Brasilía

Brasilía

Höfuðborg: Brasilía. Mannfjöldi: 221,4 milljónir (2025). Flatarmál: 8.515.770 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Ofsa­hræðsla í lágloftunum: Eldur kviknaði í hreyfli við flug­tak

Ofsahræðsla greip um sig meðal farþega flugvélar Delta Air Lines þegar henni var flogið á loft í Sao Paulo í Brasilíu í gær. Rétt eftir flugtak slökknaði á öðrum hreyfli vélarinnar með miklum látum og hvellum og kviknaði í honum. Engan sakaði þó og tókst flugmönnum flugvélarinnar að snúa við og framkvæma neyðarlendingu.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ancelotti vill að Brasilía spili eins og á „kjöt­kveðju­há­tíð“

Það styttist í heimsmeistaramótið í fótbolta en það er keppnin þar sem flestir bíða spenntir eftir að sjá Brasilíumenn spila og tíminn þegar brasilíska þjóðin leggst nánast á hliðina. Núna eru Brasilíumenn með ítalskan þjálfara í brúnni sem gerir ekkert nema að ýta undir spennuna að sjá hvað sigursæll evrópskur þjálfari getur afrekað með liðið.

Fótbolti
Fréttamynd

Hætta ó­vænt við tónleikaferðalög sín

Iðnaðarteknósveitin Hatari hefur hætt við tónleikaferðalag sitt um Evrópu í febrúar án nokkurrar skýringar. Í síðustu viku hætti rokkhljómsveitin The Vintage Caravan við tónleikaferðalag sitt vegna andlegrar þreytu.

Tónlist
Fréttamynd

„Lægsti sam­nefnari“ sagður niður­staðan á COP30

Niðurstöðu COP30-loftslagsráðstefnunnar í Brasilíu er lýst sem „lægsta möguleg samnefnara“. Óljós markmið um stóraukin framlög til aðlögunar þróunarríkja að loftslagsbreytingum og útfösu og hert losunarmarkmið er að finna í ályktun sem opnar í fyrsta skipti á möguleikann að hlýnun fari tímabundið yfir viðmið Parísarsamkomulagsins.

Erlent
Fréttamynd

Ís­land sagt meðal ríkja sem mót­mæla út­vatnaðri á­lyktun COP30

Ágreiningur ríkir nú um orðalag lokaályktunar loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Brasilíu þar sem svo virðist að hvergi verði minnst á nauðsyn þess að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Tæplega þrjátíu ríki mótmæltu áformum gestgjafanna harðlega í gærkvöldi, Ísland þeirra á meðal.

Erlent
Fréttamynd

Feta ein­stigi milli metnaðar og raun­sæis í lofts­lags­mark­miði

Markmið íslenskra stjórnvalda um samdrátt í losun er krefjandi en þau reyna að finna jafnvægi á milli raunsæis og metnaðar, að sögn loftslagsráðherra. Samningamenn Íslands á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna hafi farið að heiman með þau skilaboð að krefjast afgerandi samdráttar í losun.

Innlent
Fréttamynd

Kom til á­taka á mót­mælum vegna COP30

Fjöldi mótmælenda fóru inn á loftslagsráðstefnuna COP30 sem er nú haldin í Brasilíu. Það kom til átaka á milli mótmælendanna og öryggisvarða, sem læstu ráðstefnugesti inni á meðan átökin stóðu.

Erlent