrópuríkja.

Erlent
Fréttamynd

Frederik­sen og Meloni taka höndum saman gegn inn­flytj­endum

Forsætisráðherrar Danmerkur og Ítalíu segjast ætla að standa vörð um kristna menningararfleið Evrópu og krefjast þess að innflytjendur virði þau gildi í sameiginlegri yfirlýsingu. Þeir vilja vísa fleiri innflytjendum á brott og halda hælisleitendum utan álfunnar.

Erlent
Fréttamynd

Spán­verjar taka upp landa­mæra­eftir­lit gagn­vart Ítalíu

Spánn hefur tekið upp landamæraeftirlit á ferðamenn sem koma til landsins frá Ítalíu í kjölfar svipaðra aðgerða Ítalíu gagnvart Spáni. Deilur á milli ríkjanna hafa harðnað eftir að tugþúsundir flóttamanna streymdu inn á spænska sjálfstjórnarsvæðið Ceuta frá Marokkó í síðustu viku.

Erlent
Fréttamynd

Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli

Ítalskir sorphirðustarfsmenn aðstoðuðu konu við að finna lottómiða sem hún hafði hent í ruslið. Eftir tveggja daga leit í ruslahaugi fannst miðinn. Á miðanum var vinningur að verðmæti einnar milljónar evra, sem samsvarar 142 milljónum íslenskra króna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Þúsundir syrgðu Baresi

Þúsundir fólks komu saman til að votta knattspyrnugoðsögninni Franco Baresi virðingu sína í útför hans í Mílanó á Ítalíu í dag. Baresi lést í síðustu viku, 66 ára að aldri.

Fótbolti
Fréttamynd

Stríðið um bað­strendur Ítalíu

Meðan Íslendingar og aðrir ferðamenn úr öllum heimshornum flykkjast til Ítalíu geisar stríð um baðstrendur landsins. Átökin varða hvort ítalskar strendur eigi að vera undirlagðar strandklúbbum eða opnar almenningi. Ítalski sjóherinn og mafían eru bæði sögð viðloðin þennan bardaga.

Lífið
Fréttamynd

Björg­ólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu

Björgólfur Thor Björgólfsson hefur flutt skattalegt heimilisfesti sitt frá Bretlandi til Ítalíu vegna breytinga sem hafa verið gerðar á bresku skattkerfi. Hann þyrfti nú að greiða skatt á tekjum sem hann aflar sér utan Bretlands.

Innlent
Fréttamynd

Fimm­tíu og sjö með stöðu sak­bornings vegna van­rækslu brúar

Fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins sem rak Morandi-brúnna í Genóa fékk tólf ára fangelsisdóm vegna vanrækslu brúarinnar sem hrundi árið 2018. Fjörutíu og þrír létust í slysinu, einu versta samgönguslysi í sögu Ítalíu, en réttað var yfir fimmtíu og sjö manns í dag vegna málsins. 

Erlent
Fréttamynd

Ís­lenska „ljóskan“ slær í gegn í tísku­heiminum

„Ég fór frá því að hafa búið í sama húsinu alla ævi yfir í að flytja til Mílanó án þess að þekkja nokkurn, en borgin varð furðufljótt kunnugleg,“ segir hin 23 ára gamla Fanney Birna fatahönnunarnemi í Mílanó sem var að fá spennandi atvinnutækifæri í Madríd. Blaðamaður ræddi við hana um lífið erlendis, ævintýrin, hversdagsleikann og fleira.

Lífið
Fréttamynd

Allir og amma þeirra á Ítalíu

Svakaleg hitabylgja hefur riðið yfir Ítalíu síðastliðnar tvær vikur en það hefur þó ekki stoppað íslenska ferðalanga sem flykkjast til landsins í massavís. Fjöldi Íslendinga hefur verið í sumarfríi á stígvélinu góða síðustu vikurnar, urmull leikara, poppstjörnur og annað gott fólk.

Lífið
Fréttamynd

Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Ís­lendinga

Tónlistarkonan Una Stefánsdóttir var að skruna á Íslendingabók þegar hún rakst á formóður sína í þrettánda ættlið, Skólastiku Gamalíelsdóttur, sem var uppi á sextándu öld. Una vakti athygli á nafninu á Fésbókinni og opnaði þar ormagryfju fyrir grínara landsins. Nafnið á langa sögu þó aðeins einn Íslendingur hafi borið það.

Menning
Fréttamynd

Lét drauminn rætast á Ítalíu

„Þetta gerist þegar þú ert ekki að leita,“ segir Svana Símonardóttir sem fann draumahúsið sitt á Ítalíu í fyrra. Að koma í húsið var í fyrstu eins og að stíga í tímavél og ferðast beint aftur til ársins 1970. Kominn var tími á endurbætur sem Svana og eiginmaður hennar Ríkarð réðust í.

Lífið
Fréttamynd

Aldrei upp­lifað annan eins hita í Lundúnum

Íslendingur sem búsettur er í Lundúnum segist aldrei hafa upplifað annan eins hita í borginni. Banvæn hitabylgja ríður yfir Evrópu og eru líkur á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi.

Innlent