Hótunum rignir yfir saklausan strák vegna Njarðvíkurárásarinnar 26. nóvember 2008 12:55 Óskar Örn Óskarsson er hafður fyrir rangri sök. Mynd/ VF.
Hótunum rignir yfir Óskar Örn Óskarsson, nemanda í 10. bekk Njarðvíkurskóla, um að gengið verði frá honum. Víkurfréttir greina frá því í dag hvernig Óskar Örn hefur, fyrir misskilning, verið dreginn inn í atburðarás þar sem hann var víðsfjarri. Honum er gert að sök að hafa verið einn af piltunum sem tóku þátt í grófu ofbeldi gegn skólafélaga sínum og tekið var upp á myndband við Njarðvíkurskóla í síðustu viku. Óskar er hins vegar nafni og jafnaldri eins af piltunum. Í gærkvöldi var setið um heimili hans og meðal annars voru tveir grímuklæddir menn komnir upp á húsþak á heimili hans. Móðir Óskars Arnar segir, í samtali við Víkurfréttir, að hótanir gegn syni sínum hafi magnast mjög síðustu daga. Í fyrstu héldu þau að þetta myndi ganga yfir um helgina, en það gerðist ekki og ástandið sé nú orðið óbærilegt. Vinsæll bloggari á blog.is birtir nöfn fyrir fjórum sólarhringum síðan, sem hann segir að séu nöfn piltanna á ofbeldismyndbandinu. Þar er meðal annars nafnið Óskar Páll. Einhverra hluta vegna beinast hótanirnar gegn Óskari Erni, sem var ekki þátttakandi í ofbeldinu á myndbandinu. Hótanirnar koma víða að og eru ógnvekjandi. Þær valda Óskari Erni og fjölskyldu hans vanlíðan. Stjórnendur Njarðvíkurskóla eru meðvitaðir um þau miklu óþægindi sem Óskar Örn og fjölskylda hans hafa orðið fyrir. Þeir segja að Óskar Örn sé fyrirmyndarnemandi í 10. bekk sem sé nú borinn röngum sökum.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira