Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tónlistarmenn fengu 11 milljónir Tónlistarsjóðurinn Kraumur úthlutaði í gær tæpum ellefu milljónum króna til listamanna og hljómsveita, eigin verkefna Kraums og samstarfsverkefna sjóðsins. 3.4.2009 04:00
Alhliða dansstaður í miðbænum Skemmtistaðurinn London Reykjavík verður opnaður á neðri hæðinni á gamla Gauki á Stöng í kvöld. Áhersla verður lögð á danstónlist af ýmsum toga og ættu dansþyrstir Íslendingar því að fá þarna eitthvað fyrir sinn snúð. 3.4.2009 04:00
Spurningakeppni fjölmiðla á Bylgjunni þetta árið „Þetta er þannig að keppnin er búin að vera á Ríkisútvarpinu en þeir ákváðu að hafa hana ekki núna og þess vegna var smá þrýstingur á okkur að halda þessu lifandi og við stukkum á það bara," svarar Logi Bergmann Eiðsson spyrill um árlega spurningakeppni fjölmiðla á Íslandi. „Þetta er mjög hefðbundið. Allir helstu fjölmiðlar landsins keppa. Tveir í hverju liði og svo er útsláttarfyrirkomulag. Þetta er mjög staðlað form myndi ég segja," segir Logi og bætir við að keppnin verður um páskahelgina á Bylgjunni. 2.4.2009 13:42
Ásdís Rán opnar aðdáendasíðu „Síðan er aðallega ætluð til kynningar á mér og minum verkum," svarar Ásdís Rán sem opnaði í dag nýja heimasíðu Icelandicbeuty.com. „Svo er ég að þróa þarna leið til að komast í betra samband við aðdáendur og gefa þeim kost á að vera í persónulegu sambandi við mig í gegnum FanSpace-ið á síðunni." „Fólk getur þá fylgst náið með mínu daglega lífi, talað við mig í gegnum life-chat kerfi, fengið ráð, séð nýjustu myndirnar mínar og fleira skemmtilegt." „Einnig er hægt að versla „fan-vörur" í búðinni á síðunni, downloada dagatölum og screensavers ásamt myndum og fleiru." „Síðan er aðallega ætluð fyrir Balkansskagann og USA til að byrja með þar sem stærstu aðdáendahóparnir eru. Síðan er ekki alveg tilbúin en verður í vinnslu smá saman næstu vikur. Það er hægt að versla núna vörur á síðunni í gegnum Paypal en fljótlega kemur svo venjulegt greiðslukerfi," útskýrir Ásdís. 2.4.2009 12:55
Slökkt á Leiðarljósi Leikurum og öðru starfsfólki sem kemur að framleiðslu sjónvarpsþáttarins Leiðarljós hefur verið tilkynnt að framleiðslu á þættinum yrði hætt og slökkt yrði á Leiðarljósi þann 18. september næstkomandi. Þátturinn hefur verið sendur út í 72 ár, fyrst í útvarpi og svo í sjónvarpi. 2.4.2009 12:21
IDOL: Konan kasólétt - myndband Meðfylgjandi má sjá viðtal sem tekið var við Georg Alexander eftir flutninginn baksviðs í Smáralindinni. Þar lýsir hann veikindum sínum þetta kvöld og það sem merkilegra er þá segir hann frá ástandi konunnar, Angelien Schalk, sem er gengin framyfir með fyrsta barnið þeirra. Mynd af henni má sjá í meðfylgjandi myndasafni (til hægri með ljóst hár svartklædd). 2.4.2009 10:58
Sveppi settur í einangrunarklefa á Litla-Hrauni „Þetta var kannski of lítill tími til að finna það á eigin skinni hvernig það er að vera fangi en þetta er samt ekki eitthvað sem ég myndi vilja prófa,“ segir sjónvarpsmaðurinn Sverrir Þór Sverrisson. Hann fór ásamt samstarfsfélaga sínum Auðuni Blöndal á Litla-Hraun og kynnti sér hvernig lífið gengur sinn vanagang á bak við lás og slá. 2.4.2009 09:15
