Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Olíuverð hefur tekið mikinn kipp upp á við á undanförnum dögum. Útlit er fyrir frekari hækkanir þar sem stríð Bandaríkjanna gegn Íran gæti stækkað að umfangi og ekkert útlit er fyrir að því ljúki í bráð. Erlent 23. júlí 2026 21:10
Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Donald Trump segir að ef Hútar haldi áfram árásum á olíuflutningaskip á Rauðahafi muni hann draga bæði Írani og Húta til ábyrgðar. Árásir verði gerðar á bæði ríki. Forsetinn bandaríski segist verulega vonsvikinn með leiðtoga Húta, sem hafi hagað sér skynsamlega hingað til vegna stríðs Bandaríkjamanna gegn Íran. Erlent 23. júlí 2026 12:54
Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu. Viðskipti erlent 23. júlí 2026 10:26
Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað. Erlent 23. júlí 2026 07:18
Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming Bandaríkin og Sádi-Arabía hafa undirritað samning sín á milli um rekstur bandarískra fyrirtækja á kjarnorkuverum í Sádi-Arabíu. Ekkert í samningnum hindrar úranauðgun Sáda til að framleiða kjarnorku, að sögn bandarískra fjölmiðla. Erlent 22. júlí 2026 21:41
Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Donald Trump segir að í hvert sinn sem Íranir ráðist á skip á Hormússundi, hvort sem það er með dróna, eldflaug eða öðrum hætti, muni Bandaríkin svara með eigin árásum. Þær verði gerðar á brýr eða orkuver. Einni brú eða orkuveri verði rústað fyrir hverja árás Írana. Erlent 22. júlí 2026 14:46
Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Stríð Bandaríkjanna gegn Íran hefur kostað um það bil 37,5 milljarða dala. Það sagði Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, á fundi fjármálanefndar öldungadeildarinnar í gær, þar sem hann bað um 95 milljarða dala aukafjárveitingu fyrir ráðuneytið. Um mikinn átakafund var að ræða þar sem til skarpra orðaskipta kom. Erlent 22. júlí 2026 08:49
Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir upplýsingar sem Ísraelar höfðu um fundi ráðamanna í Íran daginn sem Ali Khamenei var ráðinn af dögum benda til öryggisbrests sem líklega sé enn til staðar. Araghchi var í sömu byggingu og Khamenei þegar Ísraelar létu til skarar skríða og var dreginn úr rústunum. Síðan þá hefur hann verið á stöðugri hreyfingu til að forðast að verða sjálfur myrtur. Erlent 22. júlí 2026 06:56
Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran í nótt, þá tíundu í röð síðan vopnahlé landanna tveggja fór út um þúfur. Íranir gerðu síðan árás á olíuskip á Hormússundi í morgun og skemmdu það þannig að áhöfnin þurfti að yfirgefa skipið. Erlent 21. júlí 2026 08:25
Skoða að auka umfang árása enn frekar Bandaríkjamenn eru að fjölga herþotum og eldsneytisflugvélum í Mið-Austurlöndum og er til skoðunar að auka umfang árása gegn Írönum enn frekar. Í sama tíma boða bæði Bandaríkjamenn og Íranir að frekari viðræður komi enn til greina. Erlent 20. júlí 2026 14:38
Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Byltingavörðurinn í Íran hefur hótað því að ekki einn einasti dropi af olíu eða gasi muni komast um Hormússund ef Bandaríkjamenn halda áfram árásum sínum á landið. Erlent 20. júlí 2026 06:56
Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Tveir bandarískir hermenn eru látnir og sá þriðji er týndur eftir eldflaugaárás Írans í Jórdaníu í gær, föstudag. Fjórir hermenn til viðbótar voru fluttir til nánari aðhlynningar á sjúkrahúsi en hafa þegar verið útskrifaðir. Alls hafa sextán hermenn Bandaríkjanna nú látist í átökunum. Erlent 18. júlí 2026 23:28
Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Bandaríkjaher hélt árásum sínum á Íran áfram í nótt, sjöttu nóttina í röð og fullyrða miðlar í Íran að nú hafi verið ráðist að borgaralegum innviðum á borð við brýr, lestarstöð og flugvöll. Erlent 17. júlí 2026 07:36
Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Bandaríkjamenn skutu eldflaugum á olíuflutningaskip sem hugðist leggja að bryggju á Kharg-eyju á Hormússundi. Bandaríkjastjórn hefur endurnýjað hafnarbann sitt gagnvart írönskum höfnum og að sögn embættismanna hafði skipið ítrekað verið varað við. Erlent 16. júlí 2026 06:41
Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Bandaríkin gerðu árásir á skotmörk meðfram ströndum Íran í nótt og morgun, sem líkt og fyrri daginn var svarað með árásum Írana á innviði Bandaríkjanna í Barein, Jórdaníu og Kúveit. Erlent 15. júlí 2026 06:19
Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hættur við innheimtu tuttugu prósenta tolls af varningi sem siglir um Hormússundi sem hann boðaði í gær. Erlent 14. júlí 2026 18:38
Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Bandaríkjamenn gerðu árásir á skotmörk í Íran í nótt, þriðju nóttina í röð. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að árásirnar yrðu harðar og að Bandaríkjastjórn myndi í kjölfarið koma aftur á hafnarbanni gegn Írönum á Persaflóa. Erlent 14. júlí 2026 06:43
Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Árásir Bandaríkjanna og Íran hvort á annað héldu áfram í nótt. Skotmörk Írana voru herstöðvar í nágrannalöndum en Bandaríkin sögðust hafa hæft meðal annars loftvarnarkerfi Írana. Erlent 13. júlí 2026 07:48
Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Íranir gerðu árásir á bandarískar herstöðvar á Persaflóa í nótt og segja aðgerðirnar svar við árásum Bandaríkjanna fyrr í nótt. Íranski byltingarvörðurinn (IRGC) sagðist í gær hafa lokað fyrir alla umferð á Hormússundi. Erlent 12. júlí 2026 09:03
Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkjaher sé reiðubúinn, fús og fær til að „gereyða öllum svæðum Írans“ skyldu Íranar sýna honum banatilræði. Þúsund flugskeytum sé þegar beint að Íran. Erlent 11. júlí 2026 08:21
Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þúsundir Írana fylgja fyrrum æðstaklerkinum Ali Khamenei til grafar á lokadegi útfarar hans í borginni Mashhad í norðaustur Íran í dag. Fjórtán létust í árásum Bandaríkjanna síðustu nótt og þá hafa Íranir svarað með árásum gegn herstöðvum Bandaríkjanna í Kúveit, Katar og Barein. Erlent 9. júlí 2026 15:36
Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Bandaríkjaher hélt áfram árásum á Íran í gær, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að tímabundið vopnahlé væri úr sögunni. Samkvæmt írönskum miðlum heyrðust sprengingar í hafnarborgunum Bandar Abbas og Sirik, auk þess sem gerðar voru árásir á skotmörk í Bushehr héraði, þar sem er að finna kjarnorkuinnviði. Erlent 9. júlí 2026 07:15
„Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Bandaríkjaher gerir nú árásir á Íran. Samkvæmt írönskum fjölmiðlum hafa sprengingar heyrst við suðurströnd landsins og á eyjum þeirra í Persaflóa. Erlent 8. júlí 2026 23:24
Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump. Innlent 8. júlí 2026 18:52
Boðar fleiri árásir Bandaríkjaher ætlar að halda áfram árásunum sínum á Íran í kvöld. Þetta tilkynnti Donald Trump Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins. Erlent 8. júlí 2026 16:01
Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Markaðsverð á hráolíu hækkaði um rúm fimm prósent eftir yfirlýsingu Bandaríkjaforseta um að bráðabirgðarvopnahléi milli Bandaríkjanna og Íran væri lokið. Viðskipti erlent 8. júlí 2026 10:30
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Donald Trump Bandaríkjaforseti segir samtal Bandaríkjamanna og Írana vera komið á endastöð. „Ég nenni ekki að fást við þá lengur. Þeir eru úrhrök,“ sagði forsetinn í Ankara í morgun. „Þeir eru veikir, þeir eru grimmir... ofbeldisfullt fólk.“ Erlent 8. júlí 2026 08:40
Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Íranir gerðu árásir á hernaðarinnviði Bandaríkjanna í Kúveit og Barein í nótt, í kjölfar árása Bandaríkjamanna á skotmörk í Íran í gærkvöldi. Yfirvöld í Bandaríkjunum sögðu árásir sínar svar við árásum Írana á flutningaskip á Hormuz-sundi. Erlent 8. júlí 2026 07:09
Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Bandaríkin segjast hefja árásir á Íran á ný í kjölfar árásar Írans á þrjú olíuflutningaskip á Hormússundi. Bandaríkjastjórn afturkallaði í dag heimild um sölu á íranskri olíu en hún var hluti af bráðabirgðasamkomulagi um endalok átaka milli Bandaríkjanna og Írans. Erlent 7. júlí 2026 22:02
Mætti ekki í útför föður síns Mojtaba Khamenei, sem tók nýlega við sem æðstiklerkur Írana, var hvergi að sjá í jarðarför föður síns, Ali Khamenei fyrrverandi æðstaklerks. Bræður hans mættu samt. Hann hefur verið í felum frá því að hann tók við sem æðstiklerkur eftir að Bandaríkjaher felldi föður hans í loftárás í lok febrúar. Erlent 5. júlí 2026 19:49