50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Lovísa Arnardóttir skrifar 24. september 2026 14:46 Kristján Freyr Kristjánsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri 50skills Aðsend Fyrirtækið 50skills hefur tryggt sér sex milljónir Bandaríkjadala í fjármögnun til áframhaldandi vaxtar og þróunar á sviði sjálfvirknivæðingar mannauðsferla. Það samsvarar um 729 milljónum íslenskra króna.
Í tilkynningu kemur fram að fjármagnið verði nýtt til að fjölga starfsfólki í sölu- og markaðsmálum og efla uppbyggingu notendasamfélags 50skills. Jafnframt verði áfram fjárfest í þróun lausnarinnar. Frumtak, Swiss Post Ventures, Avant og bandaríska fjárfestingafélagið DRD Investments leiddu fjármögnunina í sameiningu samkvæmt tilkynningu. Meðal viðskiptavina 50skills hér á landi eru Icelandair, Festi, Bláa lónið, Eimskip, Domino’s, Isavia og Orkuveita Reykjavíkur, auk opinberra aðila á borð við utanríkisráðuneytið og Reykjavíkurborg. 50skills hjálpar mannauðsteymum að sjálfvirknivæða ferla, nýta gervigreind, tengja saman kerfi og draga úr handvirkri umsýslu. Fyrirtæki á Íslandi, Norðurlöndum og Bretlandi hafa framkvæmt yfir fjórar milljónir sjálfvirkra aðgerða í 50skills á undanförnum 12 mánuðum samkvæmt tilkynningu. Teymið sem vinnur að baki 50skills.Aðsend Minni handavinna Í tilkynningu segir að ávinningurinn birtist meðal annars í verkefnum sem áður kröfðust mikillar handavinnu. Til að mynda hafi Icelandair fært yfir 20 mannauðsferla á stafrænt form og sparað sem nemur fjögurra til fimm mánaða vinnu við umsýslu á ári. Þar séu meðal annars yfir 3.000 kvittanir vegna heilsustyrkja yfirfarnar árlega í 50 skills samkvæmt reglum félagsins. Þá spari Air Atlanta um 50 vinnustundir á viku með sjálfvirkni í einu ferli við afgreiðslu vegabréfsáritana, sem jafngildir meira en einu fullu starfi. Íslandshótel hafi svo stytt afgreiðslutíma umsókna um starfsmannahlunnindi um 80 prósent á 18 hótelum, mál sem áður tóku klukkustundir taka nú aðeins fimm mínútur og í sumum tilvikum þurfi mannauðsteymið ekki lengur að koma að afgreiðslunni. Þá hafi Samskip samræmt mannauðsferla fjögurra dótturfyrirtækja og sjálfvirknivætt móttöku nýliða í ferli sem telur yfir 150 aðgerðir.
Bandaríkin Mannauðsmál Tækni Gervigreind Mest lesið Mikill munur á afkomu almannatengla Viðskipti innlent Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Viðskipti innlent Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Atvinnulíf Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Viðskipti innlent Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Viðskipti innlent Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Viðskipti innlent Krónan frystir verð til áramóta Neytendur Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Viðskipti innlent Hægst á verðhækkun á matvöru Neytendur Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Viðskipti innlent Fleiri fréttir 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Sjá meira