Íran

Íran

Höfuðborg: Teheran. Mannfjöldi: 89,6 milljónir (2025). Flatarmál: 1.648.195 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að stríðið gegn Íran gæti verið búið innan skamms. Vísaði hann til þess að þar væri „nánast ekkert eftir til að ráðast á“. Embættismenn í bæði Bandaríkjunum og Ísrael segjast þó vera að undirbúa sig fyrir áframhaldandi árásir í að minnsta kosti tvær vikur.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Utan vallar: Hjá­kát­leg yfir­lýsing í skugga stríðs

Gianni Infantino, forseti FIFA, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa fullvissað sig um að landslið Írans sé velkomið til Bandaríkjanna á HM í sumar og að mótið muni sameina heiminn. Orð hans virka hjákátleg á meðan gestgjafinn ræðst á eitt þátttökuríkjanna og útilokar stuðningsmenn frá því að sjá þar leiki. 

Fótbolti
Fréttamynd

Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts

Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, sendi olíumarkaði í enn eina sveifluna en gífurlegt flökt hefur verið á olíuverði undanfarna daga vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Með einu tísti frá Wright féll verðið mjög hratt en í einungis nokkrar mínútur.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið

Í það minnsta fimm landsliðskonur Írans í fótbolta hafa strokið eftir þátttöku liðsins á Asíumótinu í Ástralíu. Leikmenn liðsins sættu harðri gagnrýni heimafyrir á meðan mótinu stóð og sagðar svikarar á stríðstímum.

Fótbolti
Fréttamynd

Íranir enn víg­reifir

Byltingavörðurinn í Íran segir að Íranir muni ákveða hvenær átökum lýkur, ekki Bandaríkin eða Ísrael. Þá muni stjórnvöld þar í landi ekki leyfa „einum dropa“ af olíu að komast frá Mið-Austurlöndum ef árásir halda áfram.

Erlent
Fréttamynd

„Höfum ekki unnið nóg“

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að átökin við Íran verði yfirstaðin „innan tíðar“ en að Bandaríkin eigi enn eftir að hrósa fullnaðarsigri. Hann segir Bandaríkjaher hafa tekist að eyðileggja allt að níutíu prósent af hernaðarinnviðum í landinu undanfarna tíu daga. 

Erlent
Fréttamynd

Vaxandi ótti við lang­varandi á­tök

Vaxandi ótti við langvarandi átök í Mið-Austurlöndum er meginástæða þess að heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp. Verðið á olíutunnunni hækkaði um tuttugu prósent á einum degi og segir hagfræðingur skell eins og þennan hafa sérlega mikil áhrif á litla þjóð.

Erlent
Fréttamynd

Skutu niður eld­flaugar í land­helgi Tyrk­lands

Stjórnvöld í Tyrklandi, Katar, Barein, Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa skotið niður íranskar eldflaugar í landhelgi þeirra í dag. Á sama tíma hafa Ísraelar og Bandaríkjamenn haldið linnulausum árásum á Íran áfram. 

Erlent
Fréttamynd

Kveikt í púður­tunnu í Mið-Austurlöndum

Stríð geisar í Mið-Austurlöndum, sem ógnar lífi og limum íbúa á svæðinu, orkubúskap heimsins og pólitískum- og efnahagslegum stöðugleika almennt. Þá er fátt eitt talið til. Tilefnislaust, segja sumir. Tímabært, segja aðrir. Eitt þykir víst; lagt var í styrjöldina án djúprar greiningar á mögulegum afleiðingum, sem gætu orðið gríðarlega umfangsmiklar og náð langt út fyrir Íran og nágrannaríkin. Enginn virðist vita hvert endamarkið er né hvenær því verður mögulega náð.

Erlent
Fréttamynd

Sonur Khamenei nýr leið­togi Írans

Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Íran. Hann tekur við af föður sínum, Ayatollah Ali Khamenei, sem lést í loftárásum Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna þann 28. febrúar.

Erlent
Fréttamynd

Ræddust við í síma í kjöl­far um­mæla Trump um Breta

Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands ræddust við í síma í dag um málefni Mið-Austurlanda og samvinnu Breta og Bandaríkjamanna í stríðinu gegn Íran. Enn hefur ekki verið tilkynnt um hver sé nýr leiðtogi Íran.

