Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Hvorki skip né þota frá Bandaríkjunum tók þátt í kafbátaleitaræfingu NATO við Íslandsstrendur, sem er hluti af Norður-Víkingi. Frá 2006 hafa Bandaríkjamenn leitt æfinguna en þátttaka þeirra var minni í ár en áður. Á næstu misserum stefna Bandaríkin á að draga úr herafla sínum í NATO-ríkjum í Evrópu. Innlent 6.9.2026 13:19
Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Sendinefnd Bandaríkjanna er lent í Kænugarði og gengur nú til fundar við Vlodomir Selenskí Úkraínuforseta. Bandarísku erindrekarnir segjast vonast eftir því að samtalið verði jafn uppbyggilegt og fundur þeirra í gær með Rússlandsforseta. Erlent 6.9.2026 12:36
Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með sendinefnd Bandaríkjaforseta í Moskvu í dag. Sendinefndina skipa erindrekar Donalds Trump og Hvíta hússins, Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Trumps, en tilgangur hennar er að binda enda á innrásarstríðið. Erlent 5.9.2026 23:09
Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Dómarinn í málinu gegn Lindsay Clancy ætlar að gera réttarhöldin gegn henni ógild. Sú ákvörðun hefur þó verið sett á ís vegna áfrýjunar lögmanns Clancy til áfrýjunardómstóls. Kviðdómendur hafa ekki komist að niðurstöðu eftir margra daga tilraunir. Erlent 4. september 2026 15:33
Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Kviðdómendur í málinu gegn Lindsay Clancy munu fá enn einn daginn til að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli hennar. Þetta verður sjöundi dagurinn sem þau munu verja í að reyna að ljúka málinu. Erlent 4. september 2026 13:32
Ákærður fyrir að brjóta á börnum Saksóknarar í Rúmeníu hafa formlega ákært Andrew Tate fyrir hafa selt ólögráða einstaklinga í mansal, fjárþvætti, kynmök við ólögráða einstakling og fyrir að hafa áhrif á vitni. Tristan bróðir hans hefur einnig verið ákærður fyrir að vera samverkamaður Andrews. Erlent 4. september 2026 10:21
Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Dómarinn í morðmáli Lindsay Clancy hefur enn á ný biðlað til kviðdóms að reyna að ná samstöðu um niðurstöðu eftir mikla dramatík í dómsalnum í gær. Clancy er ákærð fyrir að hafa myrt þrjú börn sín á heimili fjölskyldunnar í Massachusetts í janúar árið 2023. Erlent 4. september 2026 07:20
Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hvatti Repúblikana í erfiðri stöðu fyrir þingkosningarnar í nóvember til að byggja kosningabaráttuna á afrekum hans í embætti. Það er þrátt fyrir mjög svo litlar vinsældir forsetans, en hann hefur einnig heitið því að ferðast víðsvegar um Bandaríkin og berjast fyrir frambjóðendur í um 35 kjördæmum sem gætu ráðið úrslitum hvað varðar stjórn fulltrúadeildarinnar næstu tvö ár. Erlent 3. september 2026 23:00
Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Leikkona Carla Jeffery er látin, 33 ára að aldri. Jeffery byrjaði tólf ára gömul að leika í kvikmyndum og sjónvarpi og var þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Curb Your Enthusiasm, Disney-myndinni Zombies og framhaldsmyndum hennar. Bíó og sjónvarp 3. september 2026 15:53
Gloria Steinem er látin Gloria Steinem, blaðamaður, rithöfundur og baráttukona sem ruddi brautina í annarri bylgju femínismans, er látin 92 ára að aldri. Steinem stofnaði femíniska tímaritið Ms. Magazine árið 1971 og varð eitt helsta andlit femínisma í Bandaríkjunum á áttunda, níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Lífið 3. september 2026 11:31
Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bandarískt móðurfélag NetApp á Íslandi svarar ekki spurningum um hvort að starfsfólki hér hafi verið sagt upp störfum. Talsmaður fyrirtækisins segir það „þróa skrifstofueignasafn þess til þess að styðja langtíma viðskipaáætlun þess“. Viðskipti innlent 3. september 2026 10:50
Kviðdómendur fá síðasta séns Kviðdómendur í málinu gegn Lindsay Clancy hafa reynt að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli hennar í fimm daga. Það hefur ekki borið árangur en búist er við því að í dag fái þeir sinn síðasta séns til að komast að niðurstöðu. Annars verður málinu gegn konunni sem kyrkti þrjú ung börn sín vísað frá dómi. Erlent 3. september 2026 10:50
Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Alríkisdómari felldi í gær úr gildi forsetatilskipun Donalds Trump sem ætlað var að binda enda á það að langflest börn sem fæðast í Bandaríkjunum verða sjálfkrafa bandarískir ríkisborgarar. Skipunin var önnur tilraun forsetans til að breyta lögunum sem sett voru árið 1868 með viðbótarákvæði við stjórnarskrá Bandaríkjanna. Erlent 3. september 2026 09:51
Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Seðlabanki Hollands hefur flutt 86 tonn af gullforða sínum frá Bandaríkjunum og Kanada til London í Bretlandi, vegna vaxandi ólgu í alþjóðamálum. Auðveldara verði að selja gullforðann komi til neyðarástands í Bretlandi heldur en í Bandaríkjunum eða Kanada. Viðskipti erlent 3. september 2026 07:50
Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Ráðgjafar Bandraíkjaforseta vilja sjá til þess að forsetinn haldi átökum á Hormússundi í lágmarki fram að þingkosningum í nóvember, í von um að draga ekki enn frekar úr stuðningi við Repúblikana. Engu að síður hafa árásir færst í aukana við sundið undanfarna daga. Erlent 2. september 2026 23:54
Greindu frá dánarmeini Tim Curry Breski leikarinn Tim Curry lést úr kransæðasjúkdómi samkvæmt gögnum frá lýðheilsudeild Los Angeles-borgar. Hann var áttatíu ára gamall. Lífið 2. september 2026 20:42
Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Donald Trump Bandaríkjaforseti spyr í færslu á samfélagsmiðlum hvort hann ætti að breyta heiti Hormússunds í Trumpsund. Nokkrir dagar eru síðan hann tilkynnti um breytingu á Ontaríó-vatni. Erlent 2. september 2026 17:10
Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Bruce Allen Ednie frá Connecticut í Bandaríkunum var gestur á hótel Skjaldbreið í nótt þegar eldur kom upp. Alls voru um 60 gestir á hótelinu þegar kviknaði í um klukkan hálf eitt í nótt. Tveir gestir voru fluttir á slysadeild. Einn var handtekinn stuttu eftir að aðgerðir hófust. Slökkvistarfi lauk um klukkan fjögur í nótt. Innlent 2. september 2026 09:55
Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Aðstoðarforstjóri bandaríska bankans Bank of America var myrt í stunguárás á Times Square torgi í New York borg í Bandaríkjunum í gær. Árásin átti sér stað um miðjan dag og virðist tilefnislaus að sögn lögregluyfirvalda. Erlent 2. september 2026 07:36
Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Tyler Robinson, 23 ára karlmaður frá Utah, neitar sök í ákæru á morðinu á hægrisinnaða áhrifavaldinum Charlie Kirk. Dómari hefur úrskurðað að saksóknarar megi krefjast dauðarefsingar í réttarhöldunum. Erlent 2. september 2026 07:19
Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Íranir skutu í nótt flugskeytum og drónum að bandarískum herstöðvum í Jórdaníu, Kúveit, Íraq og Barein. Voru árásirnar gerðar í kjölfar þess að Bandaríkjamenn hófu árásir á Írani að nýju í gær. Erlent 2. september 2026 06:42
Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Bandaríkjaher hóf árásir á skotmörk íranska byltingarvarðarins í Íran í dag. Árásirnar eru svar Bandaríkjahers við tilraunum byltingarvarðarins til árása á kaupskip á Hormússundi að sögn hersins. Erlent 1. september 2026 17:51
Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kviðdómendur í máli Lindsay Clancy sögðu dómara í dag að þeir gætu ekki komist að einróma niðurstöðu um það hvort hún sé sakhæf eða ekki fyrir að myrða þrjú ung börn sín. Dómarinn bað kviðdómendur um að reyna aftur en þeir hafa reynt að komast að niðurstöðu í fjóra daga. Erlent 1. september 2026 16:36
Apple fær nýjan forstjóra John Ternus er nýr forstjóri bandaríska tæknirisans Apple. Hann tók við starfinu af Tim Cook sem leiddi gegndarlausan vöxt fyrirtækisins í krafti vinsælda snjallsíma þess. Viðskipti erlent 1. september 2026 13:51