Danmörk

Danmörk

Höfuðborg: Kaupmannahöfn. Mannfjöldi: 6,0 milljónir (2025). Flatarmál: 43.094 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Telur að múslimar geti ekki verið Svíar

Leiðtogi sænska fjarhægriflokksins Svíþjóðardemókrata segir að trúaðir múslimar geti ekki talist sænskir. Nýkjörinn þingmaður í Danmörku sætir harðri gagnrýni fyrir að efast um þjóðerni talskonu annars flokks.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Upp­nám í bláu blokkinni eftir dönsku kosningarnar

Tveir nýkjörnir þingmenn úr röðum bláu blokkarinnar svonefndu í Danmörku voru reknir úr flokkum sínum vegna hneykslismála um helgina. Einn leiðtoga hennar segir út um bláu blokkina. Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram eftir helgarfrí á morgun.

Erlent
Fréttamynd

Hera verður ást­kona JFK

Íslenska leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun leika Ingu Arvad, danskan blaðamann sem átti í ástarsambandi við JFK, í nýrri þáttaröð um uppgang Kennedy-fjölskyldunnar á síðustu öld og hvernig John F. Kennedy komst úr skugga eldri bróður síns.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn

Hvorki rauða né bláa blokkin náði hreinum meirihluta í þingkosningunum í Danmörku. Rauða blokkin fékk 84 þingsæti en sú bláa fékk 77. Moderaterne-flokkur Lars Løkke Rasmussen fékk fjórtán sæti og er í lykilstöðu fyrir stjórnarviðræður, sem gætu reynst flóknar en Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hefur útilokað áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Sósíaldemókrataflokki Mette Frederiksen.

Erlent
Fréttamynd

Útgönguspá: Ríkis­stjórninni refsað en Løkke í lykil­stöðu

Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir, allra helst Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra, tapa fylgi í þingkosningum í kvöld samkvæmt útgönguspám. Samt er Lars Løkke Rasmussen úr Moderaterne í lykilstöðu hvað varðar stjórnarmyndun, þar sem hvorki rauða né bláa blokkin fær hreinan meirihluta.

Erlent
Fréttamynd

Lista­maður reyndi að kaupa at­kvæði

Danskur listamaður hefur verið handtekinn eftir að hafa reynt að kaupa atkvæði á kjördag. Hann birti færslu þar sem hann bauð kjósendum þrjú hundruð þúsund króna málverk ef þeir greiddu atkvæði með Enhedslisten í þingkosningunum sem haldnar eru í dag.

Erlent
Fréttamynd

Græn­lendingar gætu verið í lykil­stöðu

Danir ganga að kjörborðinu í þingkosningum í dag og mjótt er á munum milli rauðu og bláu blokkarinnar samkvæmt könnunum. Grænlendingar kjósa einnig tvo fulltrúa inn á danska þingið og fyrrverandi formaður jafnaðarmannaflokksins þar í landi segir stuðning þeirra geta reynst mikilvægan.

Innlent
Fréttamynd

Danir ganga að kjör­borðinu í afar spennandi kosningum

Danir ganga að kjörborðinu í þingkosningum í dag en Mette Frederikssen forsætisráðherra boðaði óvænt til kosninganna fyrir um mánuði síðan. Jafnaðarmannaflokkur hennar hefur átt undir högg að sækja undanfarið og kom meðal annars illa út úr síðustu sveitarstjórnarkosningum.

Erlent
Fréttamynd

Til­búnir til að sprengja flug­brautir á Græn­landi

Þegar danskir hermenn voru fluttir til Grænlands í janúar höfðu þeir með sér sprengiefni. Þau átti að nota til að sprengja flugbrautir í Nuuk og Kangerslussuaq, til að gera Bandaríkjamönnum erfiðara um vik með að senda hermenn til Grænlands. Þetta var ef Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, myndi reyna að taka Grænland með hervaldi, eins og hann hafði gefið til kynna að kæmi til greina.

Erlent
Fréttamynd

Gengst við kókaín­n­eyslu rétt fyrir kosningar

Leiðtogi Frjálslynda bandalagsins í Danmörku viðurkennir að hann hafi neytt kókaíns eftir að hann tók forystu flokksins. Hann mælist nú þriðji stærsti flokkurinn í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar í næstu viku.

Erlent
Fréttamynd

„Við erum ekki hrædd“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þakkaði Mark Carney forsætisráðherra Kanada fyrir forystuna sem hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi og talaði um tómarúm sem fylla hefði þurft.

Innlent
Fréttamynd

Upp­ljómun í Kaup­manna­höfn breytti lífinu

„Þarna stend ég í fyrsta sinn í lífinu andspænis þessari tilfinningu að maður er dauðlegur. Að það er ekkert sjálfsagt í þessu lífi og það getur allt gerst á örskotsstund,“ segir leikarinn og lífsglaði listamaðurinn Jakob van Oosterhout. Jakob er fæddur árið 1997 og kom nýverið sem stormsveipur inn í íslenska leiklistasenu.

Lífið
Fréttamynd

Kvarnast upp úr græn­lensku lands­stjórninni

Siumut-flokkurinn er hættur þátttöku í landsstjórn Grænlands vegna ágreinings við samstarfsflokkanna sem tengast yfirvofandi þingkosningum í Danmörku. Vivian Motzfeldt sem mikið hefur mætt á sem utanríkisráðherra undanfarið hverfur þannig úr ríkisstjórnin.

Erlent
Fréttamynd

Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana

René Redzepi, stofnandi danska veitingastaðarins Noma, er hættur hjá fyrirtækinu í kjölfar ásakana um að hann hafi beitt starfsmenn andlegu og líkamlegu ofbeldi. Noma þótti um skeið einn besti veitingastaður í heimi.

Erlent
Fréttamynd

„Þið vitið full­kom­lega hvað er í pakkanum“

„Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum,“ sagði Uffe heitinn Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, við mbl.is í marz 2017 en hann var mikill hvatamaður þess að Ísland gengi í Evrópusambandið, var hér oft í veiði og þekkti umræðuna hér vel.

Skoðun
Fréttamynd

Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu

Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins.

Viðskipti erlent