Erlent
Fréttamynd

Loks komnar af átakasvæðinu: „Á­tján tímar af þroti“

Fjórar vinkonur sem voru að hefja heimsreisu þegar þær festust á átakasvæði í Mið-Austurlöndunum hafa loks komist þaðan. Þær fréttu af því að þær hefðu fengið pláss í flugferð í útvarpinu, þurftu að komast yfir landamæri með ókunnugum heimamanni og dvelja á flugvelli í fleiri klukkustundir í hópi Rúmena.

Innlent
Fréttamynd

Hóta öllum mögu­legum arf­tökum Khamenei

Donald Trump forseti Bandaríkjanna útilokar ekki að senda bandaríska hermenn til Mið-Austurlanda en segist hafa nánast gjöreytt írönsku stjórninni. Á sama tíma er greint frá því á Guardian að nokkuð víðtæk samstaða hafi náðst um eftirmann æðsta leiðtoga Írans, Ayatollah Ali Khamenei. Það sagði Ayatollah Mohammadmehdi Mirbaqeri, meðlimur sérfræðingaráðsins, í dag, að sögn fréttastofunnar Mehr.

Erlent
Fréttamynd

Óttast að landsliðskonur verði stimplaðar föðurlandssvikarar

Kvennalandslið Íran í fótbolta keppti á Asíumótinu í gærkvöld og landsliðskonurnar ákváðu að taka ekki undir þegar íranski þjóðsöngurinn var spilaður. Lýsandi leiksins í ríkissjónvarpinu segir þær svíkja föðurlandið á stríðstímum og leikmannasamtökin hafa miklar áhyggjur af ummælunum.

Fótbolti
Fréttamynd

Gæti orðið vand­ræða­legt fyrir FIFA

Útlit er fyrir að Íran segi sig úr heimsmeistaramóti karla í fótbolta í sumar sökum árása Bandaríkjanna og Ísraels. Það yrðu söguleg tíðindi og sagnfræðingur segir stöðuna geta orðið vandræðalega fyrir FIFA.

Fótbolti
Fréttamynd

Stríðið í Íran er for­skrift að leiðindum á mörkuðum

Fjárfestar nefna reglulega geopólitík sem vaxandi áhættu fjármálamarkaða og virðast hafa gert það með réttu. Stigmögnun stríðsátaka á milli Írans og bandalagsþjóðanna Ísraels og Bandaríkjanna hefur valdið því að orkuverð hækkar hratt og bæði hlutabréfa- og skuldabréfamarkaðir hafa lækkað á sama tíma.

Umræðan
Fréttamynd

Segir Kúbu brátt munu falla

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa verið „geld“ og að hann vilji að ný forrusta landsins komi vel fram við Bandaríkin og Ísrael, jafnvel þó það yrði ekki lýðræðisríki. Þá segir hann Kúbu brátt munu falla.

Erlent
Fréttamynd

Rússar hjálpa Írönum að finna skot­mörk

Yfirvöld í Rússlandi deila upplýsingum með Írönum um staðsetningar Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum, byggingar og önnur möguleg skotmörk fyrir skotflaugar og sjálfsprengidróna Írana.

Erlent
Fréttamynd

Segir ekkert annað en upp­gjöf Írana koma til greina

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ekkert samkomulag verði gert við klerkastjórnina í Íran. Alger og skilyrðislaus uppgjöf sé það eina sem komi til greina. Eftir að búið sé að velja nýja(n) ásættanlega(n) leiðtoga landsins, sem hann segist vilja fá að velja, geti uppbygging Íran hafist.

Erlent
Fréttamynd

Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum

Handboltamaðurinn Sveinbjörn Pétursson og eiginkona hans eru ekki á heimleið til Íslands frá Ísrael. Þau eru ekki í stöðu til að ferðast í flug sem þeim var boðið frá Jórdaníu eða Sádi-Arabíu, en myndu stökkva upp í næstu vél frá Ísrael. Þau eru þó að eigin sögn örugg, enda með neðanjarðarbyrgi til að skýla sér bæði heima fyrir og á æfingum.

Handbolti