Prinsessan nýr sumarsmellur Hljómsveitin Buff er þessa dagana að taka upp nýjan sumarsmell sem nefnist Prinsessan. Höfundur lags og texta er Dr. Gunni. „Gunni lét okkur fá lagið og bar undir okkur fyrir löngu síðan. Við vorum hrifnir af því strax,“ segir Hannes Friðbjarnarson. trommari í Buff um nýtt sumarlag sveitarinnar. 2.4.2009 09:00
Átta þúsund mótmæla ákvörðun RÚV „Ég hef fullan skilning á þeirra reiði en ég vona líka að þeir sýni okkar aðstæðum skilning. Við vissum það, þegar ráðist var í þennan niðurskurð, að þetta myndi lenda á einhverjum og því miður bitnar þetta á þeim núna,“ segir Páll Magnússon útvarpstjóri. Honum þykir miður að geta ekki sýnt beint frá Söngkeppni framhaldsskólanna en bætir því við að menntskælingar séu ekki þeir einu sem þurfi að horfa á eftir uppáhaldi sínu. 2.4.2009 08:00
Aldrei fór ég suður í gröfuskemmu „Þetta er fjórða húsið sem við erum í. Við höfum aldrei verið lengur en tvö ár á sama staðnum,“ segir Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, rokkstjóri hátíðarinnar Aldrei fór ég suður sem verður haldin á Ísafirði um páskana í sjötta sinn. Hálfdán og félagar hafa náð samkomulagi við verktakafyrirtækið KNH á Ísafirði um afnot af nýju húsnæði þess fyrir hátíðina. 2.4.2009 07:30
Leikfélag Sauðárkróks í kvikmyndum Þegar kvikmyndafyrirtæki sækja út á land í tökur eru hæg heimatökin að leita til áhugamannafélaganna á svæðinu. Skagafjörður státar af elsta leikfélagi landsins á Króknum. Tvær kvikmyndir í fullri lengd verða að hluta teknar upp nyrðra á þessu vori. Kvikmyndafélagið Pegasus hefur verið á Sauðárkróki síðustu daga við æfingar og undirbúning vegna kvikmyndarinnar Roklands, sem byggir á samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar. Leikfélag Sauðárkróks hefur verið framleiðendum myndarinnar innan handar og lagt til leikara í ýmis aukahlutverk. 2.4.2009 06:00
Króna með fyrstu tónleikana Birgir Örn Steinarsson hefur stofnað hljómsveitina Króna ásamt þeim Hjalta Jóni Sverrissyni úr Miri og Jóni Vali Guðmundssyni, sem einnig kemur fram sem Bubble Boy. Fyrstu tónleikar sveitarinnar verða annað kvöld í VIP-partíi á undan tónlistarhátíðinni Nokia on Ice í Listasafni Reykjavíkur. 2.4.2009 05:30
Haukur Ingi snýr aftur á Anfield „Það verður gaman að koma á fornar slóðir,“ segir knattspyrnukappinn Haukur Ingi Guðnason sem snýr aftur á sinn gamla heimavöll Anfield Road um páskana til að sjá fyrrum félaga sína í Liverpool taka á móti Blackburn. Kærastan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir verður með í för. 2.4.2009 05:00
Cohen snýr aftur Grínistinn Sacha Baron Cohen snýr aftur í sumar eftir mikla og umdeilda frægðarför sjónvarpsmannsins Borat frá Kasakstan. Að þessu sinni dregur Sasha upp úr hatti sínum hið samkynhneigða tískufrík Bruno. 2.4.2009 04:45
Sérhæfður vefur fyrir bíladellumenn á Íslandi Bíladellukarlar hafa fengið nýtt heimili í vefheimum, Racebook. „Ég hef alltaf verið með bíladellu,“ segir Ríkharður Brynjólfsson. Hann hefur ásamt Trond Eiksun og fyrirtæki Ríkarðs, Miðneti, undanfarið verið að setja upp fjölþættan vef sem sérstaklega er ætlaður bíladellumönnum. 2.4.2009 04:30
Burton þögull um Lísu í Undralandi Súrealískur ævintýraheimur Lewis Carroll, Lísa í Undralandi, ratar brátt á hvíta tjaldið á nýjan leik. Og hver annar en meistari Tim Burton gæti leikstýrt þessu furðuverki. 2.4.2009 04:30
