Innlent

Björn segir Jóhannes í Bónus hóta vopnavaldi

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsir undrun sinni og harmar málflutning þeirra Árna Johnsens, flokksbróður síns, og Jóhannesar Jónssonar í Bónus vegna Baugsmálsins.

Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag ritaði Árni grein í Morgunblaðið þar sem hann sakar stjórnvöld um valdníðslu og ofsóknir á hendur Baugsmönnum. Þá sagði Jóhannes í samtali við Vísi í dag að hann væri að undirbúa stefnu á hendur ríkinu vegna Baugsmálsins.

Þar sagði hann enn fremur að að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hlytu að vera knúnir til að segja af sér embættum sínum. Það væri forkastanlegt hvernig þeir hefðu hagað sér. „Svo eru þessir menn að tala um að það þurfi að koma upp vopnuðu liði. Framkoma þessara manna við fólkið í landinu er á þann veg að það getur orðið til þess að fólk grípi til vopna gagnvart þeim. Þannig að það er kannski ekki skrítið að þeir vilji efla vopnaburð," segir Jóhannes.

Björn svarar þessu á heimasíðu sinni og spyr hver hafi verið að tala um vopnað lið. ,,Hvorki Haraldur Johannessen né ég. Þennan hugarburð ber Jóhannes á borð, um leið og hann lætur í veðri vaka, að við Haraldur verðum beittir vopnavaldi af almenningi - væntanlega vegna Baugsmálsins. Er líklega einsdæmi, að áhrifamaður í viðskiptalífinu, og þótt víðar væri leitað, skuli tala á þennan veg. Fyrir síðustu þingkosningar notaði Jóhannes auð sinn til að auglýsa andúð sína á mér með hvatningu um að strika nafn mitt af framboðslista sjálfstæðismanna í Reykjavík suður. Nú telur hann sig tala í nafni almennings um vopnaburð gegn okkur ríkislögreglustjóra," segir Björn.

Björn segir að það sýni hve lítið mark sé takandi á hótun Jóhannesar að hún sé ekki fréttnæm utan vefmiðils Baugs eins og hann kallar Vísi. ,,Á hinn bóginn er víða vitnað til heitinga Árna Johnsens, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í garð réttarvörslukerfisins í tilefni af Baugsmálinu, en þær birtust í dag í Morgunblaðinu - hótar hann þó ekki að sýna neinum í tvo heimana með vopnavaldi.

Ég lýsi undrun minni og harma dæmalausan málflutning þeirra beggja, Jóhannesar og Árna," segir Björn að lokum.










Tengdar fréttir

Stefnan tilbúin í haust

Jóhannes Jónsson, oftast kenndur við Bónus, segist ætla að stefna íslenska ríkinu vegna Baugsmálsins og telur að stefnan geti litið dagsins ljós í september eða október. Hann segir að lögfræðingar sínir vinni nú að málinu en það sé nokkuð flókið að fara yfir það.

Stjórnarþingmaður sakar íslensk yfirvöld um valdníðslu og ofsóknir

Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar í haust að beita sér fyrir breytingum á lögum sem snúa að því að menn sem hafi hlotið skilorðsbundna dóma verði að víkja úr stjórnum fyrirtækja svo árum skipti. Í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag segir að þetta séu vitlaus lög og heimskuleg og því þurfi að spúla dekkið strax, eins og hann orðar það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×