Lífið

Idol-lærlingar Einars Bárðar dottnir út

Ekkert sár. Einar Bárðarson er ekkert leiður yfir því að Idol-lærlingar hans skuli vera fallnir úr keppni.
Ekkert sár. Einar Bárðarson er ekkert leiður yfir því að Idol-lærlingar hans skuli vera fallnir úr keppni.

„Já, þetta er rétt, enginn af mínum nemendum er eftir," segir Einar Bárðarson, umboðsmaður Íslands. Einar hélt sérstök Idol-námskeið áður en inntökuprófin fyrir þennan vinsæla sjónvarpsþátt voru haldin á Nordica. Þar gátu áhugasamir keppendur fræðst um hina og þessa taktík sem nauðsynlegt væri að hafa á takteinum til að komast í gegnum síuna.

En þegar Georg Alexender lauk keppni á föstudag höfðu lærlingar Einars hins vegar sungið sitt síðasta í sjónvarpinu og keppninni.

„Mér sýndist hann vera eitthvað hálfveikur karlinn og það var leiðinlegt að missa hann úr keppninni, hann var virkilega skemmtilegur keppandi," segir Einar sem tekur þessa staðreynd ekkert of nærri sér.

„Alls ekki, námskeiðið var ekki um hvernig ætti að vinna keppnina heldur hvernig ætti að komast í gegnum inntökuprófin. Ef ég hefði þurft að halda í höndina á krökkunum alla leiðina að tveimur milljónunum þá hefði verðskráin verið í ætt við 2007."

Annar keppandi sem sótti námskeið hjá Einari en komst ekki í Smáralindina var Davíð Þór Sveinsson. Hann söng í undanúrslitum í Íslensku óperunni en hlaut hvorki náði fyrir augum almennings né dómnefndarinnar. Þriðji keppandinn sem sótti námskeið hjá Einari en gerðist aldrei svo frægur að syngja í sjónvarpinu var Arnar Jónsson og umboðsmaðurinn viðurkennir að hann hafi eiginlega séð mest eftir honum. „Hann valdi Eurovisionið fram yfir Idolið en ég held að hann hefði getað unnið þetta." - fgg










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.