Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Charles Spencer, jarl og bróðir Díönu prinsessu, segir að Karl Bretakonungur hafi hljómað „himinlifandi“ þegar hann hringdi í Spencer eftir að systir hans dó í bílslysi. Jarlinn segir að þáverandi prinsinn hafi látið eins og hann hefði unnið í lottói. Erlent 18. september 2026 06:57
Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Talsmenn bresku konungsfjölskyldunnar segja að Karl konungur hafi ekki haldið því fram að Díana prinsessa, fyrrverandi eiginkona hans, myndi fljótt gleymast. Þessu heldur Charles Spencer, bróðir Díönu, fram að Karl hafi kastað fram skömmu eftir að hún lét lífið árið 1997. Erlent 17. september 2026 10:07
Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Tónlistarmaðurinn Macklemore tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta allan ágóða af tónleikaferðalagi sínu með Ed Sheeran, um eina milljón dollara, renna til neyðaraðstoðar á Gasa. Hann skoraði á sama tíma á Robert Kraft, eiganda New England Patriots, sem krafðist þess að hann yrði fjarlægður af tónleikaferðalagi Sherrand, að gefa sömu upphæð til neyðaraðstoðar á Gasa og Vesturbakkanum. Lífið 17. september 2026 08:21
Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Niðurstaða dómara sem rannsakaði aðstæður á sjúkrahúsi þar sem hjúkrunarfræðingur var sakfelldur fyrir að myrða ungbörn er að hægt hefði verið að koma í veg fyrir nokkur dauðsfallanna. Stjórnendur sjúkrahússins hafi brugðist algerlega. Erlent 15. september 2026 13:41
Vilja verða jafningjar Englendinga Tími Westminster er að líða undir lok. Þetta segja leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands sem hafa skrifað undir sameiginlega yfirlýsingu um að yfirvöld í Bretlandi hefji undirbúning fyrir sundurliðun Stóra-Bretlands. Allir vilja þeir sjálfstæði frá Lundúnum og fá að ákvarða eigin framtíð. Erlent 14. september 2026 13:44
„Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ „Þetta er auðvitað ofboðslega erfitt og þetta er nú langur vegur. Þetta er ekki eitthvað sem er að fara að gerast hér á næstunni. Það sem þeir eru að gera núna er að krefjast réttarins til þess að halda atkvæðagreiðsluna því að þeir geta ekki gert það upp á eigin spýtur samkvæmt bresku stjórnarskránni og í rauninni þarf forsætisráðherra að fallast á þetta.“ Erlent 14. september 2026 08:39
Johnson rétt slapp við árás Rússa Rússneskur dróni hæfði lest í bænum Yahodyn í Úkraínu, skammt frá landamærunum að Póllandi, skömmu eftir að fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands Boris Johnson og hátt settir öryggisráðgjafar Evrópuríkja höfðu farið sömu leið. Erlent 14. september 2026 06:40
Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands ætla að funda á mánudag og skrifa undir sameiginlega viljayfirlýsingu þar sem þeir munu krefjast þess að haldnar verði þjóðaratkvæðagreiðslur um að þau kljúfi sig frá Bretlandi. Wales og Skotland verði sjálfstæð ríki en Norður-Írland hluti af Írlandi. Erlent 13. september 2026 09:51
Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Malcom Potier, 75 ára, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að taka konu hálstaki sem byrjaði að syngja með á söngleik fyrir þremur árum. Erlent 11. september 2026 07:43
Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Norðmenn, Bretar og Bandaríkjamenn stöðvuðu Rússa við æfingar á nýju leynivopni sem hannað er til að skera á sæstrengi nærri Svalbarða í vor. Vopn þetta er borið af kafbátum og á að geta skorið á sæstrengi á gífurlegu dýpi, án þess að skilja eftir ummerki um hver hefði verið þar að verki. Erlent 10. september 2026 23:16
Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Meðalhitastigið í ágúst var það hæsta sem mælst hefur, jafn hátt og í júlí 2023, samkvæmt loftslagsþjónustu Evrópusambandsins. Nýafstaðið sumar var það hlýjasta í Vestur-Evrópu. Erlent 10. september 2026 06:45
Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Hart er nú sótt að Jordan Bardella, forseta Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, vegna samkomulags sem hann gerði við Nigel Farage, leiðtoga Umbótaflokksins í Bretlandi nýlega. Samkomulagið er sagt ganga í berhögg við stefnu Þjóðfylkingarinnar. Erlent 9. september 2026 11:34
Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Ísraelsk stjórnvöld ætla að banna ellefu breskum þingmönnum að koma til landsins og láta loka bresku ræðisskrifstofunni í Jerúsalem. Það er hluti af svari þeirra var refsiaðgerðum Breta gegn landtökubyggðum gyðinga á hernumndum svæðum Palestínumanna. Erlent 9. september 2026 08:15
Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Georg prins, elsti sonur Vilhjálms Bretaprins og Katrínar prinsessu, hóf í dag skólagöngu sína í Eton-skólanum, einum dýrasta heimavistarskóla Bretlands. Hann fetar því í fótspor föður síns og frænda, Harrys hertoga af Sussex, auk margra fyrrverandi forsætisráðherra og rithöfunda. Lífið 8. september 2026 21:51
Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Bretar, Frakkar og Kanadamenn ætla beita ólöglegar landtökubyggðir gyðinga á palestínsku landi refsiaðgerðum. Bandarísk stjórnvöld hafa hótað að refsa Bretum fyrir aðgerðirnar. Erlent 8. september 2026 13:16
Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Forsvarsmenn stefnumótaforritsins Grindr hafa samþykkt að greiða 26 milljónir punda til að binda enda á lögsókn gegn fyrirtækinu vegna ásakana um að persónuupplýsingum breskra notenda hafi verið deilt með auglýsingafyrirtækjum. Þar á meðal eru upplýsingar um það hvort viðkomandi notendur hafi verið smitaðir af HIV-veirunni og kynhneigð þeirra. Viðskipti erlent 7. september 2026 23:53
Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Atvinnu- og landsliðsmaðurinn fyrrverandi í fótbolta, Joey Barton, mun þurfa að dúsa út árið hið minnsta í varðhaldi í HMP Liverpool fangelsinu eftir að beiðni hans um lausn gegn tryggingu var hafnað. Enski boltinn 7. september 2026 22:15
Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Bresk-nígeríski viðskiptajöfurinn Igho „Tiny“ Ubiribo lést eftir að farið í typpastækkunaraðgerð í Taílandi en hann var þar í fríi með eiginkonu sinni í mars. Upphaflega var talið að Ubiribo hefði dáið úr hjartaáfalli en nú hefur dánardómstjóri úrskurðað að typpastækkunin hafi dregið hann til dauða. Lífið 7. september 2026 10:25
Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Miklar truflanir urðu á hafnarstarfsemi í bænum Dover í Kent-sýslu í Englandi í dag er svartklæddur hópur fólks hélt mótmæli að því er virðist gegn straumi flóttamanna til landsins. Erlent 5. september 2026 23:43
Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Jordon Ibe, fyrrverandi leikmaður Liverpool, var í gær dæmdur fyrir að rífa fléttu af höfði þáverandi kærustu sinnar. Ibe þótti einkar efnilegur fótboltamaður en hefur farið rækilega af sporinu. Enski boltinn 5. september 2026 13:01
Skrifaði sig í sögubækur Cambridge „Maður finnur drifkraftinn og brennandi áhugann í loftinu frá öllu fólkinu í kringum mann og það er mjög smitandi,“ segir hin 25 ára gamla og kraftmikla Guðrún Diljá Agnarsdóttir sem er búsett í Cambridge í Bretlandi þar sem hún er á lokaárinu sínu í doktorsnámi og rannsakar líffræðilegar afleiðingar stökkbreytinga í geni sem valda Parkinson-sjúkdómi. Samhliða krefjandi námi stundar hún róður af fullum krafti en hún féll fyrir sportinu á fyrstu vikunum sínum úti og vann nýverið til virtra verðlauna á því sviði. Lífið 5. september 2026 07:02
Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Javier Milei, forseti Argentínu, segir að Argentína verði að ná stjórn á Falklandseyjum af Bretum. Hann vill stöðva byggingu olíuborpalls nærri eyjunum og vísar til þess að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi nýverið gefið til kynna að Bandaríkjamenn gætu breytt afstöðu sinni gagnvart eyjunum umdeildu. Erlent 4. september 2026 20:17
Ákærður fyrir að brjóta á börnum Saksóknarar í Rúmeníu hafa formlega ákært Andrew Tate fyrir hafa selt ólögráða einstaklinga í mansal, fjárþvætti, kynmök við ólögráða einstakling og fyrir að hafa áhrif á vitni. Tristan bróðir hans hefur einnig verið ákærður fyrir að vera samverkamaður Andrews. Erlent 4. september 2026 10:21
Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Amelia Dimoldenberg hefur ákveðið að hætta með þættina geysivinsælu Chicken Shop Date. Hún hefur haldið úti þáttunum í rúman áratug og fengið til sín yfir hundrað gesti á „stefnumót.“ Lífið 3. september 2026 21:30
Hvað veistu um… London? London er ein fjölmennasta borg Evrópu og höfuðborg Bretlands. Borgin á sér langa og viðburðaríka sögu og má þar finna bæði sögufrægar byggingar og nýrri hverfi þar sem nútímaarkitektúr fær að njóta sín. London er einnig ein helsta menningar- og viðskiptamiðstöð álfunnar með fjölbreyttu mannlífi, söfnum, leikhúsum, verslunum og veitingastöðum. Lífið 3. september 2026 20:01
Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ „Ég er sáttur með það,“ svaraði Donald Trump Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi í dag þegar hann var spurður út í þær fréttir að Harry Bretaprins og Meghan, hertogaynja af Sussex, væru flutt frá Bandaríkjunum aftur til Bretlands. Erlent 2. september 2026 22:57
Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter HBO hefur birt aðra stiklu fyrir fyrstu þáttaröðina um ævintýri galdradrengsins Harry Potter og félaga í Hogwarts. Stiklan sýnir meðal annars frá flokkun nýnema, þegar flokkunarhatturinn velur skikkar Harry og aðra á heimavistir skólans síhættulega. Lífið 2. september 2026 15:33
Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Bresk kona, 31 árs gömul, er látin eftir að ráðist var á hana og hún stungin á Rosenheim-lestarstöðinni í Þýskalandi um klukkan eitt í nótt að staðartíma. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést en hún hafði hlotið mjög alvarlega áverka. Maður sem er grunaður um verknaðinn verður leiddur fyrir dómara á eftir. Erlent 30. ágúst 2026 19:43
Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlendir fjölmiðlar fylgjast með Íslandi í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Fulltrúar um fjörutíu fréttamiðla eru staddir hér á landi til að fjalla um málið. Erlent 29. ágúst 2026 11:36
Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Harry prins og Meghan, hertogaynja af Sussex, komu til Bretlands í dag ásamt börnum sínum, sex árum eftir að þau hættu opinberum störfum fyrir konungsfjölskylduna og fluttu til Kaliforníu. Bæði AP og Reuters greina frá komunni. Erlent 26. ágúst 2026 15:57