Innrás í Þýskaland Ólafur Davíðsson, sendiherra, og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri Útón, opnuðu formlega tónleikaröðina Norðrið í Admiralspalast í Berlín 10. mars síðastliðinn. 2.4.2009 04:30
Fáir létu glepjast af aprílgabbi „Nei, þeir voru ekki margir sem bitu á agnið, það komu kannski fimm og annar eins fjöldi spurðist fyrir um þetta í gegnum síma,“ segir Gísli Einarsson, eigandi myndasöguverslunarinnar Nexus. 2.4.2009 04:15
Stórtónleikar í sumar Samtónn, samstarfsvettvangur tónlistarrétthafa, stendur fyrir verkefninu Íslenskt tónlistarsumar sem hefur verið sett á laggirnar. Er því ætlað að styrkja innviði og ímynd íslensks tónlistarlífs í því ölduróti sem hefur verið undanfarna mánuði. Af því tilefni stendur til að halda stórtónleika í Reykjavík snemma í sumar. Nákvæm tíma- og staðsetning hefur ekki verið ákveðin. Fleiri uppákomur eru einnig fyrirhugaðar í sumar. 2.4.2009 04:00
Snýr sér að umhverfisvernd Nýjasta sólóplata gömlu kempunnar Neils Young, Fork in the Road, kemur út á þriðjudaginn. Umhverfisvænir bílar eru umfjöllunarefnið, en það hefur verið Young hugleikið í langan tíma. 2.4.2009 04:00
Listahátíð kynnt Miðasala hófst á þrítugustu og níundu Listahátíð í Reykjavík í gær. Þá kynntu forráðakonur hátíðarinnar dagskrána í heild sinni en áður hafa birst nokkrar fréttir af atburðum á hátíðinni; tónleikum Deboruh Voight sem nú er uppselt á og Húslestra og Stofutónleikaröðum, viðburðum sem fara fram í heimahúsum. 2.4.2009 03:45
IDOL: Keppandi þarfnast kærustunnar - myndband Meðfylgjandi má sjá óklippt viðtal sem Vísir tók við Árna Þór Ármannsson Idolkeppanda baksviðs í Smáralindinni síðasta föstudag. „Það er mjög gott að hafa kærustuna í salnum," segir Árni meðal annars þegar talið berst að kærustunni hans. 1.4.2009 15:39
Stressaður IDOLkeppandi - myndband „Já svolítið. Ég var svolítið stressuð aðallega fyrir laginu sjálfu. Maður bara leggur alltaf 100% í þetta það er bara misjafnt í hvaða jarðveg það fellur," svaraði Guðrún Lísa Einarsdóttir eftir að hún söng lagið Hot´n Cold í Smáralindinni síðasta föstudag. Á facebooksíðu Fólks í fréttum má sjá viðtalið við Lísu í heild sinni. Þar svarar hún gagnrýni Björns Jörundar að hún væri eins og slöpp appelsínuhúð? Idolsíðan. 1.4.2009 12:02
IDOL: Jón virðist aldrei fíla mig - myndband „Jón hann einhvernveginn virðist aldrei fíla mig nema núna. Ég var svo mikill lúði fyrir hann," segir Alexandra Elfa Björnsdóttir baksviðs í Smáralindinni síðasta föstudag aðspurð hvaða dómari fer í taugarnar á henni. Sjá má Alexöndru í meðfylgjandi myndskeiði. 1.4.2009 10:23
Ættleiddur sonur Madonnu hittir blóðföður Fyrr í þessari viku flaug Madonna, 50 ára, til Malaví ásamt þremur börnum hennar Lourdes, Rocco og David Banda. Madonna leitast við að ættleiða 4 ára stúlku sem ber heitið Chifundo Mercy James. Samkvæmt AP fréttastofunni, lést 18 ára móðir Chifundo Mercy stuttu eftir að hún fæddist. Faðir stúlkunnar er á lífi en hefur nánast engin samskipti við barnið. Madonna og David voru mynduð þegar þau heimsóttu blóðfaðir hans í fyrsta skipti síðan hann flutti frá Malaví árið 2006 þegar Madonna tók hann að sér. 31.3.2009 16:44
