Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum „Það er er enginn sem hjálpar okkur eitt né neitt hérna,“ segir Davíð Guðlaugsson, sem hefur setið fastur í Dúbaí ásamt unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur. Þau undrast ráðaleysi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis og ætla í nótt að freista þess að komast til Óman á eigin vegum. Innlent 2.3.2026 18:56
Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag. Innlent 2.3.2026 12:00
Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila. Erlent 1.3.2026 15:15
Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Úrval Útsýn býður upp á fjölmargar spennandi ævintýraferðir í vetur og í vor. Meðal þeirra eru ferðir til Óman og Dubai í febrúar, til Japans í mars og til Egyptalands í maí. Allar þrjár ferðirnar hafa fengið góðar viðtökur meðal landsmanna og því þurfa áhugasamir að bregðast skjótt við til að tryggja sér pláss. Lífið samstarf 21. janúar 2026 09:04
Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum styrkja ekki lengur ríkisborgara sína til háskólanáms í Bretlandi, af ótta við að nemendur verði útsettir fyrir innrætingu samtaka á borð við Múslimska bræðralagið. Múslimska bræðralagið eru alþjóðleg samtök múslima sem skilgreind eru sem hryðjuverkasamtök í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en ekki í Bretlandi. Erlent 10. janúar 2026 20:33
Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Her Sádi-Arabíu gerði í morgun loftárásir á höfnina í Mukalla í Jemen sem sagðar eru hafa beinst að vopnasendingum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu vöruðu í kjölfarið furstadæmin við því að aðgerðir þeirra og stuðningur við vopnaðan hóp sem kallast STC væri einkar hættulegur. Erlent 30. desember 2025 09:41
Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Íslensk kona á leið til Ástralíu með syni sína tvo lenti í einni stærstu martröð ferðalangsins þegar vegabréf eldri sonarins endaði í ruslinu á flugvelli í Lundúnum. Þau rótuðu í tunnunni en þá var vegabréfið horfið. Leiðir skildu, móðirin og yngri sonurinn flugu áfram en sá eldri varð eftir með síma, hleðslutæki og einbeittan vilja til að endurheimta vegabréfið. Ferðalög 17. desember 2025 07:02
Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Foreldrar ungra manna sem borgað hafa Íslendingi margar milljónir eftir loforð um að þeir yrðu ríkir með gervigreindarmarkaðssetningu hafa miklar áhyggjur af sonum sínum. Nýjasta útspil mannsins er sala á myllumerkjum, sem hann segir fólk geta grætt fúlgur fjár á. Innlent 16. desember 2025 19:00
Fundað um frið í Abú Dabí Bandarískir og rússneskir erindrekar komu saman í Abú Dabí í Sameinuðu furstadæmunum í morgun. Þar stendur til að ræða frið í Úkraínu og tillögurnar sem fyrir liggja. Ólíklegt þykir að Rússar muni samþykkja þessar tillögur, sem hafa tekið nokkrum breytingum frá því þær litu fyrst dagsins ljós. Erlent 25. nóvember 2025 12:03
Aron í góðum málum á miðjunni en algjör hörmung hjá Jóhanni Reynsluboltarnir í íslenska landsliðinu áttu misjafnan dag með sínum liðum í Mið-Austurlöndunum. Fótbolti 21. nóvember 2025 18:47
Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Leyniþjónustur Bandaríkjanna og embættismenn í Evrópu, Líbíu og Egyptalandi segja að ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafi aukið hergagnasendingar til vígamanna Rapid support forces (RSF) í Súdan á þessu ári. Kínverskir drónar hafa verið sendir til vígamannanna, auk stórskotaliðsvopna, farartækja, vélbyssa og skotfæra, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 29. október 2025 16:05
Vildi ekki að börnin sín myndu alast upp í Englandi Fyrrum leikmaður Liverpool er nú að spila í C-deildinni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og fullvissar alla um það í nýju viðtali að hann sé ekki kominn til Dúbaí vegna peninganna. Enski boltinn 16. október 2025 23:31
