Fleiri fréttir

Tólf hundruð manns styðja Ramses

Rúmlega 12 hundruð manns hafa sett nafn sitt á undirskriftarlista sem stofnaður hefur verið til stuðnings Keníamannsins Paul Ramses sem vísað var úr landi í fyrradag.

Fimm líkamsárásarmál í Reykjavík

Fimm líkamárásarmál voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík í nótt. Í einu tilfellinu voru 8 Litháar að slást við Keiluhöllina. Sjö þeirra voru handteknir og færðir í fangageymslu, einn var fluttur á Slysadeild með höfuðáverka og brotnar tennur.

Lögreglubifreið skemmd í Reykjanesbæ

Nokkur erill var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt. Ein líkamsárás var kærð og átti hún sér stað á einum skemmtistaðanna. Þá var ölvaður maður handtekinn í Grindavík eftir ólæti.

Bílvelta skammt frá Flúðum

Betur fór en á horfðist þegar lítill Yaris velti við Brúarhlöð, skammt frá Flúðum, um áttaleytið í kvöld. Að sögn lögreglu var um að ræða bílaleigubíl sem erlendir ferðamenn höfðu tekið á leigu. Þeir sluppu allir ómeiddir en bifreiðin er mikið skemmd.

Fjölgeislamælingar í Ísafjarðardjúpi

Í júní og júlí var rs. Árni Friðriksson við fjölgeislamælingar í Ísafjarðardjúpi, á Vestfjarðamiðum og í Kolluál. Rannsóknirnar eru liður í kortlagningarverkefni Hafrannsóknastofnunarinnar en eitt af meginmarkmiðum þess er að kortleggja veiðislóðir.

„Ég sakna sonar míns mjög mikið“

Vísir náði tali af Keníamanninum Paul Ramses sem staddur er í Róm fyrir stundu. Hann er ekki bjartsýnn og segist biðja fyrir íslenskum ráðamönnum. Erfiðast þótti Paul að yfirgefa mánaðargamlan son sinn, sem hann var kannski að sjá í síðasta skipti.

Sex handteknir við húsleit í miðbænum

Tilkynnt var um innbrot í hús í miðbæ Reykjavíkur um hálf fjögur leytið í dag. Þegar á staðinn var komið ákvað lögreglan að gera húsleit og voru sex aðilar handeknir í kjölfarið. Lítilræði af fíkniefnum fannst í húsinu en innbrotið mun hafa átt sér stað snemma í morgun.

Ramses hefði átt að njóta vafans

„Mér finnst þetta mjög ömurlegt að við skulum ekki geta tekið málið fyrir. Ég veit að við getum ekki tekið við öllum sem koma hingað og kalla sig flóttamenn og bera fyrir sig allskonar sögur sem engin fótur er fyrir þegar farið er að kanna það,“ sagði Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins í dag um mál Paul Ramses flóttamanns sem sendur var úr landi nýlega.

Þorsteinn Kragh í gæsluvarðhaldi vegna stóra hassmálsins

Umboðsmaðurinn og tónleikahaldarinn Þorsteinn Kragh situr nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við smygl á 190 kílóum af hassi sem fundust í húsbíl um borð í Norrænu á Seyðisfirði þann 10.júní. Þorsteinn var úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald á miðvikudag.

Heilbrigðisráðuneytið skoðar fjárhagsvanda á Suðurnesjum

Helgi Mar Arthursson upplýsingafulltrúi Heilbrigðisráðuneytisins segir fjárhagsvanda Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vera í skoðun hjá ráðuneytinu. Stofnunin hefur ákveðið að frá og með 16.júlí verði læknar ekki á vakt eftir hefðbundinn opnunartíma, sjúklingar þurfa því að leita til Reykjavíkur.

Rotaðist á Goslokahátíð

Hátíðarhöld vegna goslokahátíðar í Vestmannaeyjum fór vel fram sl. nótt en eyjamenn fagna því að 35 ár eru síðan eldgosi lauk á Heimaey. Áætlað er að um fjögur til fimmþúsund manns hafði verið að njóta veðurblíðunnar og þeirra skemmtunar sem boðið er uppá vegna þessa tilefnis.

Ramses kominn á gistiheimili í Róm

Keníamaðurinn Paul Ramses sem sendur var úr landi til Ítalíu í fyrradag hefur nú verið fluttur á gistiheimili fyrir flóttamenn í borginni Róm.

Tíu fíkniefnamál á Landsmóti

Tíu fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á Hvolfsvelli í gærkvöldi og tók tæplega þrjátíu manns fyrir of hraðan akstur við hefðbundið umferðareftirlit á Suðurlandsvegi í gærkvöld og í nótt. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu.

Ísland byrji að undirbúa Evrópusambandsaðild

Tveir helstu ráðgjafar eldri ríkisstjórna á Íslandi vilja að þegar verði byrjað að undirbúa umsókn um aðild að Evrópusambandinu til að endurheimta efnahagslegan stöðugleika og leysa vanda íslenskra banka og fjármálastofnana.

Björn um Ramsesmálið

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra bloggar um atburði gærdagsins fyrir utan ráðuneyti sitt. Þar söfnuðust 80-100 manns saman og mótmæltu brottflutningi Keníamannsins Paul Ramses. Björn segir sérkennilegt hve langt Eiríkur Bergmann Einarsson, fræðimaður við Háskólann á Bifröst, gangi langt í viðleitni sinni við að tala niður Dyflinarsamninginn, sem gerður er undir merkjum Schengen-samstarfsins.

Íbúi við Hallgrímskirkju að ærast úr hávaða

Hörður Ágústsson íbúi við Frakkastíg í Reykjavík segist vera að ærast úr hávaða vegna viðgerða á Hallgrímskirkju. Á hverjum virkum degi hefst vinna klukkan 07:00 að morgni að sögn Harðar og um helgar byrja viðgerðir hálftíma síðar. Hann segist við það að gefast upp og hefur áhyggjur af ferðamönnum.

Kona barin í Tryggvagötu

Nóttin var tiltölulega róleg í miðborginni og greinilega margir sem hafa yfirgefið borgina um þessa miklu ferðahelgi. Alls eru bókuð rúmlega 100 verkefni sem er í meðallagi að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Umferð minni en í fyrra

Lögreglumenn á Selfossi og á Blönduósi sem Vísir hefur rætt við í kvöld eru á því að umferð sé ekki eins mikil eins og á sama tíma í fyrra. Umferðin hefur gengið vel og áfallalaust.

Amerískur stíll á Súðavík

Þetta er og eins amerísk vegasjoppa frá sjötta áratugnum en stendur þó ekki við þjóðveg 66 heldur við þjóðveg 61, sem liggur í gegnum Súðavík. Þar er nýjasta veitingahús Vestfjarða.

Tignarleg brú rís í Djúpinu

Farið er að sjást í bogana á einni tignarlegustu stálbogabrú sem rísa mun hérlendis. Hún brúar Mjóafjörð í Djúpi og stórbætir aðalleiðina milli Ísafjarðar og Reykjavíkur þegar hún verður opnuð eftir fjóra mánuði.

Lagt til að Anna verði mannréttindastjóri

Ráðgjafanefnd á vegum borgarinnar hefur lagt til að Anna Kristinsdóttir verði næsti mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar eftir því sem segir í tilkynningu. Sú tillaga verður lögð fyrir á næsta fundi borgarráðs.

Undirskriftasöfnun hafin gegn áfangaheimili

Hafin er undirskriftasöfnun í Norðlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust. ,,Ég er skelfingu lostin yfir þessari ákvörðun," segir Díana Fjölnisdóttir.

Dæmdir fyrir að ráðast þrír gegn einum

Þrír menn hafa í Héraðsdómi Reykjaness verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í sameiningu ráðist á fjórða mann í Reykjanesbæ fyrir um tveimur árum.

Paul Ramses var ekki handtekinn

Útlendingastofnun sendi nú fyrir skömmu frá sér yfirlýsingu vegna máls Keníamannsins Paul Ramses og fjölskyldu hans. Þar kemur m.a fram að Paul hafi ekki verið handtekinn á heimili sínu eins og ítrekaði hafi komið fram í fjölmiðlum. Þar segir einnig að eiginkona hans sé ólögleg hér í landinu og það veiti hvorki rétt til samvista né sé til þess fallið að vera grundvöllur undir undanþágur frá almennum reglum.

Kærð fyrir að greiða barni ekki bætur

Sif Konráðsdóttir lögfræðingur var kærð til Lögmannafélagsins fyrir að greiða barni, sem hún starfaði sem réttargæslumaður fyrir, ekki bætur. Sif skilaði inn Lögmannaréttindum sínum og býr nú í Belgíu. Úrskurðarnefnd lögmannafélagsins hætti rannsókn á málinu eftir að sættir náðust.

Sagði e-pillur vera stera

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnabrot.

Segjast ekki hafa rekið vagnstjórann vegna bloggfærslu

Reynir Jónsson framkvæmdarstjóri Strætó bs. segir í yfirlýsingu sem hann sendi Vísi í dag að fyrirtækið hafi ekki rekið Birnu Magnúsdóttur vagnstjóra frá fyrirtækinu. Birna sagði í samtali við Vísi í fyrradag að hún hefði verið rekin vegna bloggfærslu. Þeim ummælum vísa stjórnendur Strætó bs. til föðurhúsanna.

Suðurnesin eru olnbogabarn ríkisstjórnarinnar

Bjarni Harðarson segir Suðurnesin vera olnbogabarn stjórnvalda og gjalda fyrir nálægðina við Reykjavík. Vegna fjárskorts hefur Heilbrigðisstofnun Suðurnesja ákveðið að frá með 16. júlí verði læknar ekki á vakt eftir klukkan fjögur á daginn.

Segja lífeyrissjóði þurfa að endurgreiða öryrkjum skerðingu

Öryrkjabandalag Íslands segir að nýfallin dómur í máli öryrkja á hendur lífeyrissjóðnum Gildi þýði að sjóðurinn verði að endurgreiða þeim öryrkjum sem urðu fyrir skerðingu á greiðslum sínum í fyrra, það er að segja ef Gildi áfrýjar ekki dómnum til Hæstaréttar.

Háskólakennarinn ekki ógn við almannaheill

„Dómarinn taldi brotin ekki þess eðlis að almannahagsmunir krefðust áframhaldandi gæsluvarðhalds," segir Oddgeir Einarsson, lögmaður háskólakennarans sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn níu börnum. Hann telur líklegt að háskólakennarinn verði látinn laus á mánudaginn.

Ekið á dreng í Grafarvogi

Ekið var á átta á dreng á Fjallkonuvegi í Grafarvogi. Ekið var með hann á sjúkrahús og er líðan hans góð eftir atvikum samkvæmt upplýsingum vakthafandi læknis á slysadeild. Fékk hann höfuðáverka en ekki þurfti að gera neinar aðgerðir á honum. Drengurinn er enn undir eftirliti lækna.

Borgin tekur við pólitískum flóttamönnum frá Srí Lanka

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær þá beiðni félags- og tryggingamálaráðuneytisins að taka á móti fyrrverandi túlki íslensku friðargæslunnar á Srí Lanka og konu hans sem fengu fyrr á þessu ári pólitískt hæli hér á landi. Var málinu vísað til meðferðar velferðarsviðs.

ESB horfir til Íslands í samkeppnismálum

Framkvæmdastjóri samkeppnismála hjá Evrópusambandinu segir ESB horfa til Íslands þegar kemur að samkeppnismálum. Hún segir Ísland hafa margt fram að færa í þessum efnum.

Ráðuneytisstjóri vanhæfur til að samþykkja breytingar lífeyrissjóðs

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, og undirmenn hans væru vanhæfir til að staðfesta breytingu á samþykktum lífeyrissjóðsins Gildis. Því væri lífeyrissjóðnum ekki heimilt að draga örorkulífeyri og tekjutryggingu sem Tryggingastofnun ríkisins greiðir konunni sem höfðaði málið frá örorkulífeyri hennar hjá Gildi.

Árangurslaus fundur hjá ljósmæðrum og ríkinu

Tveggja tíma fundur Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefndar ríkisins hjá ríkissáttasemjara í dag reyndist árangurslaus en nýr fundur hefur verið boðaður á miðvikudaginn kemur.

Flugbrautahlauparar fengu dóm fyrr í vikunni

Haukur Hilmarsson og Jason Slade sem hlupu inn á flugbrautina á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun, og mótmæltu þannig brottflutningi Keníamannsins Paul Ramses, hlutu dóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrr í vikunni. Dóminn fengu þeir fyrir mótmæli við Hellisheiðarvirkjun í fyrrasumar.

Meint skattsvik Jóns 361 milljón - ákæran í heild sinni

Jón Ólafsson er ákærður fyrir að hafa skotið undan skatti 361 milljón króna. Brotin áttu sér stað á árunum 1999-2002. Jón er einnig ákærður fyrir að hafa ekki greitt eignaskatt af fasteignum í Lundúnum og Cannes.

Sjá næstu 50 fréttir