Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Árás gerð á forsetahöllina í Kabúl Eldflaugaárás var gerð á forsetahöllina í Afganistan í morgun. Enginn slasaðist í árásinni en að minnsta kosti ein eldflaug lenti á forsetahöllinni og önnur á höfuðstöðvum lögreglunnar í Kabúl. 18.8.2009 08:42
Kim Dae-Jung er látinn Fyrrverandi forseti Suður Kóreu, Kim Dae-Jung er látinn 85 ára að aldri. Hann var lykilmaður á leið Suður Kóreu til lýðræðis og fékk hann friðarverðlaun Nóbels á sínum tíma fyrir að koma á viðræðum við leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong Il. Læknar segja að Dae-Jung hafi látist af völdum hjartaslags. 18.8.2009 08:41
Talsmaður Talíbana handtekinn í Pakistan Yfirvöld í Pakistan segjast hafa handtekið mann sem talinn er vera helsti talsmaður Talíbana í landinu. Maulvi Omar er sagður hafa verið einn helsti aðstoðarmaður Baitullah Mehsuds sem talið er að hafi látist í sprengjuárás á dögunum. Fjölmiðlar greina frá því að talsmaðurinn hafi verið handtekinn í bíl rétt við afgönsku landamærin í gær. 18.8.2009 08:39
Óttast um tugi manna Óttast er um tugi manna eftir að slys varð í stærstu vatnsaflsvirkjun Rússlands í gær. Staðfest var að tíu væru látnir, en allt að 65 að auki var saknað. Fjórtán slasaðir voru fluttir á sjúkrahús. 18.8.2009 04:15
Átta handteknir fyrir ránið á Actic Sea Rússar hafa handtekið átta menn fyrir að ræna flutningaskipinu Arctic Sea. Skipið hvarf á Ermarsundi fyrir nærri þremur vikum. 18.8.2009 03:00
Komust yfir upplýsingar 130 milljóna greiðslukorta Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir að misnota um 130 milljónir greiðslukorta sem notuð voru í verslunum Heartland Payment Systems, 7-Eleven og Hannaford Brothers Co. Samkvæmt saksóknaranum sem fer með málið er þetta stærsta greiðslukortasvindl sögunnar. 17.8.2009 23:45
Segir nauðsynlegt að yfirbuga Talibana svo 9/11 endurtaki sig ekki Barack Obama segir nauðsynlegt að yfirbuga Talibana í Afganistan til að koma í veg fyrir álíka hryðjuverk og áttu sér stað þann 11. september 2001. 17.8.2009 22:20
Andlit Iceland keðjunnar rekið eftir kókaínhneyksli Vandræðagemsinn Kerry Katona, sem áður var í hljómsveitinni Atomic Kitten, hefur verið rekin sem andlit Iceland verslunarkeðjunnar í Bretlandi eftir kókaínhneyksli.Þetta kemur fram á fréttavef Sky. Iceland keðjan var áður í eigu Baugs en nú eru skilanefndir Landsbankans og Glitnis stærstu hluthafarnir. 17.8.2009 19:56
Morðið í Óðinsvéum: Sló stelpuna 20 sinnum Fertugur danskur karlmaður sem er grunaður um að hafa myrt 13 ára gamla dóttur sína í Óðinsvéum í gær hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í fjórar vikur. Samkvæmt læknisráði verðiur maðurinn vistaður á geðdeild á gæsluvarðhaldstímanum. 17.8.2009 15:46
Kanada ásælist Norðurpólinn Kanadamenn hafa skipulagt viðamiklar heræfingar við Norður heimskautið á næstunni en æfingarnar eru sagðar vera liður í þeirri viðleitni Kanadamanna að minna á sig og tilkall sitt til svæðisins en margir renna nú hýru auga til svæðisins og þeirra auðlinda sem það hefur að geyma. 17.8.2009 11:13
19 látnir í sprengingu í Ingúsetsíu Að minnsta kosti nítján eru látnir eftir að sprengja sprakk við höfuðstöðvar lögreglunnar í Ingúsetsíu sem er múslímskt sjálfstjórnarhérað í Rússlandi. Sprengingin varð í Nazran, stærstu borg héraðsins og talið er að hún hafi innihaldið 20 kílógrömm af sprengiefninu TNT. 17.8.2009 11:08
Kókaíndollarar algengir í Bandaríkjunum Á níu af hverjum tíu peningaseðlum í umferð í Bandaríkjunum má finna leifar af Kókaíni. Þetta kemur fram í nýrri alþjóðlegri rannsókn þar sem skoðaðir voru seðlar frá þrjátíu borgum í Bandaríkjunum auk þess sem seðlar frá Japan, Canada, Brasilíu og Kína. 17.8.2009 08:40
Sundmaðurinn í Burma látinn laus John Yettaw, Bandaríkjamaðurinn sem synti yfir stöðuvatn til þess að heimsækja Búrmíska stjórnarandstöðuleiðtogann Aung San Suu Kyi hefur verið látinn laus. 17.8.2009 08:30
Þrettán bretar hafa fallið í Afganistan það sem af er ágústmánuði Yfirmenn breska hersins í Afganistan segja að hermennirnir þar séu staðráðnir í að halda baráttunni Talíbana áfram þrátt fyrir mikil átök og hækkandi dánartölur. Nú hafa 204 breskir hermenn fallið í Afganistan frá því Bretar hófu afskipti af málum þar árið 2002. Þrettán hermenn hafa fallið í ágúst og fjórir um liðna helgi en hermennirnir reyna nú að auka öryggi borgara í landinu til þess að unnt verði að halda kosningar þar síðar í vikunni. 17.8.2009 08:06
Karzai nýtur mest stuðnings Hamid Karzai, sitjandi forseti Afganistans, nýtur mests stuðnings forsetaframbjóðenda í skoðanakönnun sem birt var í kvöld en forsetakosningar fara fram landinu næstkomandi laugardag. 16.8.2009 23:30
Aukið öryggi opnar á möguleika um frekari aðstoð Árangur Pakistana í að ná til baka lykillandssvæðum af Talibönum gefur þeim frekara svigrúm til viðræðna við Bandaríkjamenn um orku og efnahagsmál. Þetta sagði sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í heimsókn sinni til Pakistans í dag. 16.8.2009 22:30
Mannskæð sprengjuárás í Bagdad Tvær sprengjur sprungu á sama tíma í kvöld við vinsælan veitingastað í hverfi shíta múslima í austurhluta Bagdad, höfuðborg Íraks. Að minnsta kosti sex féllu og á þriðja tug særðust í árásinni. 16.8.2009 21:15
Enn loga eldar í Kaliforníu Eldar loga enn í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum en vonar standa til að slökkviliðsmenn nái von bráðar tökum á eldum í grennd við borgina Santa Cruz sunnan af San Francisco. 16.8.2009 21:00
Tuttugu pör létu pússa sig saman á íþróttaleikvangi í Bosníu Tuttugu múslímsk pör létu pússa sig saman á Zenica leikvanginum í Bosníu í gærkvöld og sögðu skipuleggjendur þetta stærstu sharía gifingaveislu sem haldin hefur verið að múslímskum sið í Evrópu. 16.8.2009 18:54
Stærsta muffinskaka í heimi Stærsta muffinskaka í heimi var bökuð í dag en hún vegur hvorki meira né minna en hálft tonn, og rúmlega það. Kakan var bökuð í bakarí í Michigan í Bandaríkjunum en þetta var önnur tilraun til þess að slá heimsmetið. 16.8.2009 18:51
Ráðist á borgarstjóra Ofbeldismaður vopnaður málmröri réðist á borgarastjóra Milwaukee í gærkvöldi. Árásin er ekki sögð tengist starfi hans. 16.8.2009 17:35
Faðir myrti 13 ára gamla dóttur sína Fertugur danskur karlmaður er í haldi lögreglu grunaður um að hafa myrt 13 ára gamla dóttur sína á heimili þeirra í Óðinsvé í dag. Móðir stúlkunnar hringdi á lögreglu eftir að átök upphófust á heimili fjölskyldunnar. Stúlkan var flutt á sjúkrahús en hún látin áður en þangað var komið. 16.8.2009 15:26
Smábarn lést eftir fall af hótelsvölum 18 mánaða breskur drengur lést eftir að hann féll af hótelsvölum á ítölsku eyjunni Sardiníu í gær. Drengurinn var í sumarfríi með fjölskyldu sinni á eyjunni og voru foreldar hans að skipta um föt þegar slysið varð. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn en hann hlaut alvarlega höfuðáverka. 16.8.2009 15:14
Bjargaði eigin lífi Ellefu ára bresk stúlka náði á síðustu stundu að bjarga lífi sínu þegar bíll sem hún sat í, féll fram af kletti og ofan í sjó. 16.8.2009 13:00
200 breskir hermenn hafa fallið í Afganistan frá 2001 Yfir 200 breskir hermenn hafa fallið í Afganistan frá því stríðið hófst þar árið 2001. Nú um helgina létust tveir. Gordon Brown, forsætisráðherra, sagði sumarið hafa verið sérlega erfitt en árangur hefði þó náðst í baráttunni við hryðjuverkamenn og merki um það væru komandi forsetakosningar í Afganistan. 16.8.2009 12:38
Tvær rússneskar herþotur hröpuðu Tvær rússneskar herþotur hröpuðu í morgun en undirbúningur fyrir stóra flugsýningu stendur nú yfir í Rússlandi. Flugvélarnar voru hluti af úrvalshópi Rússnesku riddaranna, en þær voru við æfingar þegar þær skullu saman. 16.8.2009 12:36
Undirbúa starfsmenn skóla undir svínaflensuna Heilbrigðisstarfsmenn vestanhafs reyna nú hvað þeir geta að undirbúa kennara og aðra starfsmenn skóla undir svínaflensuna. Viðbúið er að þegar skólastarf hefst verði töluverð aukning flensutilfella. 16.8.2009 11:15
Yfir 40 létust í brúðkaupi Yfir 40 létust í Kúveit þegar eldur kom upp í tjaldi sem komið hafði verið upp fyrir brúðkaupsveislu í gærkvöldi. Flestir þeirra sem létust voru konur og börn. Tjaldið varð alelda á örskammri stundu en hátt í sextíu slösuðust, margir tróðust undir þegar fólk reyndi að flýja eldinn. 16.8.2009 10:48
Talibanar hóta kjósendum Talibanar í Afganistan hótuðu í morgun að skera fingur af kjósendum og ráðast á kjörstaði, en fingrafar er tekið af þeim sem kjósa í Afganistan. Tilgangurinn er að fá Afgana til að sniðganga forsetakosningarnar sem fara fram þar eftir fjóra daga. 16.8.2009 10:14
Ráðgátan um týnda skipið tekur nýja stefnu Ráðgátan um Arctic Sea, finnska flutningaskipsins sem hvarf af ratsjá fyrir hálfum mánuði tók nýja stefnu í gær þegar rússnesk siglingarvefsíða tilkynnti að staðsetningartæki skipsins hefði gefið frá sér merki. Samkvæmt upplýsingum vefsíðunnar lítur út fyrir að skipið eða búnaðurinn sé við strendur Frakklands. Ekki er þó vitað hvort staðsetningartækið sé enn um borð í skipinu. 16.8.2009 09:58
Karzai fordæmir árásirnar Hamid Karzai, forseti Afganistans, fordæmdir harðlega sjálfsmorðsprengjuárás öfgamanna í gær þegar. Að minnsta kosti níu og rúmlega 100 manns særðust þegar árásarmaðurinn sprengdi sig í loft upp fyrir utan höfuðstöðvar NATO í landinu. Meðal hinna særðu er Hawa Nuristani, þingkona á afganska þinginu. 16.8.2009 07:15
Frambjóðandi fórnarlamb kynþáttafordóma í Þýskalandi Zeca Schall, frambjóðandi Kristilegra demókrata í komandi kosningum í Þýskalandi, er hvattur af flokki lýðræðislegra þjóðernissinna, flokks hægra öfgamanna, til að koma sér frá Þýskalandi. Schall er dökkur á hörund en hann fluttist til Þýskalands frá Angóla fyrir 21 ári síðan. 15.8.2009 23:30
Ætlaði að ráðast á bandaríska sendiráðið Sjö létust og hátt í 100 særðust í sjálfsmorðsárás Talibana á höfuðstöðvar NATO í Afganistan í morgun. Í dag eru aðeins fimm dagar þar til forsetakosningar fara fram í landinu. 15.8.2009 21:00
Öflugir vindar hamla slökkvistarfi Talið er að öflugir vindar muni hamla slökkvistarfi í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum, en miklir eldar hafa geisað þar frá því í síðustu viku. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir. 15.8.2009 22:15
Fílar fá gervifætur Tveir fílar á Tælandi hafa verið svo lánsamir að fá sérhannaða gervifætur. Mosha sem er þriggja ára missti fótinn fyrir rúmum tveimur árum og var fyrsti fílinn í heiminum til að fá gervifót. 15.8.2009 19:27
Tölvuleikur um svínaflensuna Það er óhætt að segja að tækifærin leynist víða. Að minnsta kosti sá þýski veirufræðingurinn Albert Osterhaus tækifæri í svínaflensunni. Hann hefur nú búið til tölvuleikinn "The Great Flu" eða flensan mikla. 15.8.2009 19:31
Reyna að bjarga íbúum úr aurskriðu Björgunarsveitarmenn freista þess nú að bjarga hátt í tvö þúsund íbúum bæjarins Shiao Lin í Tævan, sem varð illa úti þegar auðskriða féll þar í síðustu viku. 15.8.2009 19:02
Chavez með Kastró á afmælinu Hugo Chavez, forseti Venesúela, flaug til Kúbu í vikunni til að eyða tíma með Fidel Kastró, fyrrverandi forseta Kúbu, í tilefni afmæli þess síðarnefnda. Kastró varð 83 ára á fimmtudaginn. 15.8.2009 17:10
Medvedev vill nýja leiðtoga í Úkraínu Dmitri Medvedev, forseti Rússlands, segir rússnesk stjórnvöld ekki geta átt eðlileg samskipti við ráðamenn í Úkraínu fyrr en leiðtogaskipti hafi átt sér stað í landinu. Samskipti ríkjanna hafa langt frá því verið góð undanfarin ár eða allt frá því að Victor Yushchenko var kjörinn forseti landsins. 15.8.2009 16:48
Lausnargjalds krafist fyrir Arctic Sea Krafist hefur verið lausnargjalds fyrir Arctic Sea, rússneska flutningaskipið sem hvarf af ratsjá í lok júlí. Finnska lögreglan tilkynnti þetta í dag. 15.8.2009 15:48
Ana nálgast Flórídabúar undirbúa sig nú fyrir árlegt tímabil hitabeltisstorma en fyrsti fellibylur ársins gæti skollið á á innan við viku. Stormurinn hefur þegar fengið nafnið Ana en svæðið sem líklegt er til að lenda í storminum nær allt frá Kúbu til Suður Karolínu. 15.8.2009 15:44
19 látnir eftir óeirðir í fangelsi Að minnsta kosti 19 eru látnir og á þriðja tug eru slasaðir eftir óeirðir í fangelsi norðurhluta Mexíkó í dag. Ekki er vitað hvort að fangaverðir og aðrir starfsmenn fangelsisins séu í hópi hinna látnu. Yfirvöld segja ástæðuna fyrir uppþotinu vera uppgjör milli tveggja klíka í fangelsinu. 15.8.2009 14:28
40 ár frá Woodstock Woodstock tónlistarhátíðin er 40 ára í dag. Hátíðarinnar er gjarnan minnst sem þeirri sögulegustu í tónlistarsögunni. 15.8.2009 12:30
Flutningaskip týnt - aftur Það þykir ráðgáta ein hvernig 4000 tonna flutningaskip gat horfið í nokkra daga, komið aftur í leitirnar og horfið síðan aftur. 15.8.2009 12:19
Hvetur Skota til að sleppa ekki hryðjuverkamanni Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur hvatt dómsstóla í Skotlandi að sleppa ekki Abdel-baset Ali Mohmed al Megrahi úr haldi. Megrahi er nú í lífstíðarfangelsi fyrir að bera ábyrgð á Lockerbie hryðjuverkinu þar sem 270 létust þegar sprengja sprakk í flugvél frá Pan am yfir bænum Lockerbie í Skotlandi. 15.8.2009 10:14