Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Féll af hestbaki og hlaut opið beinbrot Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, sótti á fjórða tímanum mann sem fallið hafði af hestbaki skammt suður af Hvolsvelli. 7.7.2008 16:16
Tímamótadómur að sögn sýslumanns Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir að tímamótadómur hafi fallið í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Dómurinn úrskurðaði að ökutæki manns sem dæmdur var fyrir ofsaakstur á Hellisheiði skyldi gert upptækt til ríkissjóðs. 7.7.2008 16:15
Bifhjól ökumanns gert upptækt eftir ofsaakstur Tveir bifhjólaökumenn voru dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Ökumennirnir voru mældir á 180 km hraða og í kjölfarið reyndu mennirnir að stinga lögregluna af. Þeir fóru í gegnum tvo vegartálma sem settir voru upp en ökuferðin endaði með aftan á keyrslu annars hjólsins og ók hinn ökumaðurinn yfir félaga sinn í kjölfarið. Ökutæki annars mannsins var gert upptækt og mun það vera í fyrsta skipti sem svo er gert. 7.7.2008 16:01
Sigurður Gísli fundinn Búið er að finna Sigurð Gísla Bjarnason, manninn sem leitað var að í dag á höfðuborgarsvæðinu. Að sögn Jóns Inga Sigvaldasonar hjá Slysvarnafélaginu Landsbjörgu fannst Sigurður Gísli við Hlemm sem er nálægt fyrri vinnustað hans. 7.7.2008 15:55
Undirskriftalistar afhentir í vikunni Undirskriftalistar íbúa í Norðlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust í Hólavaði verða afhentir borgaryfirvöldum á miðvikudaginn. 7.7.2008 15:40
Hollenskt par dæmt fyrir kókaínsmygl Hollenskt par var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmt í tíu mánaða fangelsi fyrir að reyna að smygla um 300 grömmum af kókaíni til landsins. 7.7.2008 15:38
Háskólakennarinn áfram í haldi Hæstiréttur Íslands úrskurðaði í dag að háskólakennarinn, sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega gegn níu börnum, skuli áfram sæta gæsluvarðhaldi. 7.7.2008 15:30
Grænir fingur í grjótinu Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn gengst nú fyrir fjársöfnun til að standa straum af kaupum á gróðurhúsi handa föngunum á Litla-Hrauni en þar á bæ ku mikill áhugi á matjurtarækt hafa gripið um sig. 7.7.2008 15:28
Um sextíu björgunarsveitarmenn koma að leit að manni Á bilinu 50-60 björgunarsveitarmenn koma nú að leitinni að Sigurði Gísla Bjarnasyni sem saknað hefur verið síðan í morgun. Að sögn Jóns Inga Sigvaldasonar hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu ganga björgunarsveitarmenn nú um stíga í nágrenni heimilis Sigurðar Gísla en hann sást síðast á heimili sínu í Lindahverfi í Kópavogi snemma í morgun. 7.7.2008 15:17
Björn endurskoði ákvörðun Útlendingastofnunar Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar og varaformaður allsherjarnefndar Alþingis, hvetur Björn Bjarnason dómsmálaráðherra til þess að endurskoða ákvörðun Útlendingastofnunnar í máli Keníamannsins Paul Ramses. Fundur hefur verið boðaður í nefndinni á morgun. 7.7.2008 15:04
Sjúkraliðar samþykkja samning við SFH Samningur Sjúkraliðafélags Íslands við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) var samþykktur með meirihluta atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. 7.7.2008 14:59
Þokan gerir borgarbúum grikk Íbúar höfuðborgarsvæðisins voru nokkuð óánægðir með veður helgarinnar en í stað hitabylgjunnar sem veðurfræðingar höfðu lofað var þoka og svalt loft í aðalhlutverki. 7.7.2008 14:48
20 fíkniefnamál á Landsmóti hestamanna Fkniefnaleitarhundurinn Bea var mikið notuð við leit um helgina, aðallega í tengslum við landsmótshald á Hellu en þar voru lögreglumenn frá fíkniefnadeild LRH ásamt lögreglumanni frá Selfossi sem jafnframt er umsjónarmaður hundsins. 7.7.2008 14:24
Rúmlega 35.000 fangar hófu afplánun á Norðurlöndum árið 2006 Samanlagt hófu 35.368 dómþolar á Norðurlöndunum afplánun á árinu 2006 sem er 14% aukning frá 2002. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu fangelsismálastofnana Norðurlandanna og taka íslensk fangelsisyfirvöld nú þátt í verkefninu öðru sinni. 7.7.2008 14:19
Málningu og lakki skvett á dómsmálaráðuneytið um helgina Skemmdarverk voru unnin á dóms- og kirkjumálaráðuneytinu um helgina en þar virðist sem óprúttnir aðilar hafi viljað mótmæla meðhöndlun dómsmálayfirvalda á málum Keníamannsins Pauls Ramses. 7.7.2008 14:04
Neytendasamtökin telja hækkun pakkaferða vafasama Neytendasamtökin vekja á heimasíðu sinni athygli á réttarstöðu neytenda vegna hækkana á svokölluðum pakkaferðum sem ferðaskrifstofur selja. 7.7.2008 13:50
Um 50 manns mótmæltu við dómsmálaráðuneytið Talið er að um 50 manns hafi komið saman við dómsmálaráðuneytið í hádeginu til þess að knýja á um lausn mála fyrir Keníamanninn Paul Ramses sem sendur var úr landi í síðustu viku. 7.7.2008 13:29
Sálfræðingur segir háskólakennara haldinn barnagirnd Háskólakennarinn sem setið hefur í gæsluvarðhaldi undanfarnar vikur, grunaður er um gróf kynferðisbrot gegn níu börnum, er haldinn barnagirnd. Þetta kemur fram í sálfræðimati sem kennarinn sætti vegna rannsóknar málsins. 7.7.2008 13:28
Flogið með eftirlýsta Frakkann heim Eftirlýstur franskur ríkisborgari sem handtekinn var hér á landi í byrjun júní var fluttur til Frakklands aðfaranótt föstudagsins síðasta. 7.7.2008 13:23
Þorleifur: Borgarráð var blekkt Þorleifur Gunnlaugsson segir að borgarráð hafi verið blekkt þegar yfirlýsing frá Heilsuverndarstöðinni og Hag var lögð fyrir ráðið 26. júní síðastliðinn. 7.7.2008 13:19
Leitað að manni með alzheimer Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að karlmanni Sigurði Gísla Bjarnasyni en hann sást síðast á heimili sínu í Lindahverfi í Kópavogi í morgun. 7.7.2008 13:16
Innanlandsflug að komast í eðlilegt horf Innanlandsflug er að komast í eðlilegan farveg eftir tafir í morgun vegna þoku. 7.7.2008 12:32
Makríll fer að teljast til nytjafiska við landið Síldveiðiskipin fyrir austan land fá nú margfalt meira af makríl sem meðafla en nokkru sinni fyrr. Hann fer nú að teljast til nytjafiska hér við land og gæti orðið tilefni til enn einnar fiskveiðideilunnar við Norðmenn. 7.7.2008 12:22
Óvissa með húsnæði áfangaheimilis Eigandi húsnæðis sem Heilsuverndarstöðin ætlar að nýta sem áfangaheimili í raðhúsalengju í Norðlingaholti var tekinn til gjaldþrotaskipta í apríl. Því er enn óvissa um hvort starfsemin hefjist á réttum tíma. 7.7.2008 12:16
Hjúkrunarfræðingar og ríkið funda áfram í dag Hlé var gert á samningafundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefndar ríkisins hjá ríkissáttasemjara nú í hádeginu en viðræðum verður haldið áfram um eittleytið. 7.7.2008 12:11
Helstu hálendisvegir opnaðir fyrir umferð - Emstruleið þó ófær Allir helstu hálendisvegir landsins hafa nú verið opnaðir umferð en þeir eru alla jafna færir jeppum og stærri bílum. 7.7.2008 11:57
Dæmdur fyrir þjófnað úr matvöruverslun Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í félagi við aðra menn stolið vörum úr verslun Bónuss við Smiðjuveg fyrir hátt í hundrað þúsund krónur 7.7.2008 11:32
Innanlandsflug raskast vegna þoku Ekkert hefur verið flogið til Akureyrar og Ísafjarðar í morgun vegna þoku en athuga á nú um ellefuleytið hvort hægt sé að fljúga þangað. 7.7.2008 11:06
Lyfjakostnaður TR jókst um 14% milli ára Kostnaður Tryggingastofnunar ríkisins vegna lyfja á fyrsta þriðjungi ársins jókst um 14% miðað við sama tíma í fyrra, eða um 308 milljónir króna. 7.7.2008 10:34
Félagar í BHM greiða atkvæði um kjarasamning Atkvæðagreiðsla hófst í dag meðal félagsmanna í Bandalagi háskólamanna um kjarasamning sem gerður var við ríkið á dögunum. Um er að ræða rafræna atkvæðagreiðslu sem fram fer á heimasíðu bandalagsins, bhm.is. Félagsmenn eru í tilkynningu frá BHM hvattir til að nýta atkvæðarétt sinn en opið er fyrir atkvæðagreiðslu fram á miðnætti á föstudag. 7.7.2008 10:21