Með pinna í tungunni eins og mamma - myndband „Mamma er með pinna í tungunni og ég ákvað að vera jafnkúl og hún," segir Idolkeppandinn Hrafna Hanna Elísa Herbertsdóttir aðspurð um pinnann sem hún er með í tungunni. Tunguskrautið má skoða betur í meðfylgjandi myndskeiði sem var tekið baksviðs í Smáralindinni á föstudaginn eftir að Hrafna söng lagið Warwick Avenue. 31.3.2009 09:18
Idol-lærlingar Einars Bárðar dottnir út „Já, þetta er rétt, enginn af mínum nemendum er eftir,“ segir Einar Bárðarson, umboðsmaður Íslands. Einar hélt sérstök Idol-námskeið áður en inntökuprófin fyrir þennan vinsæla sjónvarpsþátt voru haldin á Nordica. Þar gátu áhugasamir keppendur fræðst um hina og þessa taktík sem nauðsynlegt væri að hafa á takteinum til að komast í gegnum síuna. En þegar Georg Alexender lauk keppni á föstudag höfðu lærlingar Einars hins vegar sungið sitt síðasta í sjónvarpinu og keppninni. 31.3.2009 09:00
Söngkeppni framhaldsskólanna of dýr fyrir RÚV RÚV mun ekki sýna beint frá söngkeppni framhaldsskólanna í ár. Að sögn Þórhalls Gunnarssonar, dagskrárstjóra RÚV, er þetta einfaldlega hluti af þeim niðurskurðaraðgerðum sem Sjónvarpið þurfti að grípa til í ár. „Við tökum auðvitað upp þráðinn á næsta ári en þetta er því miður eitthvað sem við ráðum ekki við eins og málin standa í dag.“ 31.3.2009 07:30
Úr Smáfuglum yfir í Rómeó „Ég hlakka rosalega til. Þetta verður örugglega alveg æðislegt,“ segir Atli Óskar Fjalarsson, sem leikur Rómeó í uppfærslu leikfélags Borgarholtsskóla á Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. 31.3.2009 06:30
Mannlíf frestast vegna viðkvæms forsíðuefnis „Nei, það er vont að tala um hvað verður á forsíðunni svona löngu áður en blaðið kemur. Við erum þjófhræddir. Við frestuðum útgáfu blaðsins um viku vegna þess hversu viðkvæmt þetta efni er,“ segir Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs. 31.3.2009 06:00
Vorstemning á Nasa „Það var alveg troðfullt og mikið af erlendum blaðamönnum út af HönnunarMars, svo það hentaði vel að hafa þetta sem part af því,“ segir Guðmundur Jörundsson fatahönnunarnemi um sýningu annars árs nema við Listaháskóla Íslands á Nasa síðastliðið föstudagskvöld. Tíu nemendur sýndu hönnun sína fyrir fullu húsi á Nasa og virtust gestir kvöldsins kunna vel að meta afraksturinn. alma@frettabladid.is 31.3.2009 05:45
Skrímslin slógu í gegn Teiknimyndin Monsters vs Aliens sló rækilega í gegn vestanhafs um síðustu helgi. Frumsýningarhelgi myndarinnar var sú besta hjá nokkurri mynd á árinu og námu aðsóknartekjurnar rúmum 58 milljónum dollara, eða um sjö milljörðum króna. 31.3.2009 04:45
Ættleiðingu Madonnu líkt við barnarán Poppdívan Madonna sætir gagnrýni fyrir að ætla í annað sinn að ættleiða barn frá Malaví. Milljón börn eru munaðarlaus í Malaví. Árið 2006 ættleiddi Madonna malavískan dreng sem misst hafði móður sína og var sú ættleiðing umdeild. Hún var sögð rífa barnið frá eftirlifandi stórfjölskyldu. Nú er hún komin aftur til að ættleiða fjögurra ára stúlku. 30.3.2009 20:05
Britney kallar á hjálp - upptaka Hlusta má á upptöku þegar Britney Spears biður lögfræðingateymið sitt um hjálp. Þar minnist hún meðal annars á að faðir hennar, Jamie Spears, sem hefur forræði yfir fjármálum hennar, hótaði oftar en einu sinni að taka af henni börnin. Heyra má upptöku af Britney tala inn á talhólf hér. 30.3.2009 15:14
