Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir að vilja auka réttindi samkynhneigðra Vincent Nichols, erkibiskup rómversk-kaþólsku kirkjunnar í Englandi og Wales, gagnrýnir stjórnvöld þar í landi harðlega fyrir áform um að heimila hjónabönd samkynhneigra, en til stendur að slík hjónabönd verði leyfð á árinu 2014. 25.12.2012 21:18
Ölvaður ók stolnum bíl á flugbrautinni Breti var handtekinn á Schiphol flugvellinum í Amsterdam í morgun eftir að hann keyrði ölvaður á stolnum bíl á flugbrautinni. Maðurinn var á leiðinni heim til sín þegar hann ýtti á öryggishnapp við eitt hliðið, rauk út og stal bíl sem var í eigu eins flugvallarstarfsmanns. 25.12.2012 14:56
Þrjú börn létust í umferðarslysí í Englandi Þrjú börn létust í umferðarslysis á M6 hraðbrautinni í Staffordskíri í Englandi á hádegi í dag. Að sögn breska ríkissjónvarpsins hafa tvær konur verið fluttar á slysadeild mikið slasaðar. Miklar umferðartafir hafa verið á hraðbrautinni síðustu daga vegna rigningar í landinu. 25.12.2012 13:16
Hélt miðnætturmessuna tveimur tímum fyrr Þúsundir kristinna pílagríma eru nú í Betlehem til þess að fagna fæðingu frelsararans. Að venju var haldin messa í hinni sautjánhundruð ára gömlu fæðingarkirkju frelsarans, sem stendur þar sem talið er að Jesús hafi komið í heiminn. 25.12.2012 11:42
Tveir slökkviliðsmenn myrtir Tveir slökkviliðsmenn voru myrtir og tveir aðrir særðust þegar þeir brugðust við brunaútkalli í bænum Webster í New York ríki í gær. 25.12.2012 11:29
Samþykktu að hefja viðræður um gerð alþjóðasáttmála um vopnasölu Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta að hefja viðræður um gerð alþjóðasáttmála um vopnasölu en um er að ræða 70 milljarða dollara markað á heimsvísu. 25.12.2012 11:17
Mandela á spítala yfir jólin Nelson Mandela, fyrsti þeldökki forseti Suður-Afríku, verður á spítala um jólin. Þetta kemur fram í tilkynningu sem forsetaembættið sendi fjölmiðlum í dag. Mandela, sem er orðinn 94 ára, var lagður inn á spítala fyrir tveimur vikum og hefur gengist undir meðferð vegna lungnasýki og gallsteinaaðgerð. Suður-Afríkubúar eru farnir að hafa verulegar áhyggjur af heilsu hans, eftir því sem fréttastofa BBC greinir frá. 24.12.2012 20:10
Upptökur frá jólahaldi árið 1902 Fólki gefst nú færi á að kynna sér jólahald eins og það var í Bretlandi árið 1902. Sérfræðingar við Lundúnarsafn hafa uppgötvað nokkrar upptökur frá Wall-fjölskyldunni þar sem heyra frá jólasöngva. 24.12.2012 14:52
Monti mun ekki gefa kost á sér Mario Monti, sem leitt hefur sérfræðingaríkisstjórn á Ítalíu í rúmt ár, mun ekki bjóða sig fram í þingkosningunum þar í landi í febrúar næstkomandi þrátt áskoranir þess efnis. 24.12.2012 09:18
Mikill snjór í Danmörku - samgöngur liggja víða niðri Samgöngur í Danmörku eru víða lamaðar eða liggja niðri vegna mikils fannfergis síðustu daga. 23.12.2012 17:25
Konunglegt brúðkaup í Svíþjóð Sænska kongunsfjölskydlan færði sænsku þjóðinni gleðitíðindi í dag þegar hún tilkynnti að Madeleine prinsessa og unnusti hennar Christopher O'Neill ætli að gifta sig í júní næstkomandi. 23.12.2012 14:46
