Grænir fingur í grjótinu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 7. júlí 2008 15:28 Aðstaðan innan girðingar er hin myndarlegasta og áhuginn klárlega til staðar. MYND/Auður I. Ottesen
Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn gengst nú fyrir fjársöfnun til að standa straum af kaupum á gróðurhúsi handa föngunum á Litla-Hrauni en þar á bæ ku mikill áhugi á matjurtarækt hafa gripið um sig. „Mér er hjartans mál að veita föngum tækifæri til að rækta allan ársins hring, betrunin sem felst í þeirri ræktun sem nú er hafin á Litla-Hrauni er strax farin að sýna umtalsverðan árangur og er mér kappsmál að svo verði áfram," segir Auður I. Ottesen, ritstjóri Sumarhússins og garðsins, en hún hefur veg og vanda af söfnuninni. Í nýútkomnu tölublaði Sumarhússins og garðsins er fjallað ítarlega um heilsuátak fanga á Litla-Hrauni og segir þar meðal annars frá matjurtarækt sem Margrét Frímannsdóttir fangelsisstjóri veitti föngunum góðfúslega leyfi til að stunda og fékk að auki aðstoð frá Gróðrastöðinni Storð ásamt því að kalla til skólastjóra Hússtjórnarskólans og matreiðslumeistara til að kenna grundvallaratriðin í eldhúsinu. Magga „heavy" opin fyrir þessu Einn fanganna, sem nefndur er A, er tekinn tali í grein Sumarhússins og garðsins og sparaði sá ekki lofið eins og sést á þessum ummælum hans: „Magga fékk kokk til að koma til að kenna okkur að matbúa og hann færði okkur krydd og tómatplöntur sem ég sé um. Magga er svo „heavy" opin fyrir þessu," sagði fanginn um þetta nýsprottna tómstundagaman sem ef til vill er þó orðið eitthvað meira þar sem hópur fanga á meðferðargangi Litla-Hrauns eldar nú sinn eigin mat. Allir þeir sem vilja leggja málefninu lið geta haft samband Auði I. Ottesen í síma 578-4800 eða á netfangið audur@rit.is eða lagt inn á reikning 101-26-171717, kt. 481203-3330.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira