Innlent

Sálfræðingur segir háskólakennara haldinn barnagirnd

Andri Ólafsson skrifar

Háskólakennarinn sem setið hefur í gæsluvarðhaldi undanfarnar vikur, grunaður er um gróf kynferðisbrot gegn níu börnum, er haldinn barnagirnd. Þetta kemur fram í sálfræðimati sem kennarinn sætti vegna rannsóknar málsins.

í sálfræðimatinu kemur einnig fram, samkvæmt heimildum Vísis, að kennarinn sé hættulegur börnum.

Samt sem áður verður kennarinn að öllum líkindum látinn laus í dag. Gæsluvarðhaldið yfir honum rennur út klukkan 16. Ríkissaksóknari krafðist þess í síðustu viku að gæsluvarðhaldið yrði framlengt á grundvelli almannahagsmuna en Héraðsdómur Reykjavíkur féllst ekki á þá kröfu.

Sú ákvörðun var kærð til Hæstaréttar sem á eftir að skila sinni niðurstöðu. Að öllu óbreyttu mun kennarinn því verða látinn laus í dag þrátt fyrir álit sálfræðings um að hann sé hættulegur börnum.

Í upphafi snerist rannsókn lögreglunnar að meintri misnotkun háskólakennarans á þremur börnum hans. Síðar bættust tvö uppkomin börn hans, sem hann á með fyrri konu sinni, við hóp kærenda auk vina barnanna. Samtals saka níu einstaklingar hann um misnotkun.

Rannsókn á brotum gegn uppkomnu börnunum var hætt sökum þess að brotin eru fyrnd.

Vísir birti viðtal við háskólakennarann í júní þar sem kom fram að hann hafði játað þann hluta brotanna sem snerist að þremur börnum hans sem hann á með núverandi eiginkonu.

Hann sagði: „Ég iðrast þess sem ég hef gert mjög mikið og vonast til þess að geta beðið konu mína og dætur afsökunar."









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×