Jólin án Maddie litlu erfiðasti tími ársins - trúa enn að hún sé á lífi Kate McCann, móðir Madeleine McCann sem hvarf sporlaust í Portúgal árið 2007, vonast til að portúgalska lögreglan hefji rannsókn á hvarfi hennar á nýjan leik. 23.12.2012 14:44
Ný stjórnarskrá samþykkt Egyptar samþykktu nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu sem lauk í gær. Boðað verður til þingkosninga innan þriggja mánaða. 23.12.2012 13:34
Var með 96 snáka í töskunni Egypskur karlmaður var handtekinn í gærkvöldi á flugvellinum í Cairó en tollverðir fundu 96 snáka í farangri hans. Maðurinn var við það að ganga um borð í flugvélina sem var á leið til Sádí Arabíu þegar þetta uppgötvaðist. 23.12.2012 10:23
Eldflaugar Norður-Kóreu drífa til Bandaríkjanna Nýlegt eldflaugarskot Norður-Kóreumanna sýnir að flaugar þeirra geta drifið meira en tíu þúsund kílómetra. Þetta fullyrða stjórnvöld í Suður-Kóreu. Þetta þýðir flaugarnar geta verið ógn við íbúa á vesturströnd Bandaríkjanna. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur sagt eldflaugaskotið brot á samkomulagi sem í gildi er. 23.12.2012 10:20
Hundrað dauðsföll á viku Yfir hundrað dauðsföll, þar sem skotvopn hafa komið við sögu, hafa orðið í Bandaríkjunum á rétt rúmri viku. Þetta kemur fram á vef Huffington Post. Á föstudag fyrir rúmri viku lét óður byssumaður til skarar skríða í Sandy Hook barnaskólanum í Connecticut. 26 manns, mest allt sex og sjö ára gömul börn, létu lífið í árásinni. Síðan þá hefur verið hart deilt um skotvopnalöggjöfina í Bandaríkjunum. 23.12.2012 08:16
Páfinn náðaði bryta sinn Benedikt sextándi páfi náðaði í dag fyrrverandi bryta sinn, Paolo Gabriele, sem var dæmdur í átján mánaða fangelsi í október síðastliðnum fyrir að koma leynilegum minnisblöðum til fjölmiðla. 22.12.2012 17:06
Nauðguðu konu í strætó og hentu henni út á ferð Táragasi og vatnsbyssum hefur verið beitt á mótmælendur í Dehli á Indlandi sem hafa síðustu daga krafist réttlætis í hryllilegu nauðgunarmáli sem kom upp síðustu helgi. 22.12.2012 14:37
Vilja vopnaða verði í hvern einasta skóla "Það eina sem getur stöðvað illmenni með byssu er góðmenni með byssu,“ segir Wayne LaPierre, framkvæmdastjóri Landssamtaka bandarískra byssueigenda (NRA). 22.12.2012 00:30
Fjárlagaþverhnípið blasir við Vonir hafa á ný dvínað um að lausn finnist á deilum repúblikana og demókrata um fjárlagaþverhnípið svonefnda í tæka tíð fyrir áramót. 22.12.2012 00:00
Milljarður búinn að horfa á Gangnam Style Einn milljarður manna hafa horft á myndbandið með Suður-kóreska tónlistarmanninum Psy - það er að segja við lagið Gangnam Style, á Youtube. 21.12.2012 21:08
Ofursnekkja Steve Jobs kyrrsett - heimsfrægur hönnuður krefst greiðslu Hönnuðurinn heimsfrægi, Philippe Starck, hefur látið kyrrsetja ofursnekkjuna Venus sem hann hannaði fyrir tölvugúrúið Steve Jobs. 21.12.2012 20:59
Undarleg hönnun nýja geimbúningsins - Bósi Ljósár? Frumgerð nýjasta geimbúnings NASA var opinberuð á dögunum. Hreyfigeta búningsins markar risavaxið stökk í þróun geimbúninga. En það er útlit hans sem hefur vakið hvað mesta athygli. 21.12.2012 14:36
