Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlendir fjölmiðlar hafa birt sönnungargögn sem benda til þess að bandarískt flugskeyti hafi hæft stúlknaskóla í Íran. Að minnsta kosti 168 létust í árásinni, af þeim voru langflestir ungir nemendur við skólann. Bandaríkjaforseti segir Írani ábyrga. Erlent 10.3.2026 22:40
Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að dagurinn í dag verði sá ákafasti hingað til, hvað varðar árásir Bandaríkjanna á Íran. Ráðamenn í Íran segjast ætla að berjast áfram en ráðgjafar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, eru sagðir hvetja hann til að finna leið til að binda enda á stríðið. Erlent 10.3.2026 13:39
Íranir enn vígreifir Byltingavörðurinn í Íran segir að Íranir muni ákveða hvenær átökum lýkur, ekki Bandaríkin eða Ísrael. Þá muni stjórnvöld þar í landi ekki leyfa „einum dropa“ af olíu að komast frá Mið-Austurlöndum ef árásir halda áfram. Erlent 10.3.2026 06:42
Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Yfirvöld í Rússlandi deila upplýsingum með Írönum um staðsetningar Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum, byggingar og önnur möguleg skotmörk fyrir skotflaugar og sjálfsprengidróna Írana. Erlent 6. mars 2026 15:30
Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ekkert samkomulag verði gert við klerkastjórnina í Íran. Alger og skilyrðislaus uppgjöf sé það eina sem komi til greina. Eftir að búið sé að velja nýja(n) ásættanlega(n) leiðtoga landsins, sem hann segist vilja fá að velja, geti uppbygging Íran hafist. Erlent 6. mars 2026 14:19
Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handboltamaðurinn Sveinbjörn Pétursson og eiginkona hans eru ekki á heimleið til Íslands frá Ísrael. Þau eru ekki í stöðu til að ferðast í flug sem þeim var boðið frá Jórdaníu eða Sádi-Arabíu, en myndu stökkva upp í næstu vél frá Ísrael. Þau eru þó að eigin sögn örugg, enda með neðanjarðarbyrgi til að skýla sér bæði heima fyrir og á æfingum. Handbolti 6. mars 2026 13:45
Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Rannsakendur Bandaríkjahers telja líklegt að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á árás á stúlknaskóla í suðurhluta Íran í upphafi stríðsins þar. Rannsókn þeirra er ekki lokið en að minnsta kosti 175 dóu í árásinni og þar af mest skólastúlkur. Erlent 6. mars 2026 10:32
Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hafa varað við því að árásir á Íran muni aukast enn á næstu dögum. Ísraelsher sagðist í nótt hafa gert árásir á innviði klerkastjórnarinnar í Tehran og innviði Hezbollah í Beirút. Erlent 6. mars 2026 06:46
Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Ísraelsher segir að Íranir hafi snemma í morgun sent skæðadrífu flugskeyta á skotmörk víðsvegar um Ísrael en enn hafa engar fregnir borist af tjóni vegna þeirra. Erlent 5. mars 2026 06:49
Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Tyrkneska varnarmálaráðuneytið greindi frá því fyrr í dag að varnarkerfi Atlantshafsbandalagsins hefðu skotið niður eldflaug sem skotið var frá Íran og var á leið inn í lofthelgi Tyrklands. Sérfræðingur í varnarmálum segir líklega meira þurfa til að 5. grein Atlantshafssáttmálans verði virkjuð og að Ísland dragist inn í þau átök sem nú standa yfir. Erlent 4. mars 2026 14:50
Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Hernaðaryfirvöldum í Íran annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi. Íranir sögðust í gær hafa fulla stjórn á skipaumferð um sundið og að allir sem fær þar um ættu á hættu að verða fyrir árásum eldflauga eða dróna. Erlent 4. mars 2026 06:40
Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Fjármálaráðherra segir átök í Mið-Austurlöndum, með tilheyrandi hækkun olíuverðs, slæm tíðindi fyrir baráttuna við þráláta verðbólgu. Hann eigi í góðu samtali við aðila vinnumarkaðar og muni kynna aðgerðir á allra næstu dögum. Viðskipti innlent 3. mars 2026 12:08
Vaktin: Átökin breiðast enn út Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. Erlent 3. mars 2026 09:35
Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hefur nú breiðst út um öll Mið-Austurlönd, með gagnárásum Írana á herstöðvar og sendiráð Bandaríkjanna og skotmörk í Ísrael. Erlent 3. mars 2026 06:31
Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran um helgina voru skýlaust brot á alþjóðalögum en hvorki íslenskir né evrópskir ráðamenn hafa treyst sér til þess að fordæma þær frekar en mannrán á forseta Venesúela í vetur. Prófessor í stjórnmálafræði ræðir við Vísi um hvort alþjóðalög skipti máli eða ekki. Innlent 2. mars 2026 13:31
Vaktin: Sprengjum rignir enn Bandaríkjamenn og Ísraelar gera enn árásir á Írana, sem svara fyrir sig með eigin eldflaugum og drónum á nágrannaríki sín. Árásirnar hófust á laugardaginn og verið nánast linnulausar síðan þá. Ísraelar hafa einnig gert árásir á skotmörk í Líbanon og segja þær beinast gegn bandamönnum Íran í Hezbollah, sem skutu eldflaugum að Ísrael í nótt. Erlent 2. mars 2026 09:32
Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leggur nú lokahönd á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um samningaviðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands. Hún segir stríðið í Íran geta haft veruleg áhrif á Íslendinga og að borgaraþjónustan aðstoði nú fjölda Íslendinga erlendis vegna stríðsins. Innlent 2. mars 2026 09:12
Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Íslendingar eru víða í vandræðum í Asíu og Miðausturlöndum vegna lokana. Erlent 2. mars 2026 07:51
Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Háværar sprengingar heyrðust í Jerúsalem, Dúbaí, Doha og Manama í morgun, er Íranir héldu áfram að gera árásir á skotmörk til að hefna fyrir hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael. Erlent 2. mars 2026 06:27
Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran. Það kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga ríkjanna þar sem þeir segja handahófskenndar eldflaugaárásir Írana á nágrannalönd ógna öryggi borgara sinna og bandamanna. Erlent 1. mars 2026 22:31
Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandaríska herinn hafa sökkt níu skipum íranska flotans. Sum þeirra segir hann „stór og mikilvæg“. Erlent 1. mars 2026 17:53
Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Mahmoud Ahmadinejad, fyrrverandi forseti Írans, er látinn eftir að hafa fallið í loftárásum bandaríska og ísraelska hersins í Íran. Erlent 1. mars 2026 15:53
Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila. Erlent 1. mars 2026 15:15
Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Engin skipulögð stjórnarandstaða er til staðar í Íran segir fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum. Útilokað sé að steypa klerkastjórninnni með einungis loftárásum. Innlent 1. mars 2026 13:12