Lífið

Króna með fyrstu tónleikana

Hljómsveitin Króna heldur sína fyrstu tónleika í Listasafni Reykjavíkur annað kvöld. Meðlimir sveitarinnar eru Birgir Örn Steinarsson, Hjalti Jón Sverrisson og Jón Valur Guðmundsson.
Hljómsveitin Króna heldur sína fyrstu tónleika í Listasafni Reykjavíkur annað kvöld. Meðlimir sveitarinnar eru Birgir Örn Steinarsson, Hjalti Jón Sverrisson og Jón Valur Guðmundsson.

Birgir Örn Steinarsson hefur stofnað hljómsveitina Króna ásamt þeim Hjalta Jóni Sverrissyni úr Miri og Jóni Vali Guðmundssyni, sem einnig kemur fram sem Bubble Boy. Fyrstu tónleikar sveitarinnar verða annað kvöld í VIP-partíi á undan tónlistarhátíðinni Nokia on Ice í Listasafni Reykjavíkur.

Birgir Örn, eða Biggi í Maus, segist hafa saknað þess að vera í hljómsveit en hann lét síðast að sér kveða sem sólótónlistarmaður. „Það er gaman að vinna sólóefni en það er einmanalegra og hægvirkara,“ segir hann. „Ég virka mjög vel í svona tónsmíðasamstarfi, þegar allir eru að semja tónlistina saman. Ég var orðinn þreyttur á að bíða eftir því að Maus myndi gera þetta en aðstæður hafa ekki leyft það.“

Biggi ætlar að leita aftur til upprunans með Krónu. „Þetta er rokk af ýmsum toga og sungið á íslensku. Það er ekki verið að reyna að finna upp hjólið. Þetta er aðeins ákafari tónlist en hjá Maus en ekkert endilega þyngri. Þeir eru náttúrlega svo ungir strákarnir og það er svo mikil gredda í þeim. Þetta er ekki eins slípað og Maus var orðið,“ segir hann.

Króna er á leiðinni í hljóðver, enda eru sjö til átta lög þegar komin í púkkið. Biggi vill þó ekki gefa það upp hvenær fyrsta platan er væntanleg. Hann er mjög spenntur fyrir tónleikunum annað kvöld. „Þetta er dálítið skrítið fyrir mig. Ég hef ekki spilað á Íslandi síðan með sólóverkefninu mínu 2006 í Listasafninu og ekki með rokksveit síðan í október 2004. Það er mikil tilhlökkun en maður finnur að feimnin og sviðsskrekkurinn eru komin aftur.“- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.