Maðurinn sem bauð eldfjallinu byrginn Fornleifafræðingar í Japan fundu á dögunum beinagrind manns sem grófst undir ösku við rætur eldfjallsins Haruna á sjöundu öld. Fundurinn hefur vakið gríðarlega athygli í Japan, ekki síst fyrir þær sakir að maðurinn virðist hafa snúið að eldfjallinu mikla og mögulega reynt að róa það. 21.12.2012 14:10
Everestfjall í nýju ljósi - Ljósmyndin er 3.8 milljarðar pixlar Kvikmyndagerðarmaðurinn og göngugarpurinn David Breashears eyddi síðasta sumri í að taka rúmlega 400 myndir af Everestfjalli og hlíðum þess. Hann hefur nú birt risavaxna ljósmynd af fjallinu mikla sem hefur vakið athygli víða um heim. 21.12.2012 13:12
Bandaríkjamaður í haldi í Norður-Kóreu Bandarískur ríkisborgari er í haldi í Norður-Kóreu. Þetta staðfestu þarlend yfirvöld í dag. Talið er að maðurinn, sem er 44 ára gamall, hafi verið handtekinn í byrjun á þessa mánaðar, grunaður um að hafa framið glæpi gegn norður-kóreska ríkinu. 21.12.2012 12:02
Telja að H.C. Andersen hafi ekki skrifað nýfundna ævintýrasögu Sérfræðingar í skrifum danska skáldsins H.C. Andersen eru langt í frá sammála um að nýfundin saga sem eignuð er honum sé ekta eða ekki. 21.12.2012 09:48
Giftist morðingja tvíburasystur sinnar Tuttugu og tveggja ára argentísk kona hefur samþykkt að giftast manni sem var dæmdur fyrir það að myrða tvíburasystur hennar fyrir tveimur árum. Konan, sem heitir Edith Casas, er þess fullviss að maðurinn, sem heitir Victor Cingolani, hafi ekki myrt systur sína, en sú hafði einnig verið ástkona hans. Cingolani afplánar nú þrettán ára fangelsi fyrir morðið í bænum Pico Truncado í Argentínu. Fólkið segist ætla að gifta sig í dag í fangelsinu, sem er í Santa Cruz. 21.12.2012 09:31
Yngri bróðir Madoff dæmdur í 10 ára fangelsi Peter Madoff yngri bróðir Wall Street svikarans Bernie Madoff hefur verið dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir sinn þátt í ponzi svikamyllu eldri bróður síns. 21.12.2012 06:22
Þingflokksformaður Repúblikana auðmýktur á þingi John Boehner formaður þingflokks Repúblikana í bandarísku fulltrúadeildinni var auðmýktur af eigin þingmönnum í gærkvöldi. 21.12.2012 06:19
Síðasti karlinn frá 19. öldinni Hinn 115 ára gamli Jiroemon Kimura var í vikunni formlega útnefndur elsti lifandi einstaklingur heims. Hann er auk þess síðasti lifandi karlinn sem fæddist á nítjándu öld, að því er segir á vef Berlingske. 21.12.2012 01:30
Rússar svara með ættleiðingarbanni Dúman, neðri deild rússneska þingsins, samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta lagafrumvarp sem felur í sér bann við því að Bandaríkjamenn ættleiði börn frá Rússlandi. 21.12.2012 01:00
Kemur 35 manns fyrir í örkinni Pieter van der Meer, íbúi í bænum Kootwijkerbroek í Hollandi, taldi rétt að hafa varann á og fékk sér norskan björgunarbát, fari svo að heimsendir verði í dag. 21.12.2012 00:30
Baðst samt ekki afsökunar „Ég viðurkenni þær þjáningar sem nýlendukerfið olli íbúum í Alsír,“ sagði François Hollande Frakklandsforseti í Algeirsborg í gær, þar sem hann var í opinberri heimsókn. 21.12.2012 00:00
