Erlent

Jólin án Maddie litlu erfiðasti tími ársins - trúa enn að hún sé á lífi

Madeleine var fjögurra ára þegar hún hvarf
Madeleine var fjögurra ára þegar hún hvarf
Kate McCann, móðir Madeleine McCann sem hvarf sporlaust í Portúgal árið 2007, vonast til að portúgalska lögreglan hefji rannsókn á hvarfi hennar á nýjan leik.

Í viðtali við breska blaðið Mirror í gær segir hún að það gæti orðið til þess að fjölskyldan gæti átt yndisleg jól saman, en hún segir jólin án Madeleine litlu séu erfiðasti tími ársins.

„Við hugsum stanslaust um hana og þá sérstaklega núna um jólin þegar við erum að setja upp jólaskrautið með tvíburunum okkar. Þá langar okkur að hafa hana hjá okkur," segir hún.

„Við erum djúpt snortin yfir stuðningum sem við höfum fengið öll þessi ár. Við erum meðvituð um það að án almennings er ómögulegt að finna hana," segja þau.

Madeleine var fjögurra ára þegar hún hvarf og trúa foreldrar hennar því ennþá að hún sé á lífi, ef það er rétt er Madeleine orðin níu ára gömul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×