Innlent

Engar vís­bendingar og lítið af upp­lýsingum

Smári Jökull Jónsson skrifar
Margrét Kristín Pálsdóttir er lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Margrét Kristín Pálsdóttir er lögreglustjóri á Suðurnesjum. Vísir/Einar

Grindavíkurbær metur nú nýja stöðu sem upp er komin eftir að lögregla hætti í gær leit að Lúðvíki Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 10. janúar 2024. Ekki verður ráðist í frekari leitaraðgerðir og telst formlegri leit af hálfu lögreglu lokið. 

Leitaraðgerðir fóru fram á vettvangi í Grindavík í gær og voru á ábyrgð lögreglustjórans á Suðurnesjum. Fyrir lá ítarlegt áhættumat í fjórum þáttum en aðgerðirnar í gær voru samkvæmt fyrsta áfanga þess sem byggði á sjónleit sigmanna og leit með rústamyndavélum án þess að jarðvegi væri raskað. 

Aðgerðirnar of áhættusamar

Í tilkynningu lögreglu segir að aðgerðin hafi staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund og fóru meðal annars tveir sigmenn niður í sprunguna. Fundust engar vísbendingar sem gætu varpað ljósi á hvar jarðneskar leifar Lúðvíks væri að finna og segir í tilkynningu að með því sé þeim aðgerðum lokið sem lögreglustjóri telji mögulegt að ráðast í á grundveli áhættumats, aðrar aðgerðir þyki of áhættusamar.

Sjá einnig: Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið

Lögreglustjóri Suðurnesja, Margrét Kristín Pálsdóttir, vildi ekki tjá sig frekar um leitaraðgerðir þegar fréttastofa náði tali af henni í morgun og vísaði í áðurnefnda tilkynningu en samkvæmt heimildum fréttastofu var meðal annars leitað í vatni en frekari leit myndi krefjast töluverðra jarðvegsframkvæmda.

Bærinn ráði framhaldinu

Ákvörðun um framhald í málinu er nú hjá Grindavíkurbæ en svæðið við sprunguna er á forræði bæjarins. Samkvæmt heimildum hefur ekki verið tekin ákvörðun um næstu skref, ný staða sé komin upp og hana þurfi að meta. Svæðið er afgirt og krefst töluverðrar vinnu þar til að það geti talist öruggt.

Þá eru fimm enn með stöðu sakbornings í tengslum við slysið fyrir tæpum þremur árum. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari staðfesti í samtali við fréttastofu í morgun að málið væri enn til meðferðar hjá ákæranda og væri til vinnslu þessa dagana.


Tengdar fréttir

Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun

Í dag fer fram afmörkuð leitaraðgerð í Grindavík vegna Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í janúar 2024. Ekki er um að ræða björgun heldur er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður samkvæmt tilkynningu lögreglu.

„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“

Leit verður hafin nú í morgunsárið að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Bróðir hans gagnrýnir hversu langan tíma hefur tekið að hefja leit og telur að rannsaka þurfi aðdraganda þess að Lúðvík féll í sprunguna betur. Fjölskyldan voni að hann finnist í dag og þau geti jarðað hann. Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×