Mótmæla hugmyndum um innlimun nær alls Vesturbakkans Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja að Ísraelsmenn myndu fara yfir „rauða línu“ ef þeir innlimuðu Vesturbakkann. Þá myndi það gera út um möguleikann á svokallaðri „tveggja ríkja lausn“ á deilu Ísrael og Palestínumanna. Erlent 4. september 2025 07:01
Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Súdanski herinn gerði á dögunum loftárás á flugvöll í Darfurhéraði sem beindist sérstaklega að herflugvél sem talið er að hafi verið í eigu herafla Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Flugvélinni var grandað og með henni fórust að minnsta kosti fjörutíu málaliðar frá Kólumbíu, sem furstadæmin eru sögð hafa ráðið til að styðja uppreisnarmenn í Súdan. Erlent 7. ágúst 2025 14:59
Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Íslensk kona sem var stödd í Íran þegar Ísraelsher hóf árásir á landið í júní komst ekki úr landinu og til Dúbaí, þar sem hún er búsett, fyrr en mánuði síðar. Hún lýsir miklum ótta og ringulreið í tólf daga stríðinu sem fylgdi. Innlent 26. júlí 2025 10:32
Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai „Þegar ég stökk úr flugvél ein í fyrsta sinn þá var heilinn að segja mér bara nei, nei, nei, ekki stökkva,“ segir ævintýrakonan Svanhildur Heiða Snorradóttir. Hún heillaðist algjörlega að fallhlífarstökki þegar hún var búsett í Miðausturlöndum og ræddi við blaðamann um þetta mjög svo spennandi áhugamál. Lífið 21. júlí 2025 11:42
Jóhann Berg kominn með nýtt lið á Arabíuskaganum Jóhann Berg Guðmundsson mun ekki spila áfram í sádi-arabíska fótboltanum en hann verður samt áfram á Arabíuskaganum. Fótbolti 2. júlí 2025 19:20
Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Pavel Durov, stofnandi samskiptaforritsins Telegram, segir að öll þau rúmlega hundrað börn sem hann hafi feðrað í gegnum árin muni skipta jafnt með sér auðæfum hans að honum gengnum. Auður Durovs er nú metinn á tæplega 14 milljarða bandaríkjadala, rúmlega 1.700 milljarða króna. Erlent 20. júní 2025 14:56
Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Donald Trump og fjölskylda hans eiga í umfangsmiklum viðskiptum í Mið-Austurlöndum og vill forsetinn þar að auki taka við lúxusþotu í gjöf frá konungsfjölskyldu Katar. Flugvélin er metin á um 53 milljarða króna. Hann hefur brugðist reiður við gagnrýni á gjöfina og segist ekkert vita um viðskipti sona sinna á svæðinu. Erlent 14. maí 2025 14:21
Hyggja á opnun nýs Disney-skemmtigarðs í Abú Dabí Bandaríska Walt Disney Company og upplifunarfyrirtækið Miral í Abú Dabí ætla sér að opna nýja risa Disney-skemmtigarð í Abú Dabí. Viðskipti erlent 7. maí 2025 13:08
Er Dúbaí-súkkulaðið virkilega svona gott? Nammigrísir landsins eru óðir í nýtt súkkulaðistykki sem selst upp í verslunum á örfáum klukkustundum. En er þetta súkkulaði virkilega svona gott? Matur 19. febrúar 2025 19:24
Kyrrsetja skuggaskipið vegna slæms ástands Yfirvöld í Finnlandi hafa kyrrsett olíuflutningaskipið Eagle S, sem talið er hafa verið notað til að skemma sæstrengi í Eystrasalti. Samgöngustofa segir að skipið, sem talið er tilheyra svokölluðum skuggaflota Rússa og vera notað til að flytja olíu í trássi við viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi, sé ekki hæft til siglingar. Erlent 8. janúar 2025 11:03
Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku Ungur maður frá Bretlandi hefur verið fangelsaður í Dúbaí, fyrir að eiga samræði við 17 ára stúlku. Bresk stjórnvöld eru með málið á sínu borði. Erlent 4. janúar 2025 22:45
Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Fyrrverandi forseti Íslands ákvað að skella sér á einhvers konar sæþotu eftir stíf fundahöld í allan dag, í Abú Dabí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Lífið 4. október 2024 15:52