Bifhjól ökumanns gert upptækt eftir ofsaakstur 7. júlí 2008 16:01 Frá vettvangi slyssins. MYND/Stöð 2
Tveir bifhjólaökumenn voru dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Ökumennirnir voru mældir á 180 km hraða og í kjölfarið reyndu mennirnir að stinga lögregluna af. Þeir fóru í gegnum tvo vegartálma sem settir voru upp en ökuferðin endaði með aftan á keyrslu annars hjólsins og ók hinn ökumaðurinn yfir félaga sinn í kjölfarið. Ökutæki annars mannsins var gert upptækt og mun það vera í fyrsta skipti sem svo er gert. Upphaf máls þessa er að lögreglumenn frá Selfossi voru staddir á Suðurlandsvegi við Kambabrún á leið austur er þeir mættu tveimur bifhjólum sem var ekið vestur Suðurlandsveg á móti akstursstefnu þeirra. Var hraði bifhjólanna mældur með ratsjá og mældist hraði þeirra 180 kílómetrar á klukkustund. Var ökumönnunum strax gefið merki með forgangsljósum lögreglubifreiðarinnar um að stöðva akstur hjólanna auk þess að eftirför var hafin. Var Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar tilkynnt um aksturinn sem sendi lögreglubifreiðar á móti bifhjólunum. Í framhaldi mynduðu tvær lögreglubifreiðar vegatálma fyrir ofan Gunnarshólma og tvær aðrar lögreglubifreiðar annan vegatálma við Hólmsá. Óku bifhjólin fram hjá báðum vegatálmunum og beygðu inn á Breiðholtsbraut til suðurs við Rauðavatn. Stuttu seinna ók annað bifhjólið aftan á bifreið og við það féll bæði hjól og ökumaður í götuna en hitt bifhjólið virðist hafa ekið yfir ökumann fyrra hjólsins. Komu lögreglubifreiðar og sjúkraflutningamenn á vettvang í sama mund og voru ökumenn bifhjólanna báðir fluttir á sjúkrahús í beinu framhaldi. Annar mannanna skal sæta fangelsi í átta mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún látin niður falla að liðnum þremur árum haldi hann almennt skilorð. Hann var einnig sviptur ökurétti í þrjú ár. Bifhjól hans var einnig gert upptækt með dómi en það er í fyrsta skipti sem svo er gert. Hinum ökumanninum er ekki gerð sérstök refsing í málinu enda var ekki gerð krafa um það af hálfu ákæruvaldsins vegna þeirra alvarlegu afleiðinga sem slysið hafði fyrir manninn. Hann er lamaður fyrir neðan háls. Maðurinn var hins vegar sviptur ökurétti í sex mánuði.
Tengdar fréttir Stórslasaður eftir ofsaakstur Bifhjólamaður liggur stórslasaður á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir að hafa fallið til jarðar á ofsahraða á Breiðholtsbraut upp úr miðnætti. Tildrög slyssins voru að hann ók aftan á bíl og missti stjórn á hjólinu. Meðal áverka eru hálsbrot. Félagi hans á öðru bifhjóli, missti einnig stjórn á sínu hjóli við slysið og skall í götuna, en hann er ekki eins alvarlega slasaður. Ökumann bílsins sakaði ekki. 11. júní 2007 12:45 Ökutæki gerð upptæk vegna ofsaaksturs Þeir sem gerast sekir um ofsaakstur, ölvunarakstur eða vítaverðan akstur að öðru leyti eiga það á hættu að ökutæki þeirra verði gerð upptæk. Sýslumaðurinn á Selfossi hyggst láta reyna á þetta nýja ákvæði umferðarlaga gagnvart tveimur vélhjólamönnnum, sem lentu í slysi á Breiðholtsbraut í byrjun vikunnar, eftir ofsaakstur yfir Hellisheiði. 15. júní 2007 18:55 Háskaakstur segir formaður Sniglanna Formaður Sniglanna segir að um háskaakstur hafi verið að ræða hjá tveimur félagsmönnum í Sniglunum í nótt. Annar ökumananna berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi eftir alvarlegt slys á Breiðholtsbraut. Honum er nú haldið sofandi en hann er á leið í aðgerð. Maðurinn hálsbrotnaði í slysinu. Hinn ökumaðurinn er hins vegar kominn heim af sjúkrahúsi og slasaðist hann ekki alvarlega. Lögreglan telur að meðalhraði bifhjólanna hafi farið á þriðja hundraðið. 11. júní 2007 19:16 Bifhjólamaður stórslasaður eftir árekstur Bifhjólamaður liggur stórslasaður á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir að hafa fallið til jarðar á ofsahraða á Breiðholtsbraut upp úr miðnætti. Tildrög slyssins voru að hann ók aftan á bíl og missti stjórn á hjólinu. Félagi hans á öðru bifhjóli missti einnig stjórn á sínu hjóli við slysið og skall í götuna, en hann er ekki eins alvarlega slasaður. Ökumann bílsins sakaði ekki. 11. júní 2007 07:18 Reynir á upptöku farartækja í fyrsta sinn Sýslumaðurinn á Selfossi hefur lagt hald á bæði mótorhjólin, sem komu við sögu umferðarslyss á Breiðholtsbraut í vikunni, og ætlar að krefjast þess fyrir dómi að þau verði gerð upptæk til ríkissjóðs. Það yrði fyrsta mál sinnar tegundar eftir að ný lög heimiluðu slíkt. 