Icelandair meðal óstundvísustu flugfélaga Evrópu Icelandair er í fjórða sæti yfir þau evrópsku flugfélög þar sem seinkun á flugi til áfangastaða í Evrópu var hvað mest á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í samantekt Sambands evrópskra flugfélaga, Association of Europena Airlines. 7.7.2008 10:11
Áfram mótmælt við dómsmálaráðuneytið "Jú, við ætlum að hittast í hádeginu á hverjum degi til 10. júlí, " segir Hörður Torfason leikstjóri og söngvaskáld en hann er einn þeirra sem staðið hefur fyrir utan dómsmálaráðuneytið til þess að mótmæla meðferðinni á Paul Ramses. 7.7.2008 10:02
Truflanir í dag vegna malbikunar Nokkrar truflanir verða á umferð í Reykjavík í dag vegna malbikunar. 7.7.2008 09:22
Anti-rasistar mótmæla meðferðinni á Ramses Dane Magnússon, formaður Félags anti-rasista á Íslandi, skorar á stjórnvöld að snúa Keníamanninum Paul Ramses aftur til Íslands. Dane segist skammast sín í fyrsta skipti fyrir að vera íslendingur og neitar að hafa blóð manns á höndum sér. 7.7.2008 08:51
Þrír ölvaðir ökufantar handteknir í Vogum Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöldi þrjá ölvaða menn í heimahúsi í Vogum á Vatnsleysuströnd, eftir að einhver þeirra hafði ekið bíl utan í annan á Reykjanesbraut fyrr um kvöldið með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar. 7.7.2008 08:25
Síldveiðiskipin fyrir austan land fá mikið af makríl Síldveiðiskipin fyrir austan land fá mikið af makríl sem meðafla. Þannig er eitt skip á landleið með 17 hundruð tonna afla, en þar af eru fimm hundruð til sex hundruð tonn makríll, eða um það bil þriðjungur. 7.7.2008 07:47
Árlegar aðgerðabúðir Saving Iceland í uppsiglingu Þann 12. Júlí, mun fólk alls staðar að frá Evrópu setja af stað fjórðu árlegu aðgerðabúðir Saving Iceland hér á landi. 7.7.2008 07:39
Ekkert slys í gríðarlegri umferð til borgarinnar Ekkert slys varð og ekki einu sinni umferðaróhapp í gríðar mikilli umferð á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi, í átt til höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi. 7.7.2008 07:15
Björn segir Jóhannes í Bónus hóta vopnavaldi Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsir undrun sinni og harmar málflutning þeirra Árna Johnsens, flokksbróður síns, og Jóhannesar Jónssonar í Bónus vegna Baugsmálsins. 6.7.2008 23:02
Hestar seljast betur vegna bágrar stöðu krónunnar Útlendingar hafa keypt íslensk hross í meira mæli nú en fyrri ár vegna bágrar stöðu krónunnar. Hrossakaupmenn sjá mikla breytingu á sölu hrossa eftir fall krónunnar síðustu mánuði. 6.7.2008 19:03
Sektuðu sjö fyrir bílbeltaleysi Lögreglan var við eftirlit á Vallarheiði í dag þegar hún stöðvaði ökumann lítillar rútubifreiðar. 6.7.2008 20:29
Ella Dís er með sjálfsofnæmi Læknar í Lundúnum komust nýlega að því að tveggja ára íslensk stúlka, sem talin var glíma við hrörnunarsjúkdóm, hafi verið með sjálfsofnæmi sem orsakaði hrörnun vöðvanna. Stúlkan var búin að missa nær allan líkamsmátt en getur nú í fyrsta sinn í margar vikur haldið höfði. 6.7.2008 19:18
Þung umferð í átt að bænum Þung umferð er á Vesturlands og Suðurlandsvegi til höfuðborgarsvæðisins enda ein af stærstu ferðahelgum sumarsins að baki. Hún hefur verið að aukast með kvöldinu og biður lögregla ökumenn um að sýna biðlund og tillitsemi í umferðinni. 6.7.2008 18:29
Stefnan tilbúin í haust Jóhannes Jónsson, oftast kenndur við Bónus, segist ætla að stefna íslenska ríkinu vegna Baugsmálsins og telur að stefnan geti litið dagsins ljós í september eða október. Hann segir að lögfræðingar sínir vinni nú að málinu en það sé nokkuð flókið að fara yfir það. 6.7.2008 17:12
Stjórnarþingmaður sakar íslensk yfirvöld um valdníðslu og ofsóknir Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar í haust að beita sér fyrir breytingum á lögum sem snúa að því að menn sem hafi hlotið skilorðsbundna dóma verði að víkja úr stjórnum fyrirtækja svo árum skipti. Í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag segir að þetta séu vitlaus lög og heimskuleg og því þurfi að spúla dekkið strax, eins og hann orðar það. 6.7.2008 13:51