Hvað er að frétta?

Hvað er að frétta?

Um skemmti- og fréttaskýringarþátt er að ræða þar sem Tómas Arnar fer yfir helstu fréttamál og umfjöllunarefni sem brenna á fólki í hverri viku. Fjallað er um stóru málin á léttu nótunum og á mannamáli.

Fréttamynd

Leiðin­leg frekja segist hvorki leiðin­leg né frek

Stóra málið sem var tekið fyrir í þætti þrjú var að þessu sinni örlítið sjálfhverft. Fréttamennska og fjölmiðlar á Íslandi voru í brennideplinum. Í þættinum ákvað þáttastjórnandi að sýna á bak við tjöldin vegna vaxandi umræðu um fréttamennsku í samfélaginu. 

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Guð­laugur Þór villtist inn í mynd­ver

Í nýjasta þættinum af Hvað er að frétta? vakti það kátínu margra þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, virtist villast inn í myndver fréttastofu Sýnar með hárnet og svuntu. Tilefnið var auðvitað kjördæmavika þingmanna.

Innlent
Fréttamynd

Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervi­greind?

Stóra málið sem var tekið fyrir í þætti tvö varðaði gervigreindina enda virðist fátt annað rætt við matarborð landsmanna þessa dagana. Miklar vendingar hafa orðið í gervigreindarheiminum og virðast Bandaríkin og Kína leggja allt í sölurnar til að verða ofan á í gervigreindarkapphlaupinu.

Innlent