15. júní 2007 12:05 Óskað eftir vitnum að ofsaakstri á Hellisheiði Lögreglan biður vegfarendur sem urðu vitni að aksturslagi bifhjólanna tveggja sem virtu að vettugi stöðvunarmerki lögreglu aðfararnótt mánudagsins að gefa sig fram. För hjólanna endaði með því að báðir ökumanna féllu í götuna eftir árekstur við bíl á Breiðholtsbraut með þeim afleiðingum að annar mannanna slasaðist alvarlega. Honum er nú haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu Landsspítalans. 12. júní 2007 15:23 Vill gera mótorhjólin upptæk Sýslumaðurinn á Selfossi hefur lagt hald á bæði mótorhjólin, sem komu við sögu umferðarslyss á Breiðholtsbraut í vikunni og ætlar að krefjast þess fyrir dómi að þau verði gerð upptæk til ríkissjóðs. Það yrði fyrsta mál sinnar tegundar eftir að ný lög heimiluðu slíkt en þau tóku gildi í apríl. 15. júní 2007 07:10 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira
Stórslasaður eftir ofsaakstur Bifhjólamaður liggur stórslasaður á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir að hafa fallið til jarðar á ofsahraða á Breiðholtsbraut upp úr miðnætti. Tildrög slyssins voru að hann ók aftan á bíl og missti stjórn á hjólinu. Meðal áverka eru hálsbrot. Félagi hans á öðru bifhjóli, missti einnig stjórn á sínu hjóli við slysið og skall í götuna, en hann er ekki eins alvarlega slasaður. Ökumann bílsins sakaði ekki. 11. júní 2007 12:45
Ökutæki gerð upptæk vegna ofsaaksturs Þeir sem gerast sekir um ofsaakstur, ölvunarakstur eða vítaverðan akstur að öðru leyti eiga það á hættu að ökutæki þeirra verði gerð upptæk. Sýslumaðurinn á Selfossi hyggst láta reyna á þetta nýja ákvæði umferðarlaga gagnvart tveimur vélhjólamönnnum, sem lentu í slysi á Breiðholtsbraut í byrjun vikunnar, eftir ofsaakstur yfir Hellisheiði. 15. júní 2007 18:55
Háskaakstur segir formaður Sniglanna Formaður Sniglanna segir að um háskaakstur hafi verið að ræða hjá tveimur félagsmönnum í Sniglunum í nótt. Annar ökumananna berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi eftir alvarlegt slys á Breiðholtsbraut. Honum er nú haldið sofandi en hann er á leið í aðgerð. Maðurinn hálsbrotnaði í slysinu. Hinn ökumaðurinn er hins vegar kominn heim af sjúkrahúsi og slasaðist hann ekki alvarlega. Lögreglan telur að meðalhraði bifhjólanna hafi farið á þriðja hundraðið. 11. júní 2007 19:16
Bifhjólamaður stórslasaður eftir árekstur Bifhjólamaður liggur stórslasaður á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir að hafa fallið til jarðar á ofsahraða á Breiðholtsbraut upp úr miðnætti. Tildrög slyssins voru að hann ók aftan á bíl og missti stjórn á hjólinu. Félagi hans á öðru bifhjóli missti einnig stjórn á sínu hjóli við slysið og skall í götuna, en hann er ekki eins alvarlega slasaður. Ökumann bílsins sakaði ekki. 11. júní 2007 07:18
Reynir á upptöku farartækja í fyrsta sinn Sýslumaðurinn á Selfossi hefur lagt hald á bæði mótorhjólin, sem komu við sögu umferðarslyss á Breiðholtsbraut í vikunni, og ætlar að krefjast þess fyrir dómi að þau verði gerð upptæk til ríkissjóðs. Það yrði fyrsta mál sinnar tegundar eftir að ný lög heimiluðu slíkt. 15. júní 2007 12:05
Óskað eftir vitnum að ofsaakstri á Hellisheiði Lögreglan biður vegfarendur sem urðu vitni að aksturslagi bifhjólanna tveggja sem virtu að vettugi stöðvunarmerki lögreglu aðfararnótt mánudagsins að gefa sig fram. För hjólanna endaði með því að báðir ökumanna féllu í götuna eftir árekstur við bíl á Breiðholtsbraut með þeim afleiðingum að annar mannanna slasaðist alvarlega. Honum er nú haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu Landsspítalans. 12. júní 2007 15:23
Vill gera mótorhjólin upptæk Sýslumaðurinn á Selfossi hefur lagt hald á bæði mótorhjólin, sem komu við sögu umferðarslyss á Breiðholtsbraut í vikunni og ætlar að krefjast þess fyrir dómi að þau verði gerð upptæk til ríkissjóðs. Það yrði fyrsta mál sinnar tegundar eftir að ný lög heimiluðu slíkt en þau tóku gildi í apríl. 15. júní 2007 07:10