Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Eldri maður frá Albaníu bar vitni í Dettifossmálinu svokallaða í gegnum fjarfundarbúnað við aðalmeðferð málsins síðdegis. Viðstaddir gátu ekki haldið í sér hlátri yfir vitnisburði hans. Hann spurði til að mynda hvers vegna verið væri að ræða sakamál á Íslandi við hann, þar sem nóg væri af sakamálum í Albaníu. Þá kom teiknimyndapersónan Herra Lína við sögu. Innlent 16.9.2026 18:00
Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Kastriot Pepaj, sem ákærður er í Dettifossmálinu svokallaða, segist enga aðkomu hafa átt að innflutningi fíkniefna. Þá hafi lögregla sjálf komið fíkniefnum fyrir heima hjá honum, en um sex grömm af marijúana fundust heima hjá honum. Innlent 16.9.2026 15:00
Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Sævar Hilmarsson, sem ákærður er fyrir skipulagningu innflutnings fíkniefna í Dettifossmálinu svokallaða, neitaði að svara spurningum sækjanda málsins þegar hann gaf skýrslu við aðalmeðferð þess. Þess í stað las hann upp yfirlýsingu þar sem hann lýsti yfir sakleysi sínu og sagðist ekki treysta því að hann fengi réttláta málsmeðferð af hálfu ákæruvaldsins. Innlent 16.9.2026 13:43
Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Kastriot Pepaj og Sævar Hilmarsson hafa verið ákærðir í umfangsmiklu fíkniefnamáli vegna innflutnings á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaskipi Eimskips. Tveir skipverjar á Dettifossi eru einnig ákærðir í málinu. Innlent 7. júlí 2026 19:03
Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Tveir menn eru grunaðir um að hafa í sameiningu skipulagt innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínbasa til Íslands með Dettifossi, gámaskipi Eimskips, í apríl. Mennirnir fengu tvo skipverja Eimskips til að aðstoða við innflutninginn. Mennirnir fjórir hafa verið í gæsluvarðhaldi frá því í apríl en búast má við því að gefin verði út ákæra í málinu á næstu dögum. Innlent 1. júlí 2026 20:15
Þrjár vikur til stefnu í umfangsmiklu fíkniefnamáli Fjórir menn sitja enn í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaskipi Eimskips. Innlent 16. júní 2026 11:35
Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Gæsluvarðhald yfir fjórum mönnum vegna rannsóknar á smygli á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með gámaflutningaskipinu Dettifossi hefur verið framlengt. Innlent 13. maí 2026 12:02
Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli sem snýr að innflutningi á rúmlega fjórtán lítrum af amfetamínbasa, að sögn lögreglu. Áður kom fram að þrír þeirra hafi verið handteknir í viðamiklum aðgerðum um miðjan apríl í tengslum við meintan innflutning með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips. Innlent 29. apríl 2026 17:27
Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með gámaflutningaskipinu Dettifossi. Lögregla hefur ráðist í húsleit hjá tveimur þeirra. Innlent 24. apríl 2026 21:15
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í rannsókn lögreglu á innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, hefur verið framlengt. Einn þeirra sætir varðhaldi í tvær vikur til viðbótar en hinir tveir, sem eru starfsmenn Eimskips, í eina viku hvor. Innlent 21. apríl 2026 15:24
Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Stórfellt smyglmál um borð í Dettifossi er talið geta haft veruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á landi, að sögn lögreglu. Lagt var hald á rúmlega 14 lítra af amfetamínbasa og þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins, þar á meðal tveir starfsmenn Eimskips sem hafa ekki áður komið við sögu lögreglu. Innlent 16. apríl 2026 18:32
Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Lögregla hald á um tug lítra af fíkniefnum í vökvaformi um borð í Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, á mánudag samkvæmt heimildum fréttastofu. Innlent 15. apríl 2026 18:38
Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Samskiptastjóri Eimskips segir að fyrirtækið líti ætlaðan innflutning á fíkniefnum um borð í Dettifossi mjög alvarlegum augum. Tveir starfsmenn félagsins eru meðal þriggja sem sæta nú gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar. Innlent 15. apríl 2026 12:07
Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Tveir starfsmenn Eimskipa sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að smygli á verulegu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni í vökvaformi. Húsleit var framkvæmd á heimili þriðja manns sem var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. Innlent 14. apríl 2026 19:17
Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Karlmaður á fertugsaldri sem lögreglu grunar um umfangsmikið smygl fíkniefna með Dettifossi var síðast handtekinn af lögreglu í janúar grunaður um alvarlega líkamsárás á þorrablóti í Kópavogi. Lögregla réðst í húsleit á heimili hans á höfuðborgarsvæðinu í gær og lagði hald á fjölmarga muni í eigu hans. Alls voru sex handteknir og sæta þrír gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á innflutningi á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Innlent 14. apríl 2026 15:52
Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Einn hið minnsta hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhalds vegna innflutnings fíkniefna með gámaflutningaskipi Eimskips. Innlent 14. apríl 2026 15:10
Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu réðst í handtökur í gær í tengslum við meintan innflutning fíkniefna til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla til rannsóknar innflutning með gámaflutningaskipi Eimskips og var með viðbúnað á hafnarsvæði fyrirtækisins fyrri part dags í gær. Innlent 14. apríl 2026 11:19