IDOLkeppandi svarar dómaradrullu - myndband Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þegar Vísir ræddi við Gylfa baksviðs eftir flutninginn til að kanna hvernig hann tæklar gagnrýni og hvort hann trúir því raunverulega að hann komist áfram í Idol stjörnuleit. 30.3.2009 14:20
Kata Bessa ráðin upplýsingafulltrúi VG Sjónvarpskonan geðþekka Katrín Rut Bessadóttir hefur tekið við stöðu upplýsingafulltrúa hjá Vinstri hreyfingunni grænu framboði. 30.3.2009 12:10
Fársjúkur IDOL-stuðningshópur - myndband Eins og myndbandið sýnir er stuðningshópur Árna Þórs sem komst örugglega áfram á Idol stjörnuleit síðasta föstudag sjúkur. Meðlimir stuðningshópsins eru allir með grímu með áprentuðu andliti Árna Þórs. 30.3.2009 11:56
Glímir við endurtekningavandann Leiksýningin Mr. Skallagrímsson lýkur nú göngu sinni eftir 3 ára úthald og yfir 200 sýningar. Síðustu sýningar eru áætlaðar nú í lok Maí. Vísir hafði samband við leikarann Benedikt Erlingsson, sem hefur leikið Egil Skallagrímsson fyrir fullu húsi allan sýningartímann, og spurði hvort hann væri orðinn leiður á verkinu? „Já sko, veistu það að það er svo undarlegt að ég er aldrei leiður á sýningum eða eftir sýningar, þá er ég alltaf óskaplega glaður en fyrir sýningar er ég leiður og kvíði þessu," svarar Benedikt. „Þetta er svona glíma við endurtekningavandann og þegar maður stendur þarna einn og hefur bara áhorfendur til að skemmta sér með, þá er þetta partur af því að ég er að reyna að leggja þessu. Sýningin hjálpar mér alltaf og sjálfur Egill hjálpar mér." 30.3.2009 11:25
Sveitapiltsins draumur á dagskrá fyrir páska „Myndin er á lokastigi og verður sýnd á laugardagskvöld fyrir páska," segir Egill Eðvarðsson en mynd hans um sögufræga pílagrímsför FTT og Hljóma til Liverpool er komin á dagskrá Ríkissjónvarpsins. 30.3.2009 08:00
Átti enga vini í skóla Söngkonan Lily Allen sem hefur verið að gera það nokkuð gott undanfarið hefur viðurkennt að hún hafi ekki átt neina vini í skóla. Það hafi orðið til þess að hún varð „internet-nörd“. 29.3.2009 20:00
Langar í börn númer sjö og átta Angelina Jolie hefur sagt vinum sínum að hún vilji tvö börn í viðbót. Eitt ættleitt og annað með getnaði, það mun setja tölu barna hennar upp í átta. Leikkonan viðurkenndi fyrir nákomnum vini að hún væri þegar byrjuð að leita að fjórða barninu til þess að ætleiða strax að loknum tökum á nýjustu kvikmynd sinni, Salt. 29.3.2009 18:00
Barnfóstra Madonnu fékk nóg og gekk út Fyrrum barnfóstra Madonnu gekk út í síðustu viku þegar hún fékk upp í kok af hegðun söngkonunnar sem er víst nokkuð skapstór. Angela Jacobsen segist hafa hætt í síðustu viku þar sem hún hafi ekki getað meira af þessu „helv*** lengur“. 29.3.2009 16:30
Take That með „kommbakk“ Robbie Williams og fyrrum hljómsveit hans Take That ætla að sameinast á ný og halda nokkra tónleika á næsta ári. Þeir undirbúa nú stóra tónleika í London og eru sagðir ætla að spila þar í júní eða nóvember. 29.3.2009 15:00
Herra og frú Rooney eiga von á barni Coleen eiginkona knattspyrnumannsins Wayne Rooney hjá Manchester United er komin þrjá mánuði á leið samkvæmt frétt Sunday Mirror í dag. 29.3.2009 13:30
Izzy og O´Malley að hætta í Grey´s Anatomy Það var ekki minni persóna en James Pickens sem upplýsti að Katherine Heigl og T. R. Knight væru að hætta í þáttunum en þau leika læknana Izzy Stevens og George O´Malley. 29.3.2009 11:40