Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Högni Kjartan Þorkelsson er laus úr haldi lögreglunnar í Medellín í Kólumbíu. Hann hafði verið sakaður um að brjóta kynferðislega á sextán ára stúlku en var sleppt í síðasta mánuði, eftir að stúlkan breytti framburði sínum. Í samtali við Heimildina segist lögmaður Högna vonast til þess að málinu verði vísað frá. Innlent 12.8.2026 21:01
Þúsunda saknað og tíminn að renna út Björgunarsveitir og óbreyttir borgarar leita enn í rústum bygginga víðsvegar um Kólumbíu eftir að 7,4 stiga jarðskjálfti skók þar jörðu í gær. Jarðskjálftinn olli umtalsverðum skemmdum í vesturhluta landsins. Tala látinna stendur í 250 og 2.595 eru slasaðir og að minnsta kosti 195 er saknað, samkvæmt forseta landsins. Aðrar tölur benda þó til þess að fjöldi þeirra sem er saknað sé nær fjögur þúsund. Erlent 11.8.2026 23:46
Tala látinna komin yfir hundrað Enn er verið að meta manntjón vegna jarðskjálfta af stærðinni 7,4 sem skók vestanverða Kólumbíu í dag. Tala látinna er komin yfir hundrað að sögn forseta landsins. Erlent 10.8.2026 18:53
„Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Kanadískur maður sem gekk undir nafninu „Einræðisherrann“ aðstoðaði yfirvöld í Bandaríkjunum við að handsama Ryan Wedding fyrr á árinu. Einræðisherrann svokallaði heitir Andrew Clark en hann er sagður hafa verið hægri hönd Weddings í að flytja gífurlegt magn kókaíns frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna og Kanada um árabil. Erlent 16. febrúar 2026 14:31
Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Högni Kjartan Þorkelsson, sem situr í gæsluvarðhaldi í Medellín í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot gegn 16 ára stúlku, var í félagi við aðra ólögráða stúlku þegar hann var handtekinn þann 23. desember síðastliðinn. Innlent 17. janúar 2026 07:02
Þúsundir Kólumbíumanna mótmæltu hótunum Trump Þúsundir mótmæltu í borgum Kólumbíu í gær, í kjölfar hótana Donald Trump Bandaríkjaforseta um mögulegar hernaðaraðgerðir gegn landinu. Mótmælendur voru afar harðorðir í garð forsetans. „Trump er djöfullinn, hann er hræðilegasta manneskja í heimi,“ hefur Guardian eftir einum þeirra. Erlent 8. janúar 2026 07:08
Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Íslenskur karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í Medellín í Kólumbíu, grunaður um kynferðisbrot gegn 16 ára gamalli stúlku. Meint brot átti sér stað aðfaranótt 6. desember síðastliðinn. Innlent 23. desember 2025 15:45
Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Sjálfstæðiskonan og fyrrum ráðherran Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir átti 35 ára afmæli í gær og naut dagsins á fjarlægum slóðum. Skvísan er stödd í Kólumbíu þar sem hún fagnaði brúðkaupi vina sinna Davíðs Þorlákssonar og Daniels Barrios Castilla. Lífið 1. desember 2025 09:03
Engin heimild til að granda skipum vegna gruns um smygl við Ísland Hvorki íslensk lög né alþjóðasamningar sem Ísland á aðild að veita yfirvöldum hér heimild til þess að granda skipum á hafsvæðinu við landið eingöngu vegna gruns um fíkniefnasmygl. Bandaríkjastjórn hefur sprengt upp fjölda báta og drepið tugi manna í árásum á meinta smyglbáta að undanförnu. Innlent 20. nóvember 2025 07:01
Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Bandaríkjamenn hafa undanfarnar drepið fjölda manns um borð í bátum undan ströndum Venesúela og Kólumbíu án dóms og laga eða mikils rökstuðnings. Stjórn Trump segir alla bátana hafa verið á leið til Bandaríkjanna með sendingar af fíkniefnum. Öldungadeildarþingmaður segir „raunhæfan möguleika“ á loftárásum á Venesúela. Erlent 26. október 2025 23:48
Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Kókaín hefur aldrei verið ódýrara né hreinna í Bandaríkjunum en það er nú. Neysla þess hefur aukist til muna á undanförnum árum, samhliða umfangsmiklum aðgerðum gegn neyslu fentanýls í Bandaríkjunum og gegn framleiðslu þess í Mexíkó. Erlent 17. september 2025 18:48
„Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Geir Ólafsson söngvari lýsir því í viðtali hjá Sölva Tryggvasyni að hann hafi glímt við kvíðaröskun allt frá því hann var lítið barn og sé jafnframt félagsfælinn. Hann rifjar upp þegar hann söng fyrir Vladimír Pútín Rússlandsforseta sem hafi verið stórmerkileg lífsreynsla. Lífið 18. ágúst 2025 08:43
Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Forsetaframbjóðandi í Kólumbíu var skotinn tvisvar í höfuðið á viðburði í höfuðborg landsins á laugardag. Hann berst enn fyrir lífi sínu eftir neyðarskurðaðgerð. Erlent 8. júní 2025 22:21
Ekkert sem bendi til þess að Víðir hafi stigið yfir strikið Sérfræðingur í stjórnsýslurétti segir ekkert komið fram svo hægt sé að slá því föstu að formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis hafi brotið gegn lögum eða reglum með pólitískum afskiptum sínum af störfum Útlendingastofnunar. Málefnaleg rök geti legið fyrir því að Oscar Bocanegra hafi verið einn tekinn út fyrir sviga af þeim nítján sem voru á framkvæmdarlista um brottvísun. Innlent 5. júní 2025 12:30
„Þetta eru alveg galin vinnubrögð“ Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður allsherjarnefndar Alþingis, gefur lítið fyrir gagnrýni stjórnarandstöðunnar og segir að auðvitað sé um pólitísk afskipti að ræða. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir vinnubrögð Víðis algjörlega galin. Innlent 4. júní 2025 14:30
Forstjóri Útlendingastofnunar vildi skýr svör frá Víði um umsókn Oscars Forstjóri Útlendingastofnunar fór í tölvupósti fram á að fá skýr svör frá Víði Reynissyni, formanni allsherjar-og menntamálanefndar Alþingis, um það hvort undirnefndi nefndarinnar hygðist veita Oscari Boganegra ríkisborgararétt. Átján aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem er til skoðunar að veita ríkisborgararétt, fengu ekki sömu meðferð. Innlent 3. júní 2025 18:43
Brottvísun Oscars frestað Brottvísun Oscars Anders Florez Bocanegra, sautján ára kólumbísks drengs sem til hefur staðið að senda úr landi, verður frestað þar til búið er að fara yfir umsókn hans um íslenskan ríkisborgararétt. Innlent 2. júní 2025 14:21
Oscar fluttur úr landi á þriðjudag Oscar Andres Florez Bocanegra, sautján ára drengur frá Kólumbíu verður fluttur úr landi þriðjudaginn 3. júní. Þessu greinir fósturfaðir hans frá og segir fjölskylduna ætla njóta tímans sem þau hafa saman. Hann gagnrýnir stjórnvöld fyrir aðgerðarleysi í máli drengsins. Innlent 28. maí 2025 20:27
„Og ég treysti því að dómstólar snúi því við“ Helga Vala Helgadóttir lögmaður hins sautján ára Oscars sem til stendur að vísa úr landi hafnar fullyrðingum Útlendingastofnunar um að drengurinn hafi fengið efnislega meðferð. Innlent 26. maí 2025 19:01
Mikill fjöldi mótmælir brottvísun Oscars Fjölmenn mótmæli fara nú fram á Austurvelli vegna brottvísunar Oscar Anders Bocanegra Florez, sautján ára drengs frá Kólumbíu. Innlent 26. maí 2025 15:55
Oscar hafi veitt takmörkuð svör Kærunefnd útlendingamála hefur birt umdeildan úrskurð sinn þar sem umsókn hins sautján ára gamla Oscar Anders Florez Bocanegra um landvistarleyfi er hafnað. Boðað hefur verið til mótmæla við upphaf þingfundar við Austurvöll í dag en fósturforeldrar Oscars segjast ráðalaus vegna málsins, engin svör fáist frá ráðamönnum og embættismenn ráði för. Innlent 26. maí 2025 12:01
„Hafa ekki lyft litla fingri í máli Oscars“ Fósturforeldrar Oscars Anders Florez Bocanegra, sem til stendur að vísa úr landi í upphafi júní, segja að hann verði hætt kominn endi hann aftur út á götum Bogotá í Kólumbíu. Síðast hafi hann þurft að þola hræðilegar raunir. Ákvörðunin sé mikið áfall. Innlent 24. maí 2025 20:06
Beiðni Oscars hafnað: „Það bíður hans engin birta, það er enginn þarna“ Kærunefnd útlendingamála hefur hafnað því að taka umsókn hins sautján ára Oscars Anders Florez Bocanegra um landvistarleyfi til efnislegrar meðferðar. Honum verður því að óbreyttu vísað einum úr landi og til Kólumbíu í upphafi júní. Farið verður með málið fyrir dómstóla. Innlent 24. maí 2025 12:31
Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Sonja Magnúsdóttir og Svavar Jóhannsson, fósturforeldrar Oscars Anders Florez Bocanegra frá Kólumbíu, segjast orðin svartsýn á að hann fái að vera áfram á landinu. Oscar hefur fengið endanlega synjun og á að fara frá landi en niðurstaðan er þó til meðferðar fyrir dómi. Svavar og Sonja telja að líta eigi á málið sem barnaverndarmál frekar en útlendingamál. Innlent 13. maí 2025 09:28