Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Freyja Þórisdóttir skrifar 17. október 2026 00:05 Fjöldi fólks hefur lagt blóm og kerti við skólann fyrir framan skólann þar sem árásin átti sér stað. Getty Tvö fórnarlamba árásarmanns sem skaut þrjú börn og einn kennara til bana í Oregonríki í Bandaríkjunum í vikunni hafa verið nafngreind. Árásarmaðurinn var hinn sextán ára gamli Griffin J. John II og nú hefur verið greint frá því að hann sé fyrrverandi nemandi í skólanum sem er fyrir börn frá leikskólaaldri og upp í fimmta bekk sem eru með sérþarfir .
Hin fimm ára Rhoam Summer og hin 25 ára Meghan Lambert, kennari við skólann, létust í árásinni sem átti sér stað í gær, fimmtudaginn 15. október, í Silver Rail-grunnskólanum í Oregon, er fram kemur í frétt Breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Fjölskyldur hinna tveggja nemendanna sem létust, átta ára og ellefu ára, hafa óskað eftir því að nöfn þeirra yrðu ekki birt opinberlega að svo stöddu, að sögn lögreglu. Þá hafi tveir aðrir særst alvarlega í árásinni. Annar kennari, 54 ára, liggur enn á sjúkrahúsi, auk sjö ára nemanda sem var alvarlega slasaður en er sagður í stöðugu ástandi. Fyrr í dag var greint frá því að vegfarandi hefði skorist í leikinn, elt árásarmanninn inn í skólann og skotið hann til bana áður en lögregla kom á vettvang. Nú er búið að greina frá því að hann sé faðir tveggja nemenda í skólanum og hafi verið á leið heim þegar hann ók fram hjá skólanum. Kaylub Giamanco, 36 ára smiður, hafi séð hinn grunaða skjóta á ökutæki fyrir utan skólann, síðan skjóta í gegnum glugga og fara inn. Í yfirlýsingu sagði fjölskylda Giamanco að hann „sæktist ekki eftir viðurkenningu“. Lögreglustjóri á svæðinu sagði á blaðamannafundi í dag að kennari sem tókst á við árásarmanninn áður en hann var skotinn hefði ekki slasast og að „við stöndum í þakkarskuld við það fólk sem sýndi hugrekki andspænis slíku ofbeldi og greip inn í til að koma í veg fyrir að þessi harmleikur yrði enn verri“. Lögregla telji að hinn grunaði hafi farið fótgangandi að grunnskólanum, en hún rannsaki enn nákvæmar ferðir hans og hvernig hann komst yfir byssuna. Ástæða árásarinnar liggi ekki fyrir að svo stöddu. Donald Trump Bandaríkjaforseti hrósaði framgöngu vegfarandans á föstudag og kallaði hann „mikla hetju“. Trump ræddi við fréttamenn í Hvíta húsinu áður en hann hélt til Georgíu og sagði að ástandið hefði getað orðið „miklu verra“ ef enginn hefði gripið inn í. „Þetta er hræðilegt, en guði sé lof fyrir mann sem var með byssu og kunni að nota hana,“ sagði hann.
Lögreglumál Dómsmál Bandaríkin Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Fleiri fréttir Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Sjá meira