Ekkert bólar á heimsendi í Ástralíu - enn sem komið er Heimsendir ætti að vera hafinn, það er að segja í Ástralíu. þar er kominn nýr dagur, sá síðasti ef spár reynast réttar. Aftur á móti hefur enginn í Ástralíu orðið var við dramatískar breytingar, í það minnsta ekki samkvæmt frásögn á vefnum Heraldsun. 20.12.2012 20:06
Eitt þúsund í haldi fyrir að spá heimsenda Kínversk yfirvöld handtóku í dag hátt í eitt þúsund liðsmenn sértrúarsafnaðarins "Guð almáttugur.“ Þeim er gefið að sök að hafa valdið skelfingu í Kína með því að staðhæfa að ragnarök séu á næsta leiti. 20.12.2012 16:04
Svona gæti heimsendir átt sér stað Umræðan um meintan heimsendi á morgun, þann 21. desember, nær nú hámarki. Vísindamenn og sérfræðingar hafa ítrekað bent á að engar líkur séu á ragnarökum. En hættan er sannarlega til staðar. Hér fyrir neðan verður farið yfir nokkrar aðstæður sem gætu markað endalok mannkyns. 20.12.2012 15:21
Heimsendir Maya: Hollendingurinn og örkin Hollendingurinn Pieter Frank van der Meer er sannfærður um að ragnarök séu á næsta leiti. Því hefur hann boðið fjölskyldu sinni og 50 ættingjum að leita skjóls í nýstárlegri örk sem hann hefur komið fyrir í garðinum sínum. 20.12.2012 13:12
Tónlistarmenn líklegir til að deyja ungir ef þeir vinna einir Tónlistarmenn sem vinna einir, eins og Amy Winehouse og Jimmy Hendrix, eru líklegri til þess að deyja fyrr en tónlistarmenn sem eru í hljómsveitum. Þetta kemur fram í tímaritinu BMJ Open, en BBC segir ítarlega frá greininni í dag. Í rannsókninni er ferill 1400 evrópskra og bandarískra tónlistarmanna skoðaður. Tónlistarmennirnir voru allir þekktir á árunum 1956-2006. 20.12.2012 09:58
Fundu syngjandi frosk og gangandi fisk Syngjandi froskur, gangandi fiskur og slanga með rúbínrauð augu eru meðal þeirra nýju dýrategunda sem fundist hafa í árósum Mekong fljótsins í Víetnam á síðastliðnu ári. 20.12.2012 09:37
Helmingur karlmanna í hættu á að fá krabbamein Ný spá sýnir að helmingur karlmanna er í þeirri hættu að fá krabbamein. Þetta er nokkru hærra hlutfall en fyrri rannsóknir hafa sýnt. 20.12.2012 06:41
Kimura er eini karlmaðurinn á lífi sem fæddur er fyrir árið 1900 Japaninn Jiroemon Kimura er elsti lifandi jarðarbúinn í dag, 115 ára að aldri. Hann er jafnframt eini karlmaðurinn sem enn er á lífi sem er fæddur fyrir árið 1900 og hefur því lifað á þremur öldum. 20.12.2012 06:39
Fallhlífastökkvari lá látinn á akri í sjö daga Fallhlífastökkvari fannst fyrir tilviljun látinn á akri í Hollandi eftir að hafa hrapað þar til dauða fyrir viku síðan. 20.12.2012 06:37
Þjóðaratkvæði um sjálfstæði Katalóníu árið 2014 Samkomulag hefur náðst um að þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði Katalóníu héraðs á Spáni verði haldin árið 2014. 20.12.2012 06:34
Park er fyrsti kvenforseti Suður Kóreu Park Geun-Hye sigraði í forsetakosningum í Suður Kóreu og verður því fyrsti kvenforseti landsins. Hún er ekki ókunnug forsetahöllinni því hún er dóttir fyrrum einræðisherra Suður Kóreu. 20.12.2012 06:28