Fleiri fréttir

Reyna að ná samkomulagi um aðgerðir í efnahagsmálum

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, ætlar að freista þess í dag að ná samkomulagi við þingmenn repúblikana um aðgerðir í efnahagsmálum til að koma í veg fyrir víðtækar skattahækkanir og niðurskurð í ríkisútgjöldum.

Clinton með blóðtappa

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton, greindist með blóðtappa í gær. Hún hefur því verið lögð á sjúkrahús en hún fékk aðsvif fyrr í mánuðinum og féll niður og fékk heilahristing við höggið samkvæmt frétt BBC.

Fimm fílar urðu fyrir lest

Fimm fílar drápust í skóglendi skammt frá borginni Bubaneshwar í austurhluta Indlands, þegar farþegalest skall á þeim síðastliðinn sunnudag. Forsvarsmenn járnbrautarfélagsins eru sakaðir um að leiða hjá sér viðvaranir um umferð fílanna, en sjálfir segja þeir þær hafa borist of seint. Tugir fíla hafa drepist eftir árekstra við járnbrautarlestir á Indlandi undanfarin ár, en indverski fílastofninn telur um 26.000 skepnur. -hva

Thatcher komin af spítala

Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, var útskrifuð af spítala á laugardag eftir að æxli við þvagblöðru hennar var fjarlægt. Breskir fjölmiðlar greina frá því að aðgerðin hafi lukkast vel. Heilsu Thatcher, sem er 87 ára, hefur hrakað undanfarinn áratug. Hún hefur lítið verið í sviðsljósinu eftir ítrekuð heilablóðföll sem hún fékk árið 2002. Thatcher var forsætisráðherra Breta á árunum 1979 til 1990.-

Der Spiegel hljóp á sig

Þýska vikublaðið Der Spiegel gerði þau pínlegu mistök að birta minningargrein um George Bush eldri, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, þrátt fyrir að hann væri enn á lífi.

Flugritar eru nú rannsakaðir

Flugritar rússnesku flugvélarinnar sem hrapaði í Moskvu á laugardag eru nú rannsakaðir, ásamt eldsneytissýnum úr vélinni. Enn er ekki vitað hvað olli slysinu.

Bjóða þrjú kíló af gulli fyrir dráp

Deild Al-kaída í Jemen hefur lagt fé til höfuðs bandaríska sendiherranum í Sanaa og hermönnum Bandaríkjahers í landinu. Hverjum þeim sem tekst að drepa sendiherrann eða amerískan hermann er lofað tugþúsundum Bandaríkjadala.

Hataði múslima og hindúa

Lögreglan í New York hefur handtekið liðlega þrítuga konu sem grunuð er um að hafa hrint manni í veg fyrir neðanjarðarlest.

Konan jarðsungin í gær

Ung kona sem var fórnarlamb hópnauðgunar í strætisvagni í Delí á dögunum var jarðsungin í gær með líkbrennslu en hún lést á sjúkrahúsi í Singapore, þar sem hlúð hafði verið að sárum hennar.

Farþegaflugvél brotlenti í Moskvu

Farþegaflugvél brotlenti við Vnukovo-flugvöllinn í Moskvu á tólfta tímanum í dag. Tólf manns voru um borð í flugvélinni.

Thatcher óttaðist árás á Gíbraltar

Fjölmörg trúnaðarskjöl úr fórum Margaret Thatcher hafa verið gerð opinber. Þar er meðal annars að finna róttæk áform um niðurskurð velferðarkerfisins. Einnig kemur í ljós að hún taldi hættu á því að Spánverjar hygðust hertaka Gíbraltar.

Þingið fundar um helgina

Bandarísk verðbréf hafa lækkað jafnt og þétt í verði síðustu daga af ótta við að ekki náist samkomulag í fjárlagadeilunni á Bandaríkjaþingi fyrir áramót. Barack Obama kom fyrr heim úr jólafríi sínu en áætlað var og kallaði þingið til funda yfir helgina, í von um lausn á síðustu stundu.

Mest lesnu erlendu fréttir ársins 2012

Mest lesnu erlendu fréttir ársins á Vísi eru af margvíslegum toga. Þó má segja að fréttir af sviplegu fráfalli Whitney Houston hafi vakið mikla athygli, en hún lést í febrúar. Þá vekur athygli að fólk er enn með hugann við Madeleine McCann sem hvarf í Portúgal fyrir tæpum sex árum síðan. Ekkert hefur spurst til hennar en lögreglumenn telja þó líklegt að hún geti verið á lífi.

Schwarzkopf látinn

Fyrrum bandaríski hershöfðinginn Norman Schwarzkopf lést í gær, áttatíu og sjö ára að aldri, en banamein hans er óljóst á þessari stundu.

Var 64 ára þegar Gagarín fór út í geim

Japaninn Jeroemon Kimura, sem hefur verið elsti karlmaður í heimi um nokkurt skeið, er nú orðin elsta manneskja í heiminum, eftir að hin bandaríska Dina Manfredini lést um miðjan mánuðinn, 115 ára að aldri. Kimura er 115 ára og 254 daga gamall.

Spilaði sama leik og blaðamennirnir

Bandarískur bloggari hefur birt heimilisföng og símanúmer helstu starfsmanna dagblaðsins Journal News eftir að gagnvirkt landakort var birt á vef blaðsins þar sem nöfn og heimilisföng allra skammbyssueigenda í New York voru birt.

Var Whitney Houston drepin?

Whitney Houston var drepin af fíkniefnasölum og það eru til upptökur úr öryggismyndavélum sem sanna það. Þetta segir Paul Huebl einkaspæjari sem hefur rannsakað dauða hennar síðustu mánuði.

Bush enn fárveikur

George Bush eldri liggur enn fárveikur á spítala með mikinn hita. Hann var upphaflega lagður inn á spítala þann 7. nóvember síðastliðinn vegna bronchitis en var svo útskrifaður aftur þann 19. nóvember. Þann 23. nóvember var hann svo lagður aftur inn vegna þráláts hósta og hita.

EA vísaði á byssuframleiðendur

Bandaríski tölvuleikjarisinn Electronic Arts (EA) markaðssetti stríðsleikinn Medal of Honor Warfighter í október með því að vísa beint af vefsíðu leiksins á vefsíður byssuframleiðenda.

Ferðin tekur átta tíma í stað 20

Lengsta háhraðalestarleið heims var tekin í notkun í Kína í gær, og er ekið frá höfuðborginni Beijing til viðskiptastórborgarinnar Guangzhou, sem er skammt frá Hong Kong.

Af hverju valdi Time Obama persónu ársins? Hefur breytt landslaginu

Barack Obama vann bandarísku forsetakosningarnar í nóvember og fékk umboð til þess að halda áfram sem forseti næstu fjögur árin. Time valdi hann mann ársins, ekki síst með þeim rökum að hann hafi nú þegar breytt stjórnmálaáhuga í Bandaríkjunum og virkjað samfélagshópa sem áður voru útundan.

Gengur til liðs við uppreisnarmenn

Yfirmaður herlögreglunnar í Sýrlandi er flúinn úr landi og gengin til liðs við uppreisnina gegn Bashar al-Assad, forseta landsins.

Ættleiðingarfrumvarpið samþykkt

Efri deild rússneska þingsins samþykkti samhljóða í morgun umdeilt frumvarp sem felur í sér bann við ættleiðingu rússneskra barna til Bandaríkjanna.

Tugir hafa látist í kuldakasti

Að minnsta kosti tuttugu og fimm hafa látið lífið í miklu kuldakasti sem nú gengur yfir norðurhluta Indlands.

Ölvaður ók stolnum bíl á flugbrautinni

Breti var handtekinn á Schiphol flugvellinum í Amsterdam í morgun eftir að hann keyrði ölvaður á stolnum bíl á flugbrautinni. Maðurinn var á leiðinni heim til sín þegar hann ýtti á öryggishnapp við eitt hliðið, rauk út og stal bíl sem var í eigu eins flugvallarstarfsmanns.

Þrjú börn létust í umferðarslysí í Englandi

Þrjú börn létust í umferðarslysis á M6 hraðbrautinni í Staffordskíri í Englandi á hádegi í dag. Að sögn breska ríkissjónvarpsins hafa tvær konur verið fluttar á slysadeild mikið slasaðar. Miklar umferðartafir hafa verið á hraðbrautinni síðustu daga vegna rigningar í landinu.

Hélt miðnætturmessuna tveimur tímum fyrr

Þúsundir kristinna pílagríma eru nú í Betlehem til þess að fagna fæðingu frelsararans. Að venju var haldin messa í hinni sautjánhundruð ára gömlu fæðingarkirkju frelsarans, sem stendur þar sem talið er að Jesús hafi komið í heiminn.

Tveir slökkviliðsmenn myrtir

Tveir slökkviliðsmenn voru myrtir og tveir aðrir særðust þegar þeir brugðust við brunaútkalli í bænum Webster í New York ríki í gær.

Mandela á spítala yfir jólin

Nelson Mandela, fyrsti þeldökki forseti Suður-Afríku, verður á spítala um jólin. Þetta kemur fram í tilkynningu sem forsetaembættið sendi fjölmiðlum í dag. Mandela, sem er orðinn 94 ára, var lagður inn á spítala fyrir tveimur vikum og hefur gengist undir meðferð vegna lungnasýki og gallsteinaaðgerð. Suður-Afríkubúar eru farnir að hafa verulegar áhyggjur af heilsu hans, eftir því sem fréttastofa BBC greinir frá.

Sjá næstu 50 fréttir