Fleiri fréttir

Ingibjörg óskar Grænlendingum til hamingju

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sendi Grænlendingum árnaðaróskir í dag í tilefni af niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar í gær um aukna sjálfstjórn.

Gagnrýnir áform um tvöfaldan Suðurlandsveg

Formaður Evrópusamtaka um öryggi vega gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að ætla að leggja tvíbreiða hraðbraut milli Reykjavíkur og Selfoss þegar rannsóknir sýni að tveir plús einn vegir séu þeir öruggustu í heimi.

Lekinn í Glitni rannsakaður

Nýi Glitnir rannsakar nú hvort starfsmaður bankans hafi lekið í Morgunblaðið trúnaðarupplýsingum um milljarðlán Gamla Glitnis. Málinu hefur einnig verið vísað til Fjármálaeftirlitsins sem gæti vísað því áfram til lögreglu.

UVG gagnrýna útvarpsstjóra harðlega

Ung vinstri græn hafa sent frá sér ályktun þar sem framganga Páls Magnússonar útvarpsstjóra, þegar hann hótaði fyrrverandi starfsmanni RÚV lögsókn, er harðlega gagnrýnd. „Ung vinstri græn gagnrýna harðlega framgöngu Páls Magnússonar útvarpsstjóra gagnvart G. Pétri Matthíassyni, fyrrum fréttamanni Ríkisútvarpsins, vegna ákvörðunar G. Péturs um að birta opinberlega viðtal við Geir Hilmar Haarde sem RÚV hefur haldið leyndu til þessa,“ segir í ályktuninni.

Frumvarp um rannsóknarnefnd kynnt í þingflokkum

Samkomulag virðist hafa náðst á meðal formanna stjórnmálaflokkanna um frumvarp sem gefur heimild til að skipa sérstaka rannsóknarnefnd sem rannsaka á bankahrunið og aðdragandann að því. Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins segir að málið hafi verið kynnt í þingflokkum flokkanna í dag en hún vildi ekki ræða um efni frumvarpsins því hún væri enn bundin trúnaði. Þinglokkar hittust nú síðdegis.

Jónas Ingi og Tindur ljúka afplánun vegna eldri mála

Þeir Jónas Ingi Ragnarsson og Tindur Jónson, sem grunaðir eru um að hafa staðið fyrir umfangsmikilli fíkniefnaframleiðslu í Hafnarfirði, hafa hafið afplánun vegna annara mála. Gæsluvarðhald yfir mönnunum átti að renna út á morgun en Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu krafðist þess að þær hæfu afplánun á eftirstöðvum eldri dóma.

Hnífstungumaður í gæsluvarðhald

Piltur um tvítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 3. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Ísland er sökkvandi eyja (myndband)

Fréttamaður frá Journeyman Pictures sem er breskur miðill á netinu kom hingað til lands og vann innslag um efnahagsástandið hér á landi. Innslagið ber heitið „Sökkvandi eyja“ og er rætt við ýmsa úr íslensku þjóðfélagi.

Forsætisráðherra býst við aukinni alþjóðlegri kreppu

Geir Haarde segist ekki hafa séð það fyrir að lausafjárkreppan myndi breytast í efnahagslegu heimskreppu. Hann útilokar ekki að alþjóðleg kreppa muni aukast enn meira á næstunni. Þetta kom fram á Alþingi um eflingu gjaldeyrisvaraforðans.

Segir virðingu Alþingis bíða hnekki

Það grefur undan virðingu Alþingis að vera ekki búið að koma frá sér lögum um sjálfstæða rannsóknarnefnd sem getur starfað á vegum þingsins og rannsakað hvað fór aflaga í aðdraganda bankahrunsins.

Hótunum rignir yfir saklausan strák vegna Njarðvíkurárásarinnar

Hótunum rignir yfir Óskar Örn Óskarsson, nemanda í 10. bekk Njarðvíkurskóla, um að gengið verði frá honum. Víkurfréttir greina frá því í dag hvernig Óskar Örn hefur, fyrir misskilning, verið dreginn inn í atburðarás þar sem hann var víðsfjarri. Honum er gert að sök að hafa verið einn af piltunum sem tóku þátt í grófu ofbeldi gegn skólafélaga sínum og tekið var upp á myndband við Njarðvíkurskóla í síðustu viku. Óskar er hins vegar nafni og jafnaldri eins af piltunum. Í gærkvöldi var setið um heimili hans og meðal annars voru tveir grímuklæddir menn komnir upp á húsþak á heimili hans. Móðir Óskars Arnar segir. Í samtali við Víkurfréttir, að hótanir gegn syni sínum hafi magnast mjög síðustu daga. Í fyrstu héldu þau að þetta myndi ganga yfir um helgina, en það gerðist ekki og ástandið sé nú orðið óbærilegt. Vinsæll bloggari á blog.is birtir nöfn fyrir fjórum sólarhringum síðan, sem hann segir að séu nöfn piltanna á ofbeldismyndbandinu. Þar er meðal annars nafnið Óskar Páll. Einhverra hluta vegna beinast hótanirnar gegn Óskari Erni, sem var ekki þátttakandi í ofbeldinu á myndbandinu. Hótanirnar koma víða að og eru ógnvekjandi. Þær valda Óskari Erni og fjölskyldu hans vanlíðan. Stjórnendur Njarðvíkurskóla eru meðvitaðir um þau miklu óþægindi sem Óskar Örn og fjölskylda hans hafa orðið fyrir. Þeir segja að Óskar Örn sé fyrirmyndarnemandi í 10. bekk sem sé nú borinn röngum sökum.

Hnífsstunguárás: Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin síðar í dag

Ekki hefur verið ákveðið hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir tvítugum pilti sem handtekinn var í gærkvöldi í tengslum við hnífsstunguárása á Hlemmi. Fertugur karlmaður var stunginn í bak og öxl og var pilturinn handtekinn í kjölfarið. Lögreglan hefur frest til klukkan 19:00 í kvöld til þess að ákveða hvort krafist verði gæsluvarðhalds.

Rauk úr jólaskreytingu í Gullsmára

Slökkviliðið var kallað að Gullsmára á áttunda tímanum í morgun vegna reyks sem barst frá jólaskreytingu. Búið var að slökkva eldinn þegar slökkviliðið kom á staðinn og skemmdir reyndust ekki vera miklar.

Nýtt umhverfismat ef stækka á í Helguvík

Fara verður í nýtt umhverfismat ef stækka á álverið í Helguvík að sögn umhverfisráðherra. Forstjóri Norðuráls fundaði með ráðherra í morgun vegna málsins.

Atvinnuleysið komið í 4%

Atvinnuleysi hefur meira en tvöfaldast milli mánaða og mælist nú tæplega 4 prósent. Í október voru rúmlega 3.100 skráðir atvinnulausir að jafnaði hjá Vinnumálastofnun, en eru nú undir lok nóvembermánaðar um 6.800.

Starfsmenn Samskipa læra íslensku

Á fjórða tug starfsmanna af erlendum uppruna hjá Samskipum luku í vikunni námskeiði í íslensku sem félagið stendur fyrir og hefur notið styrks frá menntamálaráðuneytinu. Þetta er þriðja önnin sem markvisst íslenskunám fer fram í vinnutíma fyrir alla erlenda starfsmenn Samskipa.

Segist ekki hafa farið með rangt mál

Uppákoman í þinginu í vikunni þar sem Steingrímur J. Sigfússon sagði m.a Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra að „étann sjálfur" fór vart framhjá nokkrum manni. Í kjölfarið gekk formaður Vinstri grænna upp að forsætisráðherra og ýtti all hressilega í öxlina á honum. Björn lét þau orð falla að Steingrímur stæði í vegi fyrir því að áform um hina sérstöku rannsóknarnefnd á vegum þingsins hefði tafist með afstöðu sinni.

Kærleikskúlan afhent í sjötta sinn

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra afhendir Kærleikskúluna svokölluðu í sjötta sinn núna klukkan 11. Það er Magnús Geir Þórðarson Borgarleikhússtjóri sem afhendir kúluna en styrktarfélagið gefur ekki upp fyrr en í athöfninni sjálfri hverjum þessi viðurkenning fellur í skaut.

Skerða þjónustu við deyjandi börn vegna hruns Kaupþings

Naomi House, sem rekur líknarstarfsemi fyrir deyjandi börn í Sutton Scotney í Hampshire í Bretlandi, hefur ákveðið að hætta við heimaþjónustu sem til stóð að koma í gagnið. Ástæðan er sú að um 5,7 milljónir sterlingspunda, sem jafngildir um 1,2 milljörðum íslenskra króna, eru frosnar á reikningum eftir að Singer & Friedlander, dótturfyrirtæki Kaupþings fór í þrot.

Hinn særði á batavegi

Karlmaður um fertugt sem stunginn var með hnífi á Hlemmi á sjöunda tímanum í gærkvöldi er á batavegi að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild. Maðurinn var á gjörgæsludeild í nótt en fer líklegast yfir á almenna skurðdeild í dag. Hann gekk særður inn í anddyri

Þriggja mánaða verðbólga mælist 20,8%

Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,74% í nóvember og er nú 327,9 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 298,3 stig og hækkaði hún um 1,84% frá október, eftir því sem fram kemur í tölum frá Hagstofunni. Hækkun vísitölunnar er mun lægri en Greining Glitnis hafði spáð, en í henni var gert ráð fyrir að vísitalan hækkaði um 2,1%.

Óku á ljósastaur á Akureyri

Tvær stúlkur sluppu nær ómeiddar þegar bíll þeirra lenti á ljósastaur í Merkigili á Akureyri á tólfta tímanum í gærkvöldi og valt á hliðina.

Fórnarlamb árásar á Hlemmi enn á gjörgæslu

Karlmaður um fertugt, sem stunginn var lífshættulega á Hlemmi laust fyrir klukkan sex síðdegis í gær, liggur á gjörgæsludeild Landspítalans og er líðan hans eftir atvikum.

Eldur í þvotti við Möðrufell

Slökkviliðið sendi fjölmennt lið á vettvang vegna tilkynningar um reyk í fjölbýlishúsi við Möðrufell í Reykjavík í gærkvöldi.

Helsærður eftir árás á Hlemmi

Maður um fertugt er í lífshættu eftir átök sem hann lenti í á Hlemmi. Hann skreið helsærður inn í anddyri lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu þar sem lögreglumenn veittu honum fyrstu hjálp. Atburðurinn átti sér stað um klukkan sex í kvöld.

Eldur í þvottavél í Möðrufelli

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Möðrufelli 5 í Breiðholti í kvöld vegna elds. Þegar komið var á staðinn kom í ljós að eldur hafði blossað upp í þvottavél í sameign og var reykur í stigaganginum. Vel gekk að slökkva eldinn og er nú unnið að reykræstingu. Ekki er vitað um eldsupptök á þessari stundu.

Norðmaðurinn hættur störfum fyrir Geir

Norðmaðurinn Björn Richard Johansen, ráðgjafi Geirs H. Haarde forsætisráðherra, hefur lokið störfum fyrir forsætisráðuneytið. Björn Richard var í viðtali í Kastljósinu í kvöld þar sem hann sagði að verkefni hans hafi verið að koma upp neyðaráætlun fyrir stjórnvöld í kjölfar bankahrunsins og því verki sé nú lokið.

Stúdentar landsins sameinast

Stúdentar landsins hafa sameinast og ætla að efna til gjörnings á hátíðisdegi stúdenda þann 1. desember næstkomandi. Í tilkynningu frá Stúdentaráði segir að um sögulega samvinnu sé að ræða en forsvarsmenn allra stúdenta- og námsmannahreyfinga landsins hafa nýlega sent sameiginlegt plagg til menntamálaráðherra, menntamálanefndar Alþingis og ríkisstjórnarinnar.

Hart deilt á saksóknara í Kompáss - árásarmálinu

Verjandi Benjamíns Þórs Þorgrímssonar, sem ákærður hefur verið fyrir að ganga í skrokk á Ragnari Magnússyni, eins og frægt varð þegar fréttaskýringaþátturinn Kompás náði atvikinu á myndband, sakar lögreglu um að hafa klúðrað ákærunni á hendur skjólstæðingi sínum. Hinn málsaðilinn, Ragnar Magnússon, tekur í svipaðan streng og segir að lögregla hafi týnt ákærum sem hann lagði fram gegn Benjamíni í kjölfarið á því að Benjamín réðst að honum.

Bjarni Harðar: Flokkseigendur vildu Framsókn áfram við völd

Bjarni Harðarson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, segir að áhrifamenn í flokknum hafi lagt mikla áherslu á að endurnýja samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn eftir síðustu kosningar. Jón Sigurðsson, þáverandi formaður flokksins lýsti því yfir á kosninganóttina að flokkurinn hlyti að víkja úr stjórn eftir tapið.

Með milljarð inn á reikningnum sínum

Almennur borgarstarfsmaður sem setið hefur í gæsluvarðhaldi síðan á föstudaginn geymdi allt að einn milljarð króna á bankareikningum sínum. Hann er talinn tengjast máli forstöðumanns verðbréfafyrirtæksins sem grunaður er um peningaþvætti og fjársvik.

G. Pétur skilar upptökunni en viðtalið er enn aðgengilegt

G. Pétur Matthíasson, fyrrverandi fréttamaður á Ríkisútvarpinu, hefur orðið við kröfu Páls Magnússsonar og skilað til hans viðtali sem hann tók á sínum tíma við Geir H. Haarde en birti ekki fyrr en á dögunum á heimasíðu sinni.

Býst við að 300 fái störf við uppbyggingu í Straumsvík

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra býst við að fjölmargir verkfræðingar og um 300 iðnaðarmenn fái störf við stækkun álversins í Straumsvík. Þá gerir hann sér vonir um að 1500-2000 störf verði til með uppbyggingu álvers í Helguvík. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag.

Segist ekki hafa ógnað starfsöryggi Helgu Völu

Vísir sagði frá því fyrr í dag að Björn Bjarnason hefði tekið Helgu Völu Helgadóttur fyrrverandi útvarpskonu á beinið vegna umfjöllunar í Speglinum á Rás 2. Helga Vala greindi frá því á bloggsíðu sinni að Björn hefði eitt sinn hringt í sig en undir niðri hefði vissulega legið að hann hefði völd til þess að láta hana fara. Björn segist ekki minnast þessa atviks.

Fjallað um skuldir og umsvif Jóns Ásgeirs í norska ríkissjónvarpinu

Fjallað verður um Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformann Baugs, og skuldir fyrirtækja hans í þættinum Brennpunkt í norska ríkissjónvarpinu í kvöld. Farið er yfir umsvif Jóns Ásgeirs á vef NRK þar sem vitnað er til orða Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra um að einn maður og fyrirtæki hans skuldi íslensku bönkunun þúsund milljarða króna.

Óvíst hve mikið laun æðstu embættismanna lækka

Formaður Kjararáðs, Guðrún Zoega, segir ekki mögulegt að segja til um strax hversu mikið laun æðstu embættismanna ríkisins gætu lækkað. Kjararáð fundaði í dag til þess að ræða bréf sem forsætisráðherra send um að launalækkun þeirra sem heyra undir ráðið "Við hittumst og fórum yfir þetta bréf frá forsætisráðherra," sagði Guðrún í samtali við Vísi.

FME tryggi að hægt sé að rekja allar færslur gömlu bankanna

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist ganga að því vísu að Fjármálaeftirlitið tryggi með störfum sínum að hægt sé að rekja allar færslur og öll viðskipti gömlu viðskiptabankanna. Þetta sagði hann í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Sjá